Skúli Gautason segir frá ævintýralegri ferð sem hann fór í ásamt hljómsveit sinni, Sniglabandinu, til Sovétríkjanna sálugu árið 1989.
Margt í þeirri ferð var lyginni líkast og sumt á mörkum hins skiljanlega.
Guðbjörg Guðmundsdóttir les upp úr nýrri glæpasögu sem gerist í smábæ á Vestfjörðum. Ekki Hólmavík þó. Eða hvað?
