Epli og tré. Undanfarinn áratug hef ég oft á tíðum dvalið á sveitabæ í Danmörku þar sem eplatré standa í röðum. Mjög framandi fyrir Íslendinginn sem ekki hefur vanist því að ganga á eplum sem fallið hafa af trjánum í heimkeyrslunni. Epli, epli, epli út um allt. Ég hugsa til fyrstu einkasýningar minnar 1994 sem einmitt fjallaði um epli, og þá sem tákn um freistingu. Epli sem táknmynd hafa mikið verið notuð í gegnum listasöguna og hef ég einnig haft gaman af að leika mér með þau á ýmsan máta. Tjáning mín í listsköpun hefur á undanförnum þrjátíu árum aðallega fengið farveg með timbri. Þar hef ég mótað hugmyndir og fellt niðurskorið iðnaðartimbur að verkum mínum, og timburilmur verið hluti af heimilishaldi mínu. Oft á tíðum hafa verkefnin flætt um allt hús og tekið þannig yfir heimilið. Í gegnum öll þessi ár hef ég smám saman öðlast meiri virðingu fyrir hráefninu og uppruna þess. Síðastliðið haust hóf ég smíði á trjám úr timbri sem fallið hefur til á vinnustofu minni. Iðnaðartimbur sem kemur úr sænskum skógum, heflað og sagað til að verða að húsi, húsgögnum eða sólpalli. Það endar á vinnustofunni hjá mér og verður að tréskúlptúr. Með þessari vinnu gef ég timburafgöngum tækifæri til að verða að stoltu tré á ný. Síðastliðið haust hóf ég einnig að teikna dönsk og norsk eplatré sem voru í görðum þar sem ég dvaldi í listamannadvöl. Þannig komst ég í náin kynni við eplatréð sjálft. Sýningin í Smíðahúsinu á Hólmavík er hugleiðing um tengsl í náttúrunni og hvernig náttúran nærir bæði okkur mannfólkið og sjálfa sig. Tré og plöntur hafa rótarkerfi innan hverrar tegundar, og um það fer gríðarsterkt samskiptanet. Þannig huga þau að skógarbotni jafnt sem sólarljósi fyrir uppvaxandi einstaklinga. Sýnt hefur verið fram á þessa tjáningu eða tungumál lífvera, ótrúlega flókin og fjölþætt boðskipti. Eplin sem í boði eru gefa dásamlegan ilm þegar bitið er í og framkalla um leið skemmtilegt hvellt hljóð sem ómar inn á milli trjánna ef grannt er hlustað. Ferilskrá Aðalheiðar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23. júní 1963 og bjó þar til 1986, þegar hún fluttist til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989 - 93 og hefur síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að setja upp ríflega 200 einkasýningar í 14 löndum á 30 ára ferli. Verk hennar má finna á opinberum stöðum víða um land, á Listasafninu á Akureyri, Listasafni Reykjanesbæjar og í einkasöfnum bæði á Íslandi og erlendis. Aðalheiður starfrækti Kompuna, gallerí á Akureyri í 8 ár, tók virkan þátt í uppbyggingu Listagilsins á Akureyri og er einn af stofnendum Verksmiðjunar á Hjalteyri. Hún hefur verið gjaldkeri Gilfélagsins á Akureyri, varaformaður Myndlistafélagsins á Akureyri og er félagi í SÍM og Myndhöggvarafélaginu. Árið 2000 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar og sama ár hóf hún þátttöku í Dieter Roth akademíunni. Aðalheiður hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun ríkisins og var útnefnd Bæjarlistamaður Fjallabyggðar fyrir árið 2022. Í desember 2011 keypti Aðalheiður Alþýðuhúsið á Siglufirði og hefur komið upp vinnustofu þar. Einnig stendur hún fyrir Listahátíðum og hefur endurvakið Kompuna í litlu rými þar. Aðalheiður hlaut menningarverðlaun DV árið 2015 og var tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2017 og 2020 fyrir starfið í Alþýðuhúsinu og hlaut síðan Eyrarrósina 2023. Helstu einkasýningar Aðalheiðar eru 40 sýninga röð sem sett var upp í 14 löndum í tilefni af fertugs afmæli hennar, 50 sýninga röð í tilefni af fimmtugs afmælinu og 60 gjörningar á 6 dögum hringinn um landið í tilefni af sextugs afmælinu. Sýning í Non Space Árósum 2015, Listasafnið á Akureyri 2019, Ráðhússalur Siglufjarðar 2022. Hof menningarhús á Akureyri 2023, Safnasafnið Svalbarðsströnd 2024. Sjá nánari feril á heimasíðunni. Aðalheiður býr og starfar í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og í Freyjulundi 604 Akureyri. adalheidur@freyjulundur.is www.althyduhusid.com - sími: 865-5091
Epli og tré - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Dags
4. júlí kl. 12:00 -
26. júlí kl. 16:00
26. júlí kl. 16:00
Staðsetning
Smíðahúsið
Opnun á sýningu Aðalheiðar Sigríðar Eysteinsdóttur Epli og tré, í Smíðahúsinu á Hólmavík.
