Valkostirnir verða sem sagt fjórir að þessu sinni:
- Trékyllisheiðin Ultra 48 km (úr Trékyllisvík, um 1.150 m hækkun)
- Trékyllisheiðin Midi 26 km (frá Djúpavík, um 950 m hækkun)
- Trékyllisheiðin Mini 16,5 km (af Bjarnarfjarðarhálsi, um 300 m hækkun)
- Trékyllisheiðin Junior 3,7 km (frá Bólstað, um 70 m hækkun)
Staðsetning
Lengsta hlaupið hefst við félagsheimilið í Árnesi í Trékyllisvík, næstlengsta hlaupið við Hótel Djúpavík í Reykjarfirði og það þriðja á Bjarnarfjarðarhálsi milli Steingrímsfjarðar og Bjarnarfjarðar. Ungmennahlaupið hefst svo við eyðibýlið Bólstað í Selárdal. Sætaferðir verða frá skíðaskálanum að rásmörkum hlaupanna og sem fyrr segir enda öll hlaupin við skíðaskálann.
Sætaferðir
Boðið er upp á sætaferðir að morgni hlaupadags frá endamarkinu í Selárdal að rásmörkum allra hlaupanna. Fargjaldið til Trékyllisvíkur er 7.000 kr/mann, 5.000 kr/mann til Djúpavíkur og 2.000 kr/mann að rásmarki á Bjarnarfjarðarhálsi. Flutningur að rásmarki ungmennahlaupsins er innifalinn í skráningargjaldi. Um fargjöld gilda sömu endurgreiðsluskilmálar og með þátttökugjöld, (sjá neðar). Þeir sem afþakka sætaferð við skráningu geta eftir sem áður pantað far með því að senda tölvupóst á Skidafelagstrandamanna@gmail.com í síðasta lagi 31. júlí 2026. Ekki er þó hægt að tryggja að nægt sætaframboð verði á þeim tíma.
Dagskrá hlaupadags
Kl. 07:30 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal norður í Trékyllisvík
Kl. 10:00 Start 48 km við Félagsheimilið í Árnesi
Kl. 10:00 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal norður í Djúpavík
Kl. 12:00 Start 26 km við Hótel Djúpavík
Kl. 12:15 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal upp á Bjarnarfjarðarháls
Kl. 13:00 Start 16,5 km á Bjarnarfjarðarhálsi
Kl. 13:40 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal yfir að Bólstað
Kl. 14:00 Start 3,7 km ungmennahlaup við Bólstað
Kl. 14:00 Von á fyrstu keppendum í mark
Kl. 15:30 Verðlaunaafhending í Selárdal (eða þegar þrjú fyrstu eru komin í mark)
Kl. 18:00 Marki lokað
Skráning
Skráning fer fram á https://netskraning.is/trekyllisheidin/. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti að kvöldi fimmtudagsins 13. ágúst. Skráning í ungmennahlaupið er þó opin fram að ræsingu hlaupsins.
