Tómstunda, íþrótta og menningarmálanefnd
91. fundur
7. maí 2026
kl.
17:00
-
17:42
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Júlíana Ágústsdóttir
Formaður
Þórdís Karlsdóttir
Aðalmaður
Árni Magnús Björnsson
Varamaður
Magnea Dröfn Hlynsdóttir
Aðalmaður
Kristín Anna Oddsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórdís Karlsdóttir
nefndarmaður
Dagskrá
1.
Sumarnámskeið 2026
Ekkert sumarnámskeið er áætlað í sumar á vegum Strandabyggðar, skýrist það að miklu leiti vegna þess að ekki hefur verið starfandi Tómstundafulltrúi hjá Strandabyggð undanfarið. Nú er búið að ráða Sjöfn Sæmundsdóttur og kemur hún til starfa í ágúst. Umf. Geislinn hefur tekið að sér að skipuleggja sumarnámskeið í ár og hefur fengið Hallberu Gunnarsdóttur til þess að koma og vera með námskeið tvær vikur í júní. Þá verður söng- og leiklistarnámskeið fyrir 6-13 ára á Hólmavík eina viku í júlí á vegum hópsins Leik og Sprell sem verður á ferð um allt land í sumar.
2.
Menningarverðlaun 2026
Nefndin fór yfir innsendar tilnefningar og komast að sameiginlegri niðurstöðu um tilnefningu. Menningarverðlaun Strandabyggðar verða afhent við hátíðlega athöfn á Þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
3.
Önnur mál
Rætt ýmislegt varðandi íþrótta- og menningarmál sem hafa verið haldin í Strandabyggð undanfarin ár, svo sem mótamál HSS, Trékyllisheiðarhlaupið og bæjarhátíð. Vonandi verða sem flestir þessir viðburðir haldnir í sumar.