Fara í efni

Fimmbíó Púkans og UngRIFF

Dags
1. maí
Kl.
17:00 - 18:30
Staðsetning
Félagsheimilið á Hólmavík
Föstudaginn 1. maí klukkan fimm verður hátíðasýning á stuttmyndunum sem urðu til á kvikmyndanámskeiði Púkans og UngRIFF sem haldið var á dögunum.
Deildu

Nemendur frá Reykhólum, Hólmavík og Drangsnesi tóku þátt og sýndu ótvíræða hæfileika á sviði kvikmyndagerðar. Sýnt verður á sviðinu í Félagsheimilinu á Hólmavík, en þar hefur verið sett upp fyrirtaks bíóaðstaða. Leiðbeinandinn á námskeiðinu, Erlingur Óttar Thoroddsen kvikmyndaleikstjóri, verður á staðnum en eftir sýningu myndanna verða stuttar umræður um verkefnið. Leikskólakórinn syngur tvö lög um hafið undir stjórn Andra Freys, en hafið er einmitt meginviðfangsefni Púkans að þessu sinni. Eins og vera ber á öllum alvöru bíósýningum verður selt popp, en það er á vegum unglingastigsins á Hólmavík, sem eru í fjáröflun.

Við vonum til að sjá ykkur sem flest. Þetta eru skemmtilegar myndir og þið verðið ekki svikin. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Til baka í yfirlit