Sveitarstjórn Strandabyggðar
1397. fundur
10. nóvember 2026
kl.
16:00
-
18:30
í Hnyðju
Nefndarmenn
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Oddviti
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Varaoddviti
Andri Freyr Arnarsson
Varamaður
Kjartan Jónsson
Aðalmaður
Þorgeir Pálsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir
Ritari
Dagrún Fanný Liljarsdóttir
Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir
skrifstofustjóri
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboðið, engin athugasemd gerð við boðun fundarins.
Oddviti óskar eftir að skerpa á erindi sem var samþykkt á síðasta fundi sveitarstjórnarfundar sem var liður nr. 41, Breyting á heiti jarðarinnar Skriðinsenni.
Dagskrá
1.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp í Strandabyggð, seinni umræða
Lögð er fram til seinni umræðu Samþykkt um stjórn og fundarsköp í Strandabyggð.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Oddviti bar tillöguna fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.

2.
Fjárhagsáætlun 2027 og til næstu þriggja ára, fyrri umræða
Lögð er fram til fyrri umræðu Fjárhagsáætlun Strandabyggðar til næstu ára. Ljóst er að gæta þarf verulegs aðhalds í rekstri og huga vel að hlutverki sveitarfélagsins m.t.t. sveitarstjórnarlaga, lögbundinna verkefna og samþykkta Strandabyggðar varðandi meðferð fjármuna. Unnið verður áfram í áætlun milli umræðna á samráðsfundum sveitarstjórnar með starfsfólki og endurskoðendum og leggur oddviti til að það verði nokkuð þétt unnið.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson tók til máls og óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun Strandabandalagsins:
„Strandabandalagið gerir verulegar athugasemdir við undirbúning og framkvæmd
fjárhagsáætlanagerðar sveitarstjórnar, þar sem allt skorti í senn: stefnu, áherslur, umræðu, samráð og skoðanaskipti.Einungis tveir formlegir vinnufundir náðust fyrir fyrri umræðu. Ekki náðist að fara í formlegar heimsóknir í stofnanir sveitarfélagsins. Ekki náðist að hitta forstöðumenn og ræða þeirra áherslur. Þessi undirbúningur er á skjön við
undirbúning og verklag fyrri ára.
Fjárhagsáætlanagerð er umfram allt samráðsferli, þar sem skoðanaskipti þurfa að eiga sér stað, rökræður, mat og ígrunduð ákvörðunartaka. Það er hvorki skynsamlegt né eðlilegt að draga úr því samráði og fela einum eða fáum framkvæmd þessarar vinnu. Sveitarstjórn er nefnilega, að mati Strandabandalagsins, öll ábyrg fyrir fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins, sama hver meirihlutinn er. Núverandi meirihluti er nýr og óreyndur og einmitt þess vegna hefði þurft miklu meira samráð og „samtal“ eins og meirihlutinn talaði gjarnan um í
aðdraganda kosninga fyrr á árinu.
Það er ósk Strandabandalagsins að tíminn fram að seinni umræðu verði skipulagður vel
fyrir vinnufundi og samráð, þannig að raunsæ niðurstaða náist. Fjárhagsáætlun hvers tíma er ekki skylduskjal sem gert er til að vista í kerfi. Það er og á að vera leiðarljós sveitarfélagsins í sínum framkvæmdum, og skýr upplýsingamiðlun til íbúa um framkvæmdagetu og áherslur í uppbyggingu sveitarfélagsins“.
Oddviti tók fram að einn forstöðumaður hafi boðið í heimsókn farið hafi verið í eina stofnun.
Þorgeir Pálsson var með andsvar og taldi útskýringar oddvita léttvægar.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og tók undir með báðum aðilum og taldi þörf á að kafa dýpra í áætlun á komandi vikum og að sveitarstjórn verði að standa í fæturnar og
standa við það sem verður ákveðið.
Kjartan Jónsson tók til máls og vildi taka fram að samstaða væri meðal sveitarstjórnar á samráðsfundum. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Þorgeir Pálsson tóku undir það.
Fjárhagsáætlun vísað áfram til seinni umræðu. Samþykkt samhljóða.

3.
Gjaldskrá leikskóla 2027
Lagðar eru fram útfærslur á gjaldskrá leikskóla með tilliti til skráningardaga og viðveru á föstudögum.
Oddviti gaf orðið laust. Kjartan Jónsson tók til máls og lagði til að erindinu yrði vísað til Fræðslunefndar til umfjöllunar.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og styður tillögu Kjartans Jónssonar.
Þorgeir Pálsson tók til máls og benti á að æskilegt væri að fræðslunefnd myndi funda fljótlega til að umræður fundarins nýttust í umræður á samráðsfundi sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkti samhljóða að vísa erindinu til Fræðslunefndar.

4.
Gjaldskrár 2027
a. Lögð er fram gjaldskrá vegna Vatnsveitu Strandabyggðar sem er vísitölubundin
gjaldskrá. Engar breytingar eru gerðar á gjaldskránni sjálfri.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson. Skrifstofustjóri tók til máls til útskýringar.
Gjaldskráð lögð fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
b. Einnig er lögð er fram gjaldskrá fyrir stofngjöld fráveitu, fráveitugjalda og rotþróargjalda í Strandabyggð sem er vísitölubundin gjaldskrá. Lögð er fram breyting á á gjaldskránni sjálfri þ.e rotþróarhreinsunargjaldi, en lögð er til hækkun til að mæta kostnaði við losun.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson og skrifstofustjóri sem útskýrði hækkun gjaldskrár.
Gjaldskrá lögð fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða

5.
Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030
Lögð er fram tillaga að svæðisbundinni forgangsröðun aðgerða Farsældarráðs Vestfjarða 2026-2030.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem óskar eftir að leggja fram bókun Framsóknar og óháðra:
“Við tökum undir þá forgangsröðun og mikilvægi þeirra markmiða sem lögð eru til í svæðisbundinni farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030. Við bendum einnig á að farsældarverkefninu fylgir mikil kostnaður á sveitarfélögin sem getur reynst minni sveitarfélögum þungur baggi. Því er það ávallt brýnt þegar stjórnvöld leggja verkefni sem þetta á hendur sveitarfélagana að raunkostnaður sé metinn og fjármögnun fylgi í takt til sveitarfélaganna. Sé það raunverulegur vilji alþingis að hrinda slíkri framkvæmd í verk verður alþingi að tryggja á hverjum tíma það fjármagn sem þarf til að mæta raunkostnaði.?
Þorgeir Pálsson tók til máls og sagði þetta metnaðarfulla áætlun en hún hljóti að kosta verulega fjármuni.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson vill taka fram ánægju sína vegna þessarar áætlunar en verkefnum frá ríkinu þurfi að fylgja fjármagn.
Tillagan er lögð fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
Þorgeir Pálsson óskar eftir að gera grein fyrir atkvæði sínu. Með samþykki á áætluninni þá séum við jafnframt verið að samþykkja að setja fjármagn í þessa vinnu og það þurfi að taka inn í fjárhagsáætlunarumræðu.

6.
Innviðaráðuneytið, áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir
Innviðaráðuneytið kynnir áform um endurskoðun lagaumgjarðar byggðatengdra veiðiheimilda. Endurskoðunin tekur til strandveiða, almenns byggðakvóta, sértæks byggðakvóta Byggðastofnunar, línuívilnunar og skel- og rækjubóta. Markmiðið er að skýra tilgang einstakra úrræða, einfalda framkvæmd og stuðla að því að ráðstöfun aflaheimilda styðji með markvissari og mælanlegri hætti við atvinnu og búsetu í minni sjávarbyggðum.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls:
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson óskar eftir að leggja fram bókun frá Framsókn og óháðum sem sýnir áherslur þeirra:
„Framsókn og óháðir undirstrika að lagabreytingar á sviði byggðatengdra veiðiheimilda verða að taka mið af aðstæðum og lífsviðurværi íbúa í minni sjávarbyggðum. Athugasemdir og ábendingar framsóknar og óháðra felast helst í því að í lögunum eigi eftirfarandi að koma fram:
1. Skýr byggðajöfnunarskylda: Meginmarkmið kerfisins verði ótvírætt skilgreint sem atvinnusköpun, stöðugleiki og byggðarfesta.
2. Vernd gegn tekju- og atvinnutapi: Hafnað er öllum breytingum sem raska atvinnuöryggi og tekjum sveitarfélagsins út frá óraunhæfum landsmeðaltölum.
3. Stækkun pottsins: Heildarhlutfall 5,3% kerfisins verði stækkað umtalsvert svo það þjóni hlutverki sínu.
4. Fyrirsjáanleiki: Úthlutanir verði gerðar til lengri tíma í senn til að styðja við fjárfestingu og samfelldan rekstur.
5. Verðmæti í heimabyggð: Tekjur af veiðum og vinnslu gagnist á þeim svæðum þar sem þeirra er aflað.
6. Sanngirni í löndunarskyldu: Tryggt verði sanngjarnt endurgjald til þeirra sem veiða inn í löndunarskyldu.
7. Eflt gildi strandveiða: Ávinningur strandveiða verði beintengdur við styrkingu hafna og staðbundinnar vinnslu í viðkomandi sjávarbyggðum.
Framsókn og óháðir í Strandabyggð vænta þess að stjórnvöld taki þessar réttmætu kröfur til alvarlegrar athugunar og tryggi að nýr lagarrammi þjóni hagsmunum strandbyggða landsins af fullri alvöru.?
Þorgeir Pálsson tók til máls og fór yfir áhersluatriði í framkominni bókun og tók að mörgu leiti undir bókunina. Hann tók einnig fram að umsögnin þurfi að vera skýr og beittari.
Oddviti tók fram að hér séu komnar margar skýrar áherslur og góðar ábendingar.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og taldi þörf á að áherslur þyrftu að vera skýrar og útfærslur markvissar.
Oddviti lagði til að unnið verði áfram í sameiginlegri umsögn og til formlegar staðfestingar á næsta fundi sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

7.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum við samræmda grunnskráningu í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu
Oddviti kynnir að um sé að ræða innleiðingu á skráningu grunngagna um lögbundna félagsþjónustu sveitarfélaga og greiðslu kostnaðar vegna þeirrar vinnu. Um er að ræða 1400 kr. á virkan notanda á mánuði og krafa um innleiðingu þjónustukerfa.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem taldi ólíklegt að þessar kostnaðartölur muni standast. Kjartan Jónsson tók til máls og var sammála Sigurbirni. Andri Freyr Arnarsson tók undir með þeim.
Oddviti leggur til að vísa erindinu til Velferðarnefndar. Samþykkt samhljóða.

8.
Þjóðleikhúsið í leikferð - Strandabyggð, beiðni um stuðning
Oddviti kynnir heimsókn Þjóðleikhússins með sýningu fyrir unglinga og ósk um samstarf
varðandi greiðslu gistingar og húsnæði fyrir sýninguna.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og vill styðja erindið. Andri Freyr Arnarsson tók til máls og bauð fram húsnæði.
Erindið var lagt fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

9.
Samtök um karlaathvarf, Ósk um stuðning
Oddviti kynnti erindið og gaf síðan orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og taldi að í ljósi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins að erindinu yrði hafnað. Kjartan Jónsson tók undir það.
Oddviti lagði til að erindinu yrði hafnað og lagði það fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hafna erindinu.

10.
Eignarhaldsfélag Brunabótafélag Íslands, Bréf varðandi ágóðahlut EBÍ 2026
Oddviti kynnti erindið sem er hvatning til aðildarsveitarfélaganna um að nýta framlag til að
stuðla að bættum bruna-og forvörnum í sveitarfélaginu.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls. Lagt fram til kynningar.

11.
Umhverfis- og Orkustofnun, aðgerðir vegna endurskoðunar vatnaáætlunar - óskað eftir athugasemdum
Oddviti kynnti erindið en samkvæmt 8. gr. laga um stjórn vatnamála taka sveitarfélög þátt í undirbúningi vatnaáætlunar og skulu, í samvinnu við heilbrigðisnefndir framfylgja kröfum aðgerða- og vöktunaráætlunar. Samkvæmt 21. gr. skal aðgerðaáætlun taka til þeirra ráðstafana sem eru nauðsynlegar til að ná umhverfismarkmiðum vatnshlota og
markmiðum laga um stjórn vatnamála.
Oddviti gaf orðið laust. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og taldi þetta snúast að vatnshloti að Húsadalsá. Hann leggur til að erindinu verði vísað til Umhverfis- og atvinnunefndar til umfjöllunar og að óskað verði eftir fresti á skilum umsagnar þar sem
stuttur frestur er veittur sem falli ekki alveg að umhverfi sveitarstjórnarstigisins.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir samhljóða að vísa erindinu til Umhverfis- og atvinnunefndar.

12.
Öldungaráð Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Stranda, fundargerð 4.11.26
Lögð fram fundargerð Öldungaráðs þar sem fram kom m.a hvatning til sveitarfélaganna að þau birti á heimasíðum sínum yfirlit yfir þjónustu og úrræði fyrir íbúa 67 ára og eldri.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Oddviti leggur til að sveitarstjórn taki tillöguna til greina en að öðru leiti er fundargerðin
lögð fram til kynningar.

13.
Ragnheiður Ingimundardóttir, erindi til sveitarstjórnar varðandi Öldungaráð
Lagt var fram erindi frá Ragnheiði Ingimundardóttur sem er aðalfulltrúi Strandabyggðar í öldungaráði Dala, Stranda og Reykhólahrepps þar sem hún óskar eftir því Strandabyggð segi sig úr sameignlegu öldungaráði.
Oddviti vill vekja athygli á að hlutverk Öldungaráðs á Íslandi er samkvæmt lögum og á að vera formlegur samráðsvettvangur milli sveitarfélaga og eldri borgara. Ráðinu er ætlað að tryggja að hagsmunir, raddir og þarfir fólks sem er 67 ára og eldra fái rými við stefnumörkun og ákvarðanatöku í nærumhverfinu.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Þorgeir Pálsson og Kjartan Jónsson.
Oddviti lagði til að erindinu yrði vísað í umræðu Velferðarnefndar þar sem fulltrúar nágrannasveitarfélaga geta komið með umsögn.
Oddviti bar tillögu sína fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

14.
Félag eldri borgara í Strandasýslu, Afnotasamningur 2026-2030
Oddviti kynnti samninginn og gaf síðan orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson.
Oddviti lagði til að sveitarstjóra yrði falið að útfæra og undirrita samninginn. Tillagan var lögð fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

15.
Styrktar- og samstarfssamningur milli Ungmennafélagsins Geislans og Strandabyggðar
Oddviti kynnti samninginn ásamt umsögn forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar og tók fram að tveir stjórnarmenn Geislans sitji þennan fund sem kjörnir fulltrúar og leggur því til að
sveitarstjóra verði falið að útfæra og undirrita samninginn í samræmi við umræður fundarins. Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun Framsóknar og óháðra.
„Við tökum undir sjónarmið forstöðumanns íþróttamiðstöðvar. Við teljum réttætanlegt að
niðurgreiða upp að vissu marki íþróttaiðkunn barna og ungmenna undir 18 ára aldri, öryrkja og aldraða en sjáum ekki að almennt skuli greiða niður íþróttaiðkun fullorðinna. Fullorðnum gefst kostur á að kaupa tímakort eða árskort í íþróttamiðsstöð sem veita afslátt og hvetjum við alla til að nýta sér þau kjör og stunda reglulega hreyfingu í íþróttamiðstöðinni. Ennfremur eiga hópar kost á því að bóka tíma í íþróttasal gegn hóflegu gjaldi.“
Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson, Þorgeir Pálsson, Andri Freyr Arnarsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson. Skiptar skoðanir voru um málið og mikilvægt að skýra þessar línur sem fyrst.
Oddviti leggur til að sveitarstjóra verði falið að útfæra og undirrita samninginn í samráði
við umræður fundarins. Tillagan var lögð fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.

16.
Velferðarnefnd, fundargerð 64. fundar 3.11.26
Oddviti kynnti umræður fundarins og fundargerðina og gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
Fundargerðin lögð fram til kynningar
17.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundargerð 05.11.2026
Oddviti fól Sigurbirni Rafni Úlfarssyni sem er formaður US nefndar að kynna umræður og
efni fundarins. En umfjöllunarefni fundarins sem krefjast samþykkis sveitarstjórnar eru hér í næstu liðum. Sigurbjörn tók til máls og fór yfir fundargerðina.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir aðilar tóku til máls: Þorgeir Pálsson sem spurði formann
um akstursleið inn í Brandsskjól og hvort hún ætti að liggja framhjá vatnstanki. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson útskýrði að það væri ein leiðin en ef sú leið yrði varanleg þá krefðist hún breytingar á deiliskipulagi.
Fundargerðin að öðru leiti lögð fram til kynningar.

18.
Avians ehf, Umsókn um uppsetningu á Egnos (gps leiðréttingarkerfi fyrir flug)
Formaður kynnti erindið og nefndin lagði til að sveitarstjórn samþykki það.
Oddviti gaf orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson.
Oddviti bar erindið fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

19.
Umsókn um framkvæmdaleyfi til jarðvinnu, gatna- og lagnaframkvæmda í Brandskjólum
Formaður kynnti erindið og nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki erindið.
Oddviti gaf orðið laust en enginn tók til máls.
Oddviti lagði erindið fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

20.
Magnús Gústafsson, Beiðni um að einangra og klæða Hafnarbraut 17
Formaður kynnti erindið og nefndin lagði til að sveitarstjórn samþykki það.
Oddviti gaf orðið laust og sveitarstjórnarmenn hvetja húseigendur til litagleði.
Oddviti bar erindið fram til atkvæðagreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhjóða

21.
Verkefni sveitarstjóra, október 2026
Oddviti bað Dagrúnu Fanný Liljarsdóttur að fara yfir verkefni sveitarstjóra í október.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson sem spurði út í fund með Fiskeldissjóði. Sveitarstjóri tók fram að styrkhæfar framkvæmdir krefðust verkefna sem eru á framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun. Þetta verður rætt á vinnufundi sveitarstjórnar.
Þorgeir Pálsson spurði um SWIM verkefni. Sveitarstjóri útskýrði að um Evrópuverkefni væri að ræða og samstarf um teljara í Selá í tengslum við virkjunarframkvæmdir.
Skýrslan lögð fram til kynningar.

22.
Skipulagsstofnun, umsagnarbeiðni vegna máls nr. 1229/2026 í Skipulagsgátt
Oddviti kynnti erindið sem er umsögn HMS varðandi framkvæmd við Kvíslatunguvirkjun.
Oddviti gaf orðið laust. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og sagði erindið vera hluti af
lögbundnu kynningarferli eftir afgreiðslu sveitarstjórnar á málinu.
Lagt fram til kynningar.

23.
Náttúrustofa Vestfjarða, fundargerð 161. stjórnarfundar, fundargerð samráðsfundar ásamt fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Þorgeir Pálsson tók til máls og minnir á umræður hjá fyrri sveitarstjórn varðandi uppbyggingu og stöðugildi í Strandabyggð.
Oddviti leggur til að sveitarstjóra verði falið að kanna stöðu málsins hjá Náttúrustofu. Þorgeir Pálsson leggur til að sveitarstjórn krefjist úrlausna í framhaldinu eða segi upp samningum við Náttúrustofu. Dagrún Fanný Liljarsdóttir lagði til að sveitarstjórn vinni ályktun á næsta samráðsfundi sveitarstjórnar sem hún tæki áfram á fund með Náttúrustofu.
Oddviti lagði tillöguna fram til afgreiðslu sveitarstjórnar sem samþykkti samhjóða.

24.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir stjórnar nr. 1004 og 1005
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
25.
Hafnasamband Íslands, fundargerðir stjórnar nr. 486 og 487
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson.
26.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, fundargerðir stjórnar nr. 99, 100 og 101
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
27.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerðir stjórnar nr. 93