Fara í efni

Tómstunda, íþrótta og menningarmálanefnd

90. fundur
19. janúar 2026 kl. 17:00 - 18:20
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Júlíana Ágústsdóttir Formaður
Jóhanna Guðbjörg Rósmundsdóttir Aðalmaður
Kristín Anna Oddsdóttir Varamaður
Árni Magnús Björnsson Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Jóhanna Guðbjörg Rósmundsdóttir Nefndarmaður
Dagskrá
1.
Íþróttamaður Strandabyggðar 2025
Málsnúmer 2601025
Nefndinni bárust tilnefningar til íþróttamanns Strandabyggðar. Það var samdóma álit nefndarinnar hver hlyti verðlaunin fyrir árið 2025.

Einnig barst tilnefning til hvatningarverðlauna Strandabyggðar. Nefndin samþykkti samhljóma hver hlyti hvatningarverðlaun Strandabyggðar fyrir árið 2025.
2.
Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2026
Málsnúmer 2601028
Farið var yfir niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 og þær ræddar.
3.
Hátíðardagskrá ársins 2026
Málsnúmer 2601026
Viðburðir á vegum félagasamtaka og íbúa í Strandabyggð sem vitað er um á þessum tímapunkti:

Strandagangan í mars
Þjóðhátíðardagurinn í júní
Trékyllisheiðin í ágúst
Kótilettukvöld kvennfélagsins Glæður í nóvember
4.
Yfirferð framboða félagasamtaka, íþrótta- og tómstunda.
Málsnúmer 2601027
Nefndin ræddi um framboð félagasamtaka, íþrótta og tómstunda í Strandabyggð.
5.
Önnur mál
Málsnúmer 2601034
Rætt var um bókasafnið en það hafa verið framkvæmdir á ganginum fyrir framan bókasafnið inni í grunnskólanum, nú er hann tilbúinn.

Nefndinni er farið að lengja eftir framkvæmdum við sparkvöllinn við grunnskólann, nefndin leggur til að farið verðir í þá vinnu sem allra fyrst.