Vinnustofan hefst með náttúrugöngu með leiðsögn í nágrenni Sævangs. Þú munt læra að þekkja plöntur og þörunga og heyra sögur af því hvernig þau tengjast menningu svæðisins sögulega. Næst færðu að spreyta þig á verklegri vinnustofu þar sem þú lærir að búa til hversdagslega hluti með því að blanda saman staðbundnum náttúruefnum við náttúruleg bindiefni, trefja, fylliefni og litarefni. Rut Bjarnadóttir, textíllistakona af svæðinu, mun kenna pappírsgerð á íslensku. Þú munt læra einfaldar aðferðir til að búa til listpappír úr endurunnum lífmassa úr plöntum og þangi. Vinnustofan er hönnuð fyrir alla aldurshópa og krefst ekki fyrri reynslu af hönnun eða list. Börn eru velkomin í fylgd með fullorðnum þar sem heitar hellur og heitir vökvar verða notuð í lífefnahlutanum.
Vinnustofa um lífefni
Dags
9. júlí
Kl.
09:00 - 16:30
Staðsetning
Sauðfjársetrið í Strandabyggð
Dagskráin felur í sér náttúrugöngu og lífefnavinnustofu. Lærðu hvernig hægt er að breyta staðbundnum náttúruefnum í hversdagslega hluti með einföldum og aðgengilegum aðferðum.
