Fara í efni

LITALAND – LEIKHÓPURINN LOTTA UM ALLT LAND Í SUMAR

Dags
6. júní
Kl.
18:00 - 19:00
Staðsetning
Braggatún
Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna.
Deildu

Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.

Vanalegt miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) en Strandabyggð hefur ákveðið að niðurgreiða miðaverðið fyrir alla sem mæta á sýninguna og kostar því eingöngu 3.000 krónur inn. Það er því eingöngu hægt að kaupa miða á staðnum á þessum viðburði.

 

Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir

Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson & Sumarliði V Snæland Ingimarsson

Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson

Höfundur lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson

Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Búningahönnun: Aldís Gyða Davíðsdóttir, Ídris R. Berman, Rósa Ásgeirsdóttir

Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson

Leikmunir: Leikhópurinn

Viðburður á Facebook má finna hér: LITALAND - Leikhópurinn Lotta á Hólmavík | Facebook

Ef veður er óhagstætt fyrir útisýningu verður sýningin færð inn í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar og verður það þá tilkynnt á Facebook viðburðinum. 

Til baka í yfirlit