Fara í efni

Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2026

Dags
10. júlí kl. 17:30 -
12. júlí kl. 16:00
Staðsetning
Sævangur
Náttúrubarnahátíðin verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi, þar sem Náttúrubarnaskólinn er til húsa.
Deildu

Langar þig að komast í betri tengsl við þitt innra náttúrubarn? Á Náttúrubarnahátíð á Ströndum 10.-12. júlí gefst þér tækifæri til að finna og rækta náttúrubarnið í þér á skemmtilegri dagskrá fullri af allskonar fróðleik og fjöri!

Náttúrubarnahátíðin er fjölskylduhátíð og verður aðgangur ókeypis 🌱

Það er einnig frítt fyrir hátíðargesti að gista í tjaldi á Kirkjubóli sem er rétt hjá Sævangi en það er ekki eiginlegt tjaldstæði og ekki aðgangur að rafmagni. Það er frábært tjaldsvæði á Hólmavík þar sem er rafmagn og ýmsir gististaðir í nágrenninu.

Veitingasala er á Sauðfjársetrinu (Kaffi Kind) alla helgina og er þar nóg úrval af allskonar réttum bæði fyrir grænkera og aðra.

ÆVINTÝRI - UPPLIFUN - ÚTIVIST - SKEMMTUN - FRÓÐLEIKUR

Dagskrá:
Föstudagur 10. júlí
17:30 Fjölskyldugönguferð í fjörunni
18:30 Setning hátíðarinnar og veðurgaldur
18:30 Hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur (grænmetis og ekki) og ís í Sævangi
19:00 Mögnuð töfrasýning með Jóni Víðis
20:00 Æsispennandi Náttúrubarnakviss

Laugardagur 11. júlí
12:00 Náttúrujóga
13:00 Sólmyrkvastuð með Stjörnu-Sævari
14:00 Náttúrufjör: Kajakar, bogfimi, Strandahestar, tilraunastofan, náttúrubingó, pínulítil lífveru tattú með Náttúruminjasafni Íslands, Ullarævintýri með Fine Foods, skrifað með fjöðrum, grillaðar pylsur og fleira
15:30 Spennandi fjörudýrasmiðja með Náttúruminjasafni Íslands
17:00 Stórskemmtileg leikjasmiðja með töframanninum Jóni Víðis
18:00 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið
18:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur og súpu
20:00 Fjölskyldutónleikar með Gunna og Felix
21:15 Drauga- og tröllasögur í Sagnahúsinu

Sunnudagur 12. júlí
11:00 Núvitundarævintýri
12:00 Sirkús Ananas með stórskemmtilega sýningu
12:30 Hægt að kaupa grillaðar pylsur, súpu og ís
13:00 Skapandi náttúrusmiðja með Arfistanum
15:00 Fjölskylduplokk

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér: Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2026 | Facebook

Til baka í yfirlit