Fara í efni

Slökkvilið Strandabyggðar

Slökkvilið Strandabyggðar er með aðstöðu, bíla og búnað á Hólmavík.

Neyðarsími: 112

Netfang: slokkvilid@dalir.is

Skjöldur Orri Skjaldarson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda.

Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda bs. 

Strandabyggð er aðili að Brunavörnum Dala, Reykhóla og Stranda bs. 

Tilgangur þess er að fara með skipulag, yfirstjórn og þjálfun vegna slökkviliða og eldvarnaeftirlits á starfssvæðinu.

Eini starfsmaður félagsins er slökkviliðsstjóri að undanskildum varðsstjórum sveitarfélaganna sem leysa slökkviliðsstjórann af á bakvöktum. Rekstur einstaklra slökkviliða er undir hverju sveitarfélagi fyrir sig og er sjálfstæð eining undir stjórn slökkviliðsstjóra. 

Slökkviliðsstjóri ber ábyrgð á gerð sameiginlegrar brunavarnaáætlunar, fjárhagsáætlunar fyrir hvert slökkvilið og starfsáætlunar ásamt því að bókhald og fjárreiður séu í samræmi við lög og viðurkenndar venjur. 

Einnig sér slökkviliðsstjóri um skipulag og framkvæmd á eldvarnaeftirliti sveitarfélaganna ásamt æfingum og þjálfun slökkviliðsmanna. 

Eldvarnaeftirlit

Samkvæmt 20. gr. reglugerðar um eldvarnir og eldvarnareftirlit nr. 723/2017 skal slökkviliðsstjóri gefa út eftirlitsáætlun eldvarnaeftirlits fyrir 1. febrúar ár hvert þar sem gerð er grein fyrir því hvaða mannvirki, lóðir og starfsemi munu sæta eldvarnaeftirliti það árið. 

Auk þeirra sem fram koma í eftirlitsáætlun mega önnur fyrirtæki og stofnanir eiga von á skoðun frá eldvarnaeftirliti, meðal annars vegna umsagna um tækifæris- og rekstrarleyfa, öryggis- og lokaúttekta o.fl. 

Skjöldur Orri Skjaldarson
Slökkviliðsstjóri
Ingólfur Árni Haraldsson
Varðstjóri