Umhverfis- og skipulagsnefnd
5. fundur
5. febrúar 2026
kl.
17:00
-
18:00
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Matthías Sævar Lýðsson
Formaður
Atli Már Atlason
Aðalmaður
Guðrún Elínborg Þorvaldsdóttir
Aðalmaður
Árni Magnús Björnsson
Varamaður
Marta Sigvaldadóttir
Varamaður
Starfsmenn
Grettir Örn Ásmundsson
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Grettir Örn Ásmundarson
Byggingafulltrúi
Dagskrá
1.
Orkuvinnslan ehf, Breyting á aðalskipulagi Strandabyggðar, Hafnardalsárvirkjun
Lögð er fram tillaga að breytingu Aðalskipulagi Strandabyggðar 2024-2036, sem gerir ráð fyrir 1,5 MW vatnaflsvirkjun í Hafnardalsá ásamt viðauka um vatnshlot. Tillagan er lögð fram til afgreiðslu fyrir auglýsingu, skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, Vinnslutillagan var auglýst frá 17. desember 2025 til 7. janúar 2026. Umsagnir bárust frá 7 aðilum. Skipulagsstofnun óskaði eftir fresti til umsagnar til loka janúar og skilaði sinni umsögn þann 29. janúar 2026, sbr. minnisblað um viðbrögð við umsögnum um vinnslutillögu. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna og hún fari í lögbundinn farveg. Formaður nefndarinnar bendir á að leita þurfi samþykki vatnsréttarhafans fyrir nýtingu vatnsins.
2.
Mýrebella ehf, umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu í Steinadal
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina og fela byggingarfulltrúa að afgreiða málið.
3.
Sorpsamlag Strandasýslu ehf, Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Skeiði 3
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur fullan skilning á þeirri þörf að stækka rýmið en beinir því til sveitarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að gæta að samræmi viðbyggingar og núverandi húss og vanda til verka varðandi byggingarefni og burðarþol.
4.
Umhverfis- og skipulagsnefnd 5 febrúar 2026 - Önnur mál
Önnur mál.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að stofna lóðir við Kópnesbraut.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að stofna lóðir við Kópnesbraut.