Umhverfis- og skipulagsnefnd
25. fundur
25. júní 2026
kl.
17:00
-
18:30
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Formaður
Jóhann L. Jónsson
Aðalmaður
Sigríður Guðmundsdóttir
Aðalmaður
Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Aðalmaður
Þorgeir Pálsson
Varamaður
Starfsmenn
Grettir Örn Ásmundsson
Embættismaður
Hlynur Torfi Torfason
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Grettir Örn Ásmundarson
Byggingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um byggingarleyfi að Kópnesbraut 27
Borist hafa athugasemdir vegna umsóknar um byggingarleyfis að Kópnesbraut 27 og eru þær eftirfarandi:
1. Við gerum athugasemd við stærð hússins. Samkvæmt upplýsingum sem við fengum
átti það ekki að vera svona stórt.
2. Hvernig á að bæta gatnakerfið í ljósi nýbygginga?
3. Er gert ráð fyrir gangstétt þegar gatan verður tekin í gegn?
4. Hvernig verður aðkoman að okkar húsi þegar það verður farið að grafa fyrir skolpi og
öðru?
5. Hvað á að gera við jarðvegsúrganginn sem kemur frá byggingarlóðum?
6. Verður jarðvegsúrgangurinn nýttur til uppfyllingar á vegi?
7. Verður vegurinn breikkaður eða færður?
8. Við viljum fá að vita hæðarkvóta á vegi til að geta undirbúið lagfæringar á
innkeyrslunni okkar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur athugasemdir
1. Umsóknaraðili hefur fallist á að minnka húsið niður 90 - 100m2 og nýjar teikningar eru í vinnslu og verða kynntar hlutaðeigandi.
2, 3, 7 og 8 Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur við sveitarstjórn að sveitarstjórn skoði framtíðaráform gatnagerðar í Kópnesbraut.
4, 5 og 6 Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til framkvæmdaraðila að lágmarka rask og ónæði á framkvæmdartíma eftir fremsta megni og halda nágrönnum upplýstum.

2.
Tillaga að bættu rafkerfi á Hólmavík
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur engar athugasemdir við framkomnar tillögur og tekur jákvætt í fyrirhugaðar breytingar. Nefndin telur að staðsetning nýrrar spennistöðvar ofan Borgabrautar virðist henta vel.
3.
Beiðni um leyfi fyrir uppsetningu á minningarbekk á Hólmavík
Umhverfis- skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið beinir því til sveitarstjórnar að samþykkja erindið.
4.
Umsókn um smávægilega breytingu á útliti að Borgabraut 9
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila þessa óverulegu breytingu.
5.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna ljósleiðaravæðingar á Hólmavík
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framkvæmdarleyfisumsókn Mílu hf varðandi lagningu ljósleiðara á Hólmavík.