Umhverfis- og skipulagsnefnd
8. fundur
8. október 2026
kl.
17:00
-
20:00
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Formaður
Jóhann L. Jónsson
Aðalmaður
Sigríður Guðmundsdóttir
Aðalmaður
Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Aðalmaður
Þorgeir Pálsson
Varamaður
Starfsmenn
Grettir Örn Ásmundsson
Embættismaður
Hlynur Torfi Torfason
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Grettir Örn Ásmundarson
Byggingafulltrúi
Dagskrá
1.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi, kvíslatunguvirkjun
2.
Breyting á deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjunar
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjun. Tillagan er sett fram á sjö uppdráttum og er greinargerð á uppdrætti A. Skipulagsgögnin eru dags. 18. september 2026. Tillagan er gerð samhliða samsvarandi aðalskipulagsbreytingu (mál nr. 1 í fundargerð).
Breytingin er gerð með hliðsjón af minniháttar breytingum á framkvæmdarhönnun og rannsóknum á jarðefnum til efnistöku. Breytingin felur i sér tilfærslu á veglínu vinnuvega, breytingar á staðsetningu og afmörkun efnistökusvæða, framkvæmdareita, lóðamörkum og byggingareita. Áhrif breytingar eru metin óveruleg á alla umhverfisþætti og mjög áþekk áhrifum gildandi deiliskipulags.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjunar til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.
Framkvæmdaleyfi í tengslum við Kvíslatunguvirkjun
Lagt fram erindi Orkubús Vestfjarða dags. 28. september 2026 þar sem sótt eru um framkvæmdaleyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun. Meðfylgjandi eru fylgigögn ásamt greinargerð þar sem m.a. má finna framkvæmdalýsingu, upplýsingar um staðhætti, skipulagsmál, leyfismál, mat á umhverfisáhrifum, vöktun, eftirlit og mótvægisaðgerðir, yfirlit yfir skilyrði og skuldbindingar OV. Um er að ræða meginframkvæmdir við virkjunina en áður hefur Strandabyggð veitt tvö framkvædmaleyfi árið 2025 vegna undirbúningaframkvæmda hennar þ.e vegagerð í Selárdal og upp Leitishlíð, uppsetningu vinnubúða, plægingar rafstrengs og ljósleiðara í dalnum auk tilheyrandi efnistöku.
Gert er ráð fyrir að meginþungi virkjanaframkvæmda verði sumrin 2027 og 2028. Fyrir liggur umhverfismat frá árinu 2024 og deiliskipulag frá árinu 2025. Umhverfis- og Orkustofnun gaf út virkjunarleyfi og heimild til breytinga á vatnshlotum virkjunarinnar 1. júlí 2026.
Unnið er að minni háttar breytingum á deiliskipulagi virkjunarinnar og Aðalskipulagi Strandabyggðar 2024-2036 til samræmis við breytta hönnun sem m.a. taka til breyttrar veglegu vinnuvega og efnistökusvæða. Tillögur að breytingum á deiliskipulagi og aðalskipulagi eru sendar samhliða þessari umsókn (sbr. mál 1 og 2 í fundargerð).
Fyrir liggur að breyting á efnistöku er tilkynningarskyld til ákvörðunar um matskyldu skv. 19. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, sbr. tl. 13.02 í lögunum. Framkvæmdaaðili vinnur að gerð tilkynningar (október 2026).
Umsóknin um framkvæmdaleyfi er með fyrirvara um gildistöku skipulagsbreytingana og ákvörðunar HMS um matskyldu efnistöku.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur farið yfir erindið og felur skipulagsfulltrúa að taka saman drög að greinargerð um afgreiðslu leyfis í samræmi við 14. gr. skipulagslaga um framkvæmdaleyfi vegna matsskyldra framkvæmda og leggja fram á næsta fundi nefndar.
Endanlegri afgreiðslu umsóknar er frestað til næstu funda umhverfis- og skipulagsnefndar þegar ferli tengdra skipulagsbreytinga og matskylduákvörðunar eru lengra komin.

4.
Yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála
Erindið var lagt til kynningar og Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að nú er í bígerð 30 íbúða hverfi og þessi niðurstaða hjá HMS er líklegast búin til af misskilningi.
5.
Erindi T-lista. Hundagerði á Hólmavík
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að nota megi Skeljavíkur réttargirðinguna undir hundagerði á Hólmavík, en gera verði umgengnisreglur varðandi svæðið.
6.
Sumarhúsabyggð í Skeljavík
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að það sé mikil þörf á skipulagsvinnu og endurskoða þurfi þéttbýlismörk og skipulagsforsendur til uppbyggingar í Skeljavík og Grundum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir heimild sveitarstjórnar til að hefja þessa breytingu á aðalskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir heimild sveitarstjórnar til að hefja þessa breytingu á aðalskipulagi.
7.
Erindi til sveitarstjórnar - beiðni um stækkun úthlutaðs svæðis fyrir leikvöllinn Lilla Róló
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur þegar afgreitt erindið og mælti með tillögu 2, og óskar eftir að sveitarstjóri komi málinu í framkvæmd.
8.
Vinabær
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til 3 möguleg svæði í námunda við grunnskólann og í samráði við stjórnendur grunnskólans, foreldra og börn.
9.
Erindi til sveitarstjórnar. Áhrif 16. gr. laga nr. 551992 byggingar eru reistar á svæðum fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.
Erindi frá Náttúrhamfaratryggum Íslands er lagt til kynningar, umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa að kanna hvort hættusvæði séu í byggð í Strandabyggð.
10.
Beiðni - Botnlangaskilti á Borgabraut
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarsstjórn að koma því í framkvæmd.
11.
Umsókn um framkvæmdarleyfi á Hólmavík
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
12.
Umsókn um uppsetningu á Egnos (gps leiðréttingarkerfi fyrir flug)
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fresta erindinu og óskar eftir kynningarfundi með framkvæmdaraðilum.
13.
Umsókn um stofnun lóðar að Gerimundastöðum - Kvíslatunguvegur
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn um stofnun lóðar Kvíslatunguvegar.
14.
Skriðnesenni, breyting á opinberu heiti
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja beiðnina.