Fara í efni
Laus störf

Þroskaþjálfi

Umsóknarfrestur: 07.05.2026
Fullt starf

Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla, flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Uppeldisstefnu jákvæðs aga er fylgt og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita nemendum með sérþarfir leiðsögn og stuðning
  • Halda utan um og stýra teymi einstakra nemenda í samráði við stjórnendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við sérkennara og fylgja þeim eftir
  • Mæta þörfum nemenda á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt til að auka félagsfærni, virkni og tilfinningaþroska
  • Að veita faglega ráðgjöf til kennara og stuðningsaðila
  • Aðlaga og hanna námsumhverfi svo það henti fjölbreyttum nemendahópi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
  • Þekking og reynsla af starfi með börnum með sérþarfir
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Þekking á PEERS og TEACCH er kostur
  • Hreint sakavottorð

Strandabyggð, sem skiptist í þéttbýlið Hólmavík og dreifbýli, er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni á norðanverðum Vestfjörðum. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, og margt spennandi framundan í uppbyggingu samfélagsins. Stutt er í fallega náttúru og friðsælt umhverfi sem einkennist af fjöllum og friðsælum fjörðum. Þetta svæði er fullkomið fyrir þá sem vilja tengjast náttúrunni, njóta kyrrðarinnar og á sama tíma búa í nánd við heillandi menningu og heimamenn.

Um er að ræða 100% starfshlutfall. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands eða Iðjuþjálfafélags Íslands. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Nánari upplýsingar

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri – skolastjori@strandabyggd.is

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi – stefania@hagvangur.is

Hægt er að sækja um í gegnum umsóknarsíðu Hagvangs: Þroskaþjálfi - Strandabyggð - Hagvangur