Fara í efni

Upplýsingar til foreldra barna á Lækjarbrekku

Einkunnarorð Lækjarbrekku eru: Gleði, virðing og vinátta.

Upplýsingar til foreldra frá leikskólanum fara með tölvupósti, skilaboðum á Karellen og einnig á upplýsingatöflum í fataklefum leikskólans. Mikilvægt er að fylgjast vel með upplýsingatöflunni.

Upplýsingaflæði

Lögð er áhersla á gott upplýsingaflæði. Foreldrar leikskólabarna eru með foreldrahóp á Facebook þar sem þeir geta spjallað saman. Tilkynningatöflur hanga uppi  í anddyri leikskólans á báðum deildum. Föstudagspóstar eru sendir út reglulega til að upplýsa um leikskólastarf vikunnar og viðburði framundan. 

Karellen, heldur utan um ítarlegar upplýsingar fyrir hvert barn s.s. um mætingu, leyfi, veikindi, matmálstíma, svefntíma og myndir. Þær upplýsingar eru einungis aðgengilegar foreldrum barnsins. Þar birtast einnig skilaboð til einstakra foreldra eða allra 

Opnunartími

Leikskólinn er opinn frá kl. 7:45-16:15 og er ætlaður fyrir börn á aldrinum níu mánaða til sex ára. Börn þurfa að eiga lögheimili í Strandabyggð til að hafa rétt til dvalar. Hægt er að velja um 4-8 stunda vistun. Einnig geta foreldrar/forráðamenn keypt 15 mínútna aukavistun að morgni eða síðdegis þurfi þeir á því að halda. Foreldrar eru beðnir um að virða vistunartíma barna sinna. 

Klæðnaður og óskilamunir

Mikilvægt er að klæðnaður barnanna sé þægilegur og hefti ekki leikgleði þeirra. Klæðið börnin eftir veðri, einnig er gott að hafa í huga að veður getur breyst með litlum fyrirvara og því er gott að hafa klæðnað í hólfunum sem henta flestum veðrum. Vinsamlegast merkið föt barnanna.

Kassar undir aukaföt eru í fataklefum og eru foreldrar beðnir að fylgjast vel með því hvort eitthvað vanti þar. Mikilvægt er að fylgjast með því hvort að börnin hafi föt til skiptanna.
ATH: Hægt er að geyma útiföt barnanna í hólfunum alla vikuna en á föstudögum þarf að tæma hólfin vegna þrifa.

Í leikskólanum vinnum við með margvísleg efni s.s. málningu og lím sem geta farið í föt barnanna þó svo starfsfólk leiti allra leiða til að koma í veg fyrir að slíkt gerist. Vinsamlegast takið tillit til þess.

Leikskólagjöld

Leikskólagjöld eru á gjalddaga um miðjan mánuð fyrir líðandi mánuð og er eindagi þeirra 1. dag næsta mánaðar á eftir. Dragist greiðsla í tvo mánuði fá foreldrar viðvörun um að missa pláss frá og með næstu mánaðarmótum berist ekki greiðsla eða um hana hafi verið samið á skrifstofu Strandabyggðar.

Uppsagnarfrestur og breytingar á vistunartíma

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar. Hægt er að sækja um breytingar á vistunartímanum fyrir 15. hvers mánaðar. Eyðublöð fyrir uppsögn á leikskólaplássi er á heimasíðu leikskólans. Ef um vistunarbreytingar er að ræða fást eyðublöð hjá leikskólastjóra. Ekki er hægt að tryggja að lenging á plássi taki gildi strax þar sem vinnutími starfsfólks miðast út frá vistunartíma barnanna.