Fara í efni

Starfsmannastefna

Starfsmannastefna skóla í Strandabyggð

Grunnstefna
Við skólann starfar metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram um að veita nemendum og foreldrum þeirra framúrskarandi þjónustu.  

Starfsfólk sameinaðs skóla á Hólmavík er hópur faglærðra og ófaglærðra starfsmanna sem vinna saman að því að byggja upp skólastarf þar sem áhersla er lögð á vilja, virðingu, umburðarlyndi og tillitssemi með hagsmuni nemenda að leiðarljósi. Þau starfa undir verkstjórn skólastjórnenda og í náinni samvinnu við nemendur, foreldra þeirra og aðra sem koma að skólastarfinu.  

Starfsfólk ber ábyrgð á öllum þáttum skólastarfsins, þar á meðal undirbúningi, framkvæmd og mati. Lögð er áhersla á jákvæða og uppbyggilega vinnustaðamenningu þar sem stuðningur, þekkingarmiðlun og starfsþróun eru í forgrunni. 

Í starfsmannastefnu er fjallað um þróun og hæfni, móttöku nýrra starfsmanna og starfslok

Starfsmannastefna - skóla í Strandabyggð

Markmið: Að ráða hæft og metnaðarfullt starfsfólk.

  • Öll störf skulu auglýst opinberlega nema þegar um tímabundnar ráðningar eða tilfærslur er að ræða.
  • Nýjum starfsmönnum skulu kynnt réttindi og skyldur samkvæmt móttökuáæltun. 

Ábyrgð: Skólastjóri leik- og grunnskóla

Móttökuáætlun nýrra starfsmanna

Markmið: Að gera starfsfólki kleift að þróast í starfi. 

  • Tryggja aðgengi að námskeiðum og sveiganleika til að sækja þau.
  • Tryggja aðgengi að persónulegri starfsþróun og svigrúmi til að þróast í starfi.
  • Tryggja reglubundið mat á hæfni kennara í samræmi við hæfniramma. 

Ábyrgð: Skólastjóri leik- og grunnskóla. 

Starfsþróunaráætlun og hæfnirammi

Markmið: Að tryggja aðbúnað, hollustuhætti og öryggi. 

  • Framkvæma skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnnustað og fylgja henni eftir.
  • Tryggja góð samskipti og andlegt starfsumhverfi.

Ábyrgð: Skólastjóri leik- og grunnskóla og trúnaðarmenn.

Öryggi og heilbrigði starfsmanna á vinnustað

Markmið: Að stuðla að jafnrétti kynjanna í öllu skólastarfi.

  • Vinna eftir jafnréttisáætlun skólans.

Ábyrgð: Skólastjóri leik- og grunnskóla

Jafnréttisáætlun

Markmið: Að efla samskipti og starfsþróun

  • Halda starfsmannaviðtöl á hverju vori og tryggja tíma í fundaáætlun skólans fyrir þau.
  • Halda utan um starfsþróun starfsmanna í samræmi við hæfniramma ríkisins um hæfni leik- og grunnskólakennara í starfi. 

Ábyrgð: Skólastjóra leik- og grunnskóla. 

Hæfnirammi ríkisins

Markmið: Að tryggja faglega meðhöndlun starfsloka.

  • Halda starfslokasamtöl og tryggja varðveislu þekkingar innan skólans. 

Ábyrgð: Skólastjóri leik- og grunnskóla. 

Minnislisti um starfslok starfsmanna