Mögnuð þjóðtrúarkvöldvaka, samstarfsverkefni Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Ströndum og Sauðfjárseturs á Ströndum, árviss viðburður frá 2013. Að þessu sinni verður þemað veðrið, hafið og þjóðtrúin, og kvöldvakan hefur yfirskriftina Skjótt skipast veður í lofti!
DAGSKRÁ:
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur: Skjótt skipast veður í lofti: Óvættir í undirdjúpunum
Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur: Útburðarvæl og þurrkaðar skruddur: Af skrítnum og sérkennilegum veðurspám við sjávarsíðuna
Dúllurnar með tónlistaratriði
Dularfullt kvöldkaffi
Guðrún Júlíana Sigurðardóttir, þjóðfræðingur: „Það var skítaveður, alveg skítaveður.“ Frásagnir sjómanna um óveður
Jón Jónsson, þjóðfræðingur: “… og geymir svo lík hans í grænum þara.” Sjóslys á Ströndum á 19. öld Þjóðfræðingar í hópi heimafólks troða upp með hæfilegri blöndu af krassandi sögum, fróðleik og fræðum.
Dúllurnar með tónlistaratriði og kyngimagnað kvöldkaffi á boðstólum hjá Sauðfjársetrinu.
Verið öll hjartanlega velkomin á þjóðtrúarkvöldvökuna!
