Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

4. fundur
3. júní 2026 kl. 17:00 - 17:49
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson Formaður
Jóhann L. Jónsson Aðalmaður
Pétur Matthíasson Aðalmaður
Guðfinna Lára Hávarðardóttir Aðalmaður
Árni Magnús Björnsson Aðalmaður
Starfsmenn
Grettir Örn Ásmundsson Embættismaður
Hlynur Torfi Torfason Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Grettir Örn Ásmundarson Byggingafulltrúi
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjunar
Málsnúmer 2605052
Lagt var fram erindi Orkubús Vestfjarða dags. 29. maí 2026 þar sem óskað er heimildar til að vinna breytingu á deiliskipulaginu, samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga. Orkubúið hefur unnið að áframhaldandi hönnun virkjunarinnar frá gildistöku deiliskipulagsins og ljóst er að gera þarf breytingar á skipulaginu. Þær felast í lítilsháttar breytingum á afmörkun framkvæmdareita og hliðra þarf byggingareit stöðvarhúss um nokkra metra. Virkjunarvegur verður fluttur norður fyrir inntakslón sem mun draga úr mannvirkjagerð þar sem óþarfi verður að brúa yfirfall. Mögulega þarf einnig að hliðra eða færa efnistökusvæði og/eða haugsetningarsvæði, en í sumar verða gerðar rannsóknir á efnisgæðum og efnismagni á svæðinu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita OV heimild til að vinna deiliskipulagsbreytinguna. Einnig felst nefndin á að fallið verði frá kynningu breytingartillögu á vinnslustigi þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í Aðalskipulagi Strandabyggðar 2024-2036 (sbr. heimild í 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga).

2.
Umsókn um byggingarleyfi að Skeiði
Málsnúmer 2605051
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn um byggingarleyfi og veita einnig leyfi til breytinga á innra skipulagi. Grenndarkynning hefur þegar farið fram án athugasemda.
3.
Önnur mál
Málsnúmer 2606040
a. Grenndarkynning á Kópnesbraut 29-31. Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að yfirfara og leiðrétta orðalag ÍB-2 varðandi fjölda óbyggðra lóða í aðalskipulagi Strandabyggðar 2024-2036.
3. Önnur mál a. Grenndarkynning á Kópnesbraut 29 ? 31. Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að yfirfara og leiðrétta orðalag ÍB-2 varðandi fjölda óbyggðra lóða í aðalskipulagi Strandabyggðar 2024 ? 2036. Fundi slitið kl. 17:49