Starf sveitarstjóra Strandabyggðar er laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að leiða þróun og daglegan rekstur sveitarfélagsins og takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Áhersla er lögð á áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins, eflingu atvinnulífs og góða þjónustu við íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
- Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
- Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur funda og upplýsingagjöf
- Samskipti við íbúa, samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki og samtök
- Að gæta hagsmuna Strandabyggðar út á við og vera talsmaður sveitarfélagsins
- Stefnumótun og mótun framtíðarsýnar í lykilmálaflokkum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
- Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum
- Mjög góð tjáningarhæfni í ræðu og riti
- Reynsla af stefnumótun og kynningar-/ímyndarmálum er kostur
Í Strandabyggð búa rúmlega 400 íbúar og er Hólmavík helsti þéttbýlisstaðurinn. Atvinnulíf er fjölbreytt og byggir m.a. á sjávarútvegi, ferðaþjónustu og þjónustustarfsemi. Í sveitarfélaginu er öflugt skólastarf og menningarlíf, sem og góð íþrótta- og tómstundaaðstaða. Strandabyggð býður upp á einstök lífsgæði í fallegu umhverfi þar sem stutt er á milli fólks og tækifæra.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu.
Við val á umsækjanda verður horft til hæfni, reynslu og þeirrar sýnar sem best samræmist markmiðum sveitarfélagsins. Strandabyggð áskilur sér rétt til að birta lista yfir nöfn umsækjenda opinberlega að umsóknarfresti liðnum.
Nánari upplýsingar veita
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir ráðgjafi – stefania@hagvangur.is
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir oddviti – hrafnhildur.th@strandabyggd.is
Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri – salbjorg@strandabyggd.is