Þann 12. ágúst verður sögulegur sólmyrkvi á Íslandi sem mun sjást allra best á Vestfjörðum! Á Púkanum verða hátíðarsýningar á Sólmyrkvaleikum - splunkunýju verkefni þar sem vísindi, listir og þjóðsögur renna saman í eitt stórt ævintýri!
Stjörnu-Sævar útskýrir hvað sólmyrkvi eiginlega er og Ingibjörg í Þjóðsögukistunni leiðir okkur inn í heillandi þjóðsögur um fyrirbærið.
Við frumflytjum grípandi tónverk og töfrandi stuttmyndir sem vestfirskir krakkar unnu í vinnusmiðjum með ÞYKJÓ hönnunarteymi og tónlistardúóinu Ingibjörgu og Sigga fyrr í vetur.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði og Vísindasmiðju Háskóla Íslands.
