A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starf í leikskólanum Lækjarbrekku

| 15. nóvember 2010

Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir starf matráðs laust til umsóknar. Staðan losnar 15. desember n.k. Leikskólinn Lækjarbrekka er einsetinn tveggja deilda leikskóli og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Um 30 börn eru á báðum deildum. Einkunnarorð skólans eru:


Gleði  -  Virðing  -  Vinátta


Áhugi á börnum og samskiptum við þau er nauðsynlegur ásamt skipulögðum vinnubrögðum og samstarfshæfni.


Nánari upplýsingar um leikskólann Lækjarbrekku er að finna á www.strandabyggd.is og www.123.is/laekjarbrekka


Umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælendum berist til skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík. Umsóknarfrestur rennur út á hádegi föstudaginn 19. nóvember n.k. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Strandabyggðar í síma 451-3510. Einnig er hægt að senda póst í netfangið holmavik@holmavik.is

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón