Nú er kominn fjólublár bekkur við kirkjuna en fjólublár er alþjóðlegur litur vitundarvakningar um heilabilun. Tilgangur göngunnar er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu. Þá er þetta jafnframt liður í því að stuðla að líkamlegri og félagslegri virkni sem eru mikilvægir þættir almennrar heilsu. Því viljum við bjóða ykkur í göngu sem byrjar við bekkinn fyrir neðan vitann og endar hjá fjólubláa bekknum við kirkjuna. Á leið okkar upp í kirkju munum við stoppa við nokkra bekki þar sem sögð vera nokkur orð áður en haldið er áfram. Þegar komið er upp í kirkju fáum við okkur svo smá kaffisopa saman og njótum samverunar💜 Hlökkum til að sjá ykkur! Laufey Heiða og Elísa Mjöll
Bekkjaganga á Hólmavík
Dags
12. september
Staðsetning
Bekkurinn fyrir neðan vitann
Göngum saman og vekjum athygli á heilabilun💜
