Fara í efni

Skólareglur Grunnskólans á Hólmavík

Skólareglur gilda á skólatíma og í öllum ferðum og skemmtunum á vegum skólans. 

Markmið og gildissvið

Skólareglur þessar gilda á skólatíma og í öllum ferðum og viðburðum á vegum skólans. Markmið skólareglna Strandabyggðar er að tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks, skapa vinnufrið og jákvæðan skólabrag, að stuðla að gagnkvæmri virðingu og tryggja réttláta og málefnalega málsmeðferð.
 

Reglurnar byggja á lögum um grunnskóla, Aðalnámskrá grunnskóla, reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins, stjórnsýslulögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
 

1. Vinnufriður


Skólinn er vinnustaður nemenda og starfsfólks. Allir skulu leggja sitt af mörkum til að tryggja vinnufrið og jákvætt námsumhverfi .
 

2. Stundvísi og skólasókn
 

Nemendur skulu mæta stundvíslega nema veikindi eða önnur gild forföll séu skráð. Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á skólasókn barna sinna og skulu tilkynna forföll eins fl jótt og hægt er. Umsjónarkennari veitir leyfi í allt að tvo daga en sækja þarf um lengra leyfi til skólastjóra. Foreldrar bera ábyrgð á að nemandi sinni námi sínu meðan á leyfi stendur í samráði við kennara.
 

3. Framkoma og samskipti
 

Nemendur og starfsfólk skulu sýna kurteisi, virðingu og vandað orðbragð í öllum samskiptum á skólatíma. Nemendur skulu fara eftir fyrirmælum starfsfólks sem tengjast skólastarfi , öryggi og skipulagi. Óheimilt er að beita líkamlegu, andlegu eða félagslegu ofbeldi.
 

4. Umgengni
 

Nemendur og starfsfólk skulu ganga vel um skólann, eigur hans og umhverfi . Óheimilt er að hafa meðferðis eldfæri, hnífa eða aðra hluti sem geta valdið skaða.
 

5. Skólalóð
 

Nemendum er óheimilt að fara út af skólalóð á skólatíma án leyfis.
Hjólreiðar og notkun línuskauta, hjólabretta og hlaupahjóla á skólalóð er óheimil á starfstíma vegna slysahættu. Farartæki eru geymd utandyra og nemendur bera ábyrgð á notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
 

6. Tækjanotkun
 

Notkun snjalltækja í kennslustundum er óheimil nema með leyfi kennara.
Notkun eigin síma er að öllu leyti óheimil á skólatíma. Þurfi nemendur að hafa samband heim eða forsjáraðilar að ná í börnin sín, er sími skólans notaður. Tæki í eigu nemenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra.
Skólinn getur sett nánari reglur um tækjanotkun í samræmi við
persónuvernd og vinnufrið.
 

7. Heilbrigðar lífsvenjur
 

Neysla tóbaks, rafretta, áfengis, annarra vímuefna og orkudrykkja er óheimil
í skólanum og á viðburðum á vegum hans. Nemendur neyta ekki sætinda
eða gosdrykkja á skólatíma nema við sérstök tækifæri með leyfi.
 

8. Bekkjarreglur og sérreglur
 

Kennarar og nemendur setja sér bekkjarreglur í samræmi við gildandi
skólareglur. Sérreglur mega ekki ganga gegn meginreglum skólans né
lögum.
 

Viðbrögð við brotum á skólareglum
 

Viðbrögð skulu vera málefnaleg, í samræmi við alvarleika brots, stigvaxandi og
með hagsmuni barnsins að leiðarljósi og jafnræðis skal gætt í meðferð mála.
Viðbrögð eru skráð í samræmi við eftirfarandi ferli.
 

1. Stig viðbragða:
 

a. Áminning frá starfsmanni.
b. Umsjónarkennari ræðir við nemanda og upplýsir foreldra.
c. Málið skráð og unnið að lausn í samstarfi við heimili. Á öllum stigum
máls skal nemandi fá tækifæri til að tjá sig áður en ákvörðun er tekin.
d. Fundur með foreldrum ef brot eru ítrekuð.
e. Skólastjóri tekur málið til meðferðar ef fyrri úrræði bera ekki árangur.
 

2. Alvarleg eða ítrekuð brot
 

Við alvarleg eða ítrekuð brot getur skólastjóri gripið til frekari úrræða og
leitað til utanaðkomandi sérfræðinga.
Ef þörf krefur getur skólastjóri beitt tímabundinni brottvísun. Áður en
ákvörðun er tekin skal nemandi og foreldrar fá tækifæri til að tjá sig og
ákvörðun skal vera skrifleg og rökstudd. Ákvörðun um brottvísun er
stjórnvaldsákvörðun og er unnið með hana í samræmi við stjórnsýslulög.
Sveitarfélag tryggir nemanda viðeigandi kennslu meðan úrræði stendur
yfir.
Ákvörðun um brottvísun má kæra samkvæmt lögum um grunnskóla.
 

3. Tilkynningaskylda
 

Ef upp koma aðstæður sem varða velferð barns skal unnið samkvæmt
barnaverndarlögum og tilkynningarskyldu starfsfólks.
 

4. Brot á lögum
 

Grunur um refsiverða háttsemi er tilkynntur viðeigandi yfirvöldum í
samræmi við lög.
 

5. Bótaábyrgð
 

Forsjáraðilar geta borið bótaábyrgð samkvæmt almennum reglum
skaðabótaréttar ef tjón verður á eigum skólans eða annarra.
 

Síðasta endurskoðun: febrúar 2026