Fara í efni

Íþróttamiðstöð og sundlaug

Á Hólmavík er glæsileg íþróttamiðstöð, sundlaug og íþróttahús. Sundlaugin var tekin í notkun 17. júlí 2004, en íþróttahúsið í janúar 2005.

Vetraropnun 1. sept - 31. maí 

Mánudaga til fimmtudaga 9:00 til 21:00
Föstudaga                          9:00 til 16:00
Laugardaga                        11:00 til 15:00
Sunnudaga                         14:00 til 18:00
 

Sumaropnun 1. júní - 31. ágúst

Alla daga frá 9:00 til 21:00

Breytingar á opnunartíma og aðrar tilkynningar eru settar inn á Facebook síðu Íþróttamiðstöðvarinnar

Sveitarfélagið Strandabyggð býður öllum íbúum í sveitarfélaginu 17 ára og yngri og örorku- og ellilífeyrisþegum í Strandabyggð frítt í sund árið 2025. Árskortanna má vitja í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Þá fá atvinnuleitendur í Strandabyggð frítt í sundlaug, þreksal og opna íþróttatíma í íþróttahúsinu gegn staðfestingu frá Vinnumálastofnun.

Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum mega þeir sem eru yngri en 10 ára ekki fara einir í sund. Allir sem verða tíu ára á almanaksárinu mega fara einir í sund eftir 1. júní. Yngri einstaklingar verða að vera í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri sem má ekki hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann. 

Til ákvörðunar um hvort sundlaug sé opin vegna kælingar er notuð viðmiðunartafla vindkælingar. Taflan sýnir áhrif vinds til kælingar á sundlaug. Ef vindur er t.d. 5 metrar á sekúndu (m/s) og lofthiti -5°C þá er kæling á við -14°C í logni. Ef vindur er 8 m/s og lofthiti við frostmark er kælingin -14°C. Sjálfvirk veðurstöð er við sundlaugina og hún notuð við ákvörðun um opnun sundlaugar. Pottur er opinn eftir sem áður og gufubaðið.

Helga Rut Halldórsdóttir
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis
Gústaf Hrannar Magnússon
Starfsmaður íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis
Aleksander Kuzmanic
Starfsmaður íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis
Silja Dagrún Júlíusdóttir
Starfsmaður íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis