Fara í efni

Þróunarsetur

Myndataka í Strandabyggð. Haust 2025.

Í Þróunarsetrinu eru 11 skrifstofur til útleigu í langtíma eða skammtíma leigu. Skrifstofurnar henta vel fyrir einyrkja, frumkvöðla og þá sem eru í störfum án staðsetningu. Einnig er þar að finna námsaðstöðu fyrir nemendur. 

Innifalið í leigugjaldi er aðgangur að interneti, kaffiaðstaða og afnot af prentara.

Til að fá upplýsingar um lausar skrifstofur er hægt að hafa samband við skrifstofu Strandabyggðar í síma 451-3510 eða í tölvupósti á strandabyggd@strandabyggd.is.

Á fimmtudögum kl 10:00 er einyrkjakaffi í Þróunarsetrinu. Þar hittast einyrkjar, frumkvöðlar og aðrir sem áhuga hafa yfir kaffibolla í notalegu umhverfi.