Fimmtudaginn 10. september kl. 10:10 ætlum við að hlaupa saman skólahringinn. Í boði eru 2,5km, 5 og 10 km. Hlaupið hefst fyrir utan grunnskólann. Dagurinn er einnig gulur dagur, vitundarvakning um geðrækt og hvetjum við alla til að klæðast gulu þennan dag. Viðburðurinn tengist jafnframt verkefninu Göngum í skólann sem hefst miðvikudaginn 9. september. Tökum þátt, hreyfum okkur saman og sýnum samstöðu! Öll hjartanlega velkomin Grunnskólinn á Hólmavík
Ólympíuhlaup ÍSÍ
Dags
10. september
Kl.
10:10 - 11:30
Staðsetning
Grunnskólinn á Hólmavík
Gulur fimmtudagur og Ólympíuhlaup ÍSÍ
