Fara í efni
Laus störf

Tónlistarkennari

Umsóknarfrestur: 07.05.2026
Fullt starf

Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla, flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Uppeldisstefnu jákvæðs aga er fylgt og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast almenna tónlistarkennslu og skipulag í samstarfi og samráði við skólastjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Strandabyggð, sem skiptist í þéttbýlið Hólmavík og dreifbýli, er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni á norðanverðum Vestfjörðum. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, og margt spennandi framundan í uppbyggingu samfélagsins. Stutt er í fallega náttúru og friðsælt umhverfi sem einkennist af fjöllum og friðsælum fjörðum. Þetta svæði er fullkomið fyrir þá sem vilja tengjast náttúrunni, njóta kyrrðarinnar og á sama tíma búa í nánd við heillandi menningu og heimamenn.

Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða fullt starf eða eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Nánari upplýsingar

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri – skolastjori@strandabyggd.is

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi – stefania@hagvangur.is

Hægt er að sækja um starfið í gegnum umsóknarsíðu Hagvangs: Tónlistarkennari - Strandabyggð - Hagvangur