Fara í efni

Leik og Sprell söng- og leiklistarnámskeið

Dags
6. júlí kl. 09:00 -
10. júlí kl. 12:00
Staðsetning
Félagsheimilið á Hólmavík
Stórskemmtilegt söng- og leiklistarnámskeið þar sem sköpuð er glæný og glæsileg sýning og sýnt fyrir aðstandendur. Stútfullt af leikjum, söng og sprelli!
Deildu

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.

5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Diljá Pétursdóttir.

Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is

Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!

Til baka í yfirlit