Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um Vesturland og Vestfirði frá 7.- 11. september með viðkomu á Grundarfirði, Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði. Félögin efna til fundar við ungmenni um allt land til að ræða líðan og veruleika ungs fólks á hverjum stað. Unnið verður úr skilaboðum ungmennanna samdægurs og þau rædd með forsjáraðilum og forráðafólki sveitarfélaganna. Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk, starfsfólk í skóla- og frístundamálum, heilbrigðis- og velferðarþjónustu svæðisins og lögregla eru sérstaklega hvött til að mæta og taka þátt í samtalinu. Dagskráin á hverjum stað endar svo á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.
Tölum saman um líðan og tengsl
Dags
8. september
Kl.
13:00 - 14:30
Staðsetning
Félagsheimilinu Hólmavík
Barnaheill og Geðhjálp bjóða íbúum Strandabyggðar til opins íbúafundar í Félagsheimilinu á Hólmavík þriðjudaginn 8. september kl. 13 til að ræða líðan og veruleika ungs fólks í sveitarfélaginu. Félögin halda vinnustofu með börnum í efstu bekkjum grunnskólans fyrr um morguninn, og ræða svo niðurstöður með ungmennunum, forsjáraðilum og forráðafólki sveitarfélaganna í kjölfarið á opnum fundi kl. 13
