Tjaldsvæðið á Hólmavík

Tjaldsvæðið á Hólmavík er gott tjaldsvæði á besta stað í þorpinu við hlið sundlaugar (íþróttamiðstöðvar) og félagsheimilis. Örstutt í verslun og handverksmarkað. Veitingahús og safn í þægilegu göngufæri ásamt skemmtilegum gönguleiðum með góðu útsýni. Þægilegar dagsferðir á bíl eru norður í Árneshrepp og yfir í Ísafjarðardjúp t.d í Kaldalón.
Ekki er nauðsynlegt að panta gistingu en ef um stærri hópa er að ræða er gott að hafa samband fyrirfram. Þvottavél og þurrkari er á svæðinu. Rafmagn er fyrir húsbíla og tjaldvagna. Góð salernisaðstaða og WC losun fyrir húsbíla.
Hólmavík has a good campingsite. It is placed next to the swimming pool, sportscenter and the community center. The local grocery store is within 2 minute walking distance as well as a local crafts market. Hólmavík has a restaurant and a museum within fifteen minute walking distance from the campsite. There are marked walking routes in the area that offer a view of Hólmavík and its beautiful surroundings.
The campingsite has a WC facilities and a washing machine, dryer and electricity for campers and mobil home. You can also enjoy comfortable daytrips by car to other interesting places around Hólmavík. It is not necessary to book in advance for tents, campers and mobile home at the camping site, but it is suggested if travelling with a big group of people.