Sveitarstjórn Strandabyggðar
1396. fundur
13. október 2026
kl.
16:00
-
18:00
í Hnyðju
Nefndarmenn
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Oddviti
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Varaoddviti
Jón Örn Haraldsson
Aðalmaður
Kjartan Jónsson
Aðalmaður
Þorgeir Pálsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir
Ritari
Dagrún Fanný Liljarsdóttir
Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir
skrifstofustjóri
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Engin athugasemd er gerð við fundarboðun.
Þá var gengið til dagskrár:
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Dagskrá
1.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp í Strandabyggð - fyrri umræða
Lögð var fram uppfærð Samþykkt um stjórn og fundarsköp í Strandabyggð til fyrri umræðu.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson.
Oddviti lagði til að Samþykkt um stjórn og fundarsköp yrði vísað til seinni umræðu og vísar til atkvæðagreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.

2.
Viðauki V við fjárhagsáætlun 2026
Oddviti fól skrifstofustjóra að kynna efni viðaukans. Salbjörg Engilbertsdóttir tók til máls og las upp Viðauka V sem hljóðar svo:
Lagður er fram svohljóðandi við fjárhagsáætlun Strandabyggðar vegna ársins 2026 á fundi sveitarstjórnar þann 13. október 2026
Rekstur:
a. Launakostnaður vegna Erasmusverkefnis, en ekki var gert ráð fyrir því í upphaflegri launaáætlun. Framlag Strandabyggðar 1.500.000.
b. Hitunarkostnaður íþróttamiðstöð, upphafleg áætlun hljóðaði upp á 14.000.000 og er kostnaður í lok ágúst að nálgast þær fjárheimildir. Gert er ráð fyrir hækkun um a.m.k 6.000.000 á árinu 2026 og lagt til að sem mest sé dregið yfir laug sé hún er ekki í notkun.
c. Reikna má með að útsvarstekjur verði hærri en upphafleg áætlun reiknaði með. Hækkun um 10.000.000
d. Gert var ráð fyrir vinnu við deiliskipulag í upphaflegri áætlun kr. 11.452.000 en við leggjum til lækkun á þeim lið um 8.500.000. Kostnaður ársins v. deiliskipulags í lok september eru kr. 500.000 og því ætti að vera eitthvað svigrúm eftir til skipulagsvinnu.
e. Auknar tekjur vegna leikskólagjalda um 10.000.000 en í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir tekjum af leikskólagjöldum kr. 10.500.000 og má búast við um tvöfaldri hækkun.
f. Arður af seldum veiðileyfum í Víðidalsá 2.000.000 hefur verið lögð inn á reikning Strandabyggðar.
Niðurstaða rekstrarhluta viðauka eru því 23.000.000 í auknum tekjum.
Framkvæmdir:
a. Lýsing við Félagsheimili og Íþróttamiðstöð. Forstöðumaður Eignasjóðs leggur til að bætt verði við lýsingu við Félagsheimili og
Íþróttamiðstöð fyrir veturinn. Tilboð hefur borist frá Orkubúi Vestfjarða vegna 4 stk ljósastaura kr. 500.000 og má áætla að kostnaður við raflagnir og vinnu við niðursetningu verði kr. 800.000. Heildarkostnaður kr. 1.300.000. Ábending hefur einnig borist frá íbúa m.a. varðandi öryggi barna og myndi þessi vinna bæta úr því.
b. Framkvæmdir á Kópnesbraut vegna útáfu byggingarleyfis á fundi sveitarstjórnar nr. 1390 frá 12.maí 2026. Forstöðumaður Eignasjóðs leggur fram eftirfarandi útreikninga:
Kostnaður vegna framkvæmda við Kópnesbraut 29-31, þ.e. lagningar fráveitu, vatnsveitu og götulýsingar, gæti verið á þessa leið samkvæmt áætlun:
- Ljósastaurar (4-5 stk.) og kaplar: 1.000.000 kr.
- Fráveita, breyting á lögnum, mokstur og vinna: 1.200.000 kr.
- Fráveita, efni: 750.000 kr.
- Vatnsveita, mokstur og vinna: 700.000 kr.
- Vatnsveita, efni: 450.000 kr.
- Annar ófyrirséður kostnaður: 1.500.000 kr.
Áætlaður heildarkostnaður: 5.600.000 kr.
Að sjálfsögðu geta ýmsir þættir haft áhrif á endanlegan kostnað og valdið hækkun eða lækkun frá þessari áætlun. Til dæmis þarf líklega að færa núverandi fráveitulögn og leggja hana í neðri kant svæðisins til að ná réttum halla. Sú breyting er jafnframt nauðsynleg til að hægt verði að tengja fyrirhugaða demantshreinsistöð við fráveitukerfið árið 2027
Samtals kostnaður vegna framkvæmdar við Kópnesbraut er áætlaður kr. 5.600.000.
Samtals kostnaður vegna framkvæmda við lýsingu við félagsheimili er áætlaður kr. 1.300.000.
Tekjur af gatnagerðargjöldum eru áætlaðar kr. 5.700.000 sem mæta kostnaði við Kópnesbraut.
Skólabifreið kaup og sala:
Við leggjum til að skólabíllinn JJK86 verði seldur og nýr stærri bíll keyptur. Sjá minnisblað um samantekt v. skólaaksturs frá skólastjóra. Stærri skólabíll mun geta sinnt ferðum bæði út fyrir svæðið í ferðum vegna tómstunda sem og innan svæðis vegna skólaferða. JJK86 hefur jafnframt þurft verulegt viðhald undanfarið og þarfnast endurnýjunar.
Kaupverð er 11.160.000 og andvirði sölu eldri bíls gengur upp í nýjan bíl. Bíllinn DSV 47 verður nýttur sem aukabíll út skólaárið eins og hægt er og með nauðsynlegu viðhaldi.
Niðurstaða:
Tekjuaukning skv. rekstrarlið eru kr. 23.000.000, niðurstaða kostnaður vegna framkvæmda kr. 1.200.000 og kaup á bíl allt að 11.160.000 að frádreginni sölu á núverandi skólabíl.
Þegar þessar breytur hafa verið settar upp í áætlunarlíkan er niðurstaðan sú að hækkun verður á handbæru fé í árslok um 9.800.000 eða frá 33.294.000 í 43.934.000.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Jón Örn Haraldsson.
Þorgeir Pálsson óskaði eftir að bókuð verði að athugasemd varðandi lækkun á kostnaði við deiliskipulag og hvers vegna sú fjárheimild hafi ekki verið nýtt.
Viðauki V lagður fram til afgreiðslu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir með fjórum atkvæðum en Þorgeir Pálsson T-lista situr hjá.

3.
Bréf til sveitarstjórnar frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
Lagt var fram bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga frá 24. september 2026 vegna yfirferðar á ársreikningi Strandabyggðar og athugasemd nefndarinnar en samkvæmt honum uppfyllir Strandabyggð skuldaviðmið en ekki jafnvægisreglu sbr. yfirlit hér að neðan og er því brotlegt við 1. tl. 2. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga. EFS telur mikilvægt að sveitarstjórn hafi framangreindar upplýsingar til hliðsjónar við áætlanagerð sveitarfélagsins og móti skýra áætlun um aðgerðir til að tryggja að viðmið jafnvægisreglu verði uppfyllt á ný. Jafnframt bendir EFS á að þótt ekki sé um lögbundið viðmið að ræða er þriggja ára rekstrarjöfnuður A-hluta neikvæður.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson.

4.
Forsendur fjárhagsáætlunar 2027
Oddviti fól skrifstofustjóra að kynna forsendur fjárhagsáætlunar. Salbjörg Engilbertsdóttir fór yfir minnisblaðið sem tekur einkum til forsendna varðandi vinnu við fjárhagsáætlun en stuðst er við útreikning Sambands íslenskra sveitarfélaga. Jafnframt er óskað afstöðu sveitarstjórnar hvort leggja eigi þessar forsendur fyrir ramma fjárhagsáætlunar 2027.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson, Þorgeir Pálsson og Jón Örn Haraldsson.
Oddviti vísaði tillögum skrifstofstjóra til afgreiðslu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.

5.
Álagning útsvars og fasteignagjalda 2027
Oddviti fól skrifstofustjóra að kynna erindið. Salbjörg Engilbertsdóttir fór yfir tillögu til sveitarstjórnar um álagningarhlutfall útsvars og fasteignaskatts 2027. Fram kemur að hækkun fasteignamats 2027 á íbúðum verður 3%, á opinberu húsnæði 7,5% og atvinnuhúsnæði 6,1%.
Lagt er til að útsvarsprósenta verði óbreytt eða 14,97% sem er hámarksútsvar. Jafnframt er lagt til að álagning fasteignaskatts verði óbreytt eða 0,625% af íbúðarhúsum, 1,32% af opinberu húsnæði og 1,65% af öðrum fasteignum. Sömuleiðis er lagður fram útreikningur á viðmiðum á afslætti fasteignagjalda til eldri borgara.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson
Tillaga um álagningu útsvars og fasteignagjalda lögð fram til samþykktar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.

6.
Starfsgreinasamband Íslands, Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lagt var fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands með ósk um þátttöku Strandabyggðar í sameiginlegu átaki, þjóðarsátt um verðstöðugleika. Oddviti leggur til að við tökum jákvætt í erindið og felum sveitarstjóra að svara erindinu.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson.
Oddviti lagði til að almennar gjaldskrár sem ekki eru bundnar vísitölu hækki um 2,5%. Lagt fram til samþykktar sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

7.
Strandabandalagið, Endurskoðun leiguverðs á skrifstofum og fundarsal í Þróunarsetrinu og Hnyðju
Kjartan Jónsson lýsti yfir vanhæfi sínu vegna tengsla og oddviti bar það undir atkvæði sveitarstjórnar og var það samþykkt samhljóða. Andri Freyr Arnarsson kom inn á fundinn sem varamaður.
Lagt var fram erindi frá Strandabandalaginu varðandi leiguverð. Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni oddvita T-lista að kynna erindið.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Jón Örn Haraldsson, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Andri Freyr Arnarsson.
Jón Örn Haraldsson taldi að skv. gildandi húsaleigusamningum komi fram að þeir séu bundir hækkun skv. vísitölu og því sé þetta brot á samningum.
Þorgeir Pálsson lagði til að tillagan yrði dregin til baka og unnin áfram af sveitarstjóra og oddvita sem leggi fram grunnhugmynd tillögunnar í útfærslu við gjaldskrárvinnu og fjárhagsáætlun.
Oddviti vísaði breyttri tillögu Strandabandalagsins til afgreiðslu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.

Kjartan Jónsson kom aftur inn á fundinn og Andri Freyr Arnarsson vék af fundi.
8.
Reglur um upptöku sveitarstjórnafunda í Strandabyggð
Oddviti lagði fram reglur varðandi upptöku sveitarstjórnar Strandabyggðar.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Reglurnar lagðar fram til samþykktar sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

9.
Alþingi, Til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög
Eftirfarandi umsögn, í samráði sveitarstjórnar, var send inn fyrir tilskilinn frest:
„Strandabyggð fagnar þeirri áherslu sem frumvarpið leggur á sjálfstjórn sveitarfélaga samkvæmt 1., 2. og 4. gr., aukið samráð ríkis og sveitarfélaga og skýrari umgjörð um sveitarstjórnarmál. Strandabyggð telur mikilvægt að virða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og að sveitarfélög og íbúar þeirra hafi áfram virka aðkomu að ákvörðunum um framtíðarskipan sveitarfélaga. Strandabyggð telur jafnframt mikilvægt að við framkvæmd 8. gr. frumvarpsins verði byggt á heildstæðu mati á stöðu sveitarfélaga þar sem horft er til fleiri þátta en íbúafjölda einungis, svo sem landfræðilegra aðstæðna, fjárhagsstöðu, þjónustugæða og samstarfs sveitarfélaga. Slíkt heildarmat getur skapað traustari grundvöll fyrir ákvarðanir um þróun sveitarstjórnarstigsins til framtíðar. Jafnframt leggur Strandabyggð áherslu á að þeirrar meginreglu sé gætt við framkvæmd laganna að sveitarfélögum verði ekki falin ný eða aukin verkefni án þess að þeim fylgi nægjanleg fjármögnun. Sú sjónarmið samræmast þeim forsendum sem fram koma í 2. gr. frumvarpsins um að sveitarfélög hafi raunhæfa getu til að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin. Strandabyggð telur einnig mikilvægt að það samráð við sveitarfélög sem kveðið er á um í 4. gr. verði virkt og raunverulegt við mótun stefnu og ákvarðanatöku í sveitarstjórnarmálum. Að öðru leyti gerir Strandabyggð ekki athugasemdir við frumvarpið."
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Umsögnin lögð fram til formlegrar staðfest af sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða.

10.
Strandabandalagið, Uppbyggingarsamningur og innviðauppbygging í tengslum við hótelbyggingu
Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni T-lista að kynna erindið. Þorgeir Pálsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Með vísan í tillögu B lista Framsóknar og óháðra á sveitarstjórnarfundi 1395.8.9.26, um stofnun „Byggðarráðs Strandabyggðar“ og bókun Vegvísis um að „farið yrði í frekari vinnu til að móta reglulega vinnufundi og nýta erindið sem grunn að frekari útfærslu“, leggur Strandabandalagið til að settur verði á vinnuhópur án tafar, með bakland í Samþykkt um stjórn og fundarsköp í Strandabyggð, og hefði það hlutverk að semja við Hótel Strandir ehf um uppbyggingarsamning og þróun innviða á Jakobínutúni, í tengslum við hótelbyggingu Hótels Stranda ehf. Í vinnuhópnum ættu sæti oddvitar allra lista og sveitarstjóri.
Greinargerð: Fyrir liggur samkomulag um að hefja gerð uppbyggingarsamnings milli Strandabyggðar og Hótels Stranda ehf, þar sem innviðir í tengslum við hótelbyggingu við Jakobínutún og breytingar á umhverfi tjaldsvæðis, íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, verði
skilgreint. Innviðasamningurinn er næsta skref milli sveitarfélagsins og Hótels Stranda ehf, og er mikilvægt að hann fari að taka á sig mynd, enda þarf að horfa til einstakra liða hans í fjárhagsáætlanagerð sem sveitarstjórn vinnur að. Uppbyggingarsamningurinn er einnig mjög mikilvægur fyrir Hótel Strandir ehf í samskiptum þeirra við hugsanlega fjárfesta og rekstraraðila. Það er mikið hagsmunamál, að hótelbyggingin komist á framkvæmdastig sem fyrst, enda atvinna og tekjur fyrir sveitarfélagið í húfi.“
Oddviti bað sveitarstjóra að kynna stöðu mála fyrir sveitarstjórn. Dagrún Fanný Liljarsdóttir tók til máls og fór yfir samtöl og fund sem hún átti nýlega með Friðjóni Sigurðsson sem er tengiliður við Hótel Strandir.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu Vegvísis: „Með vísan til umræðu um aukið samráð, upplýsingamiðlun og undirbúning mála innan sveitarstjórnar leggur Vegvísir til að komið verði á reglulegum samráðsfundum sveitarstjórnar. Markmið fundanna verði að efla
upplýsingamiðlun, samráð og sameiginlega yfirsýn sveitarstjórnarmanna yfir helstu verkefni og viðfangsefni sveitarfélagsins, þar á meðal uppbyggingarverkefni, samninga, framkvæmdir og önnur þróunar- og fjárfestingarmál sem eru til meðferðar hverju sinni. Fundirnir verði haldnir eftir þörfum sem vinnu- og samráðsfundir sveitarstjórnar og verði vettvangur fyrir upplýsingagjöf, umræðu og undirbúning mála áður en þau koma til formlegrar afgreiðslu eftir því sem við á. Fundirnir komi ekki í stað formlegrar meðferðar mála samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykktum sveitarfélagsins, heldur séu þeir vettvangur samráðs og undirbúnings innan þess stjórnskipulags sem þegar er í gildi. Gert er ráð fyrir að þeir falli innan starfshlutfalls sveitarstjórnar.„
Til máls tóku: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Þorgeir Pálsson, Kjartan Jónsson og Jón Örn Haraldsson.
Oddviti bar tillögu Strandabandalagsins undir atkvæði sveitarstjórnar. Hafnað með 3 atkvæðum Vegvísis, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sat hjá.
Oddviti bar tillögu Vegvísis undir samþykki sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.

11.
Strandabandalagið, Verktakasamningur og upphaf framkvæmda í Brandsskjólum
Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni T-lista að kynna erindið. Þorgeir Pálsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Með vísan í tillögu B lista framsóknar og óháðra á sveitarstjórnarfundi 1395.8.9.26, um stofnun „Byggðarráðs Strandabyggðar“ og bókun Vegvísis um að „farið yrði í frekari vinnu til að móta reglulega vinnufundi og nýta erindið sem grunn að frekari útfærslu“, leggur Strandabandalagið til að settur verði á vinnuhópur án tafar, með bakland í Samþykkt um stjórn og fundarsköp í Strandabyggð, og hefði það hlutverk að verkstýra framkvæmd verktakasamnings og framkvæmdum í Brandsskjólum. Í vinnuhópnum ættu sæti oddvitar
listanna þriggja og sveitarstjóri.
Greinargerð: Í maí fyrr á þessu ári, samþykkti þáverandi sveitarstjórn að ganga til samninga við fyrirtækið Keyrt og mokað ehf, um gatnagerð og jarðvegsframkvæmdir í Brandsskjólum. Þá þegar hefði verið hægt, á grundvelli þeirrar ákvörðunar sveitarstjórnar, að ganga frá Verkáætlun og Verkábyrgð. Hvorugt var þó klárað og á sveitarstjórnarfundi 1395, þann 8.9 sl. var samþykkt að: „...verksamningur verði samþykktur með fyrirvara um nákvæmari verkáætlun og hún sé gerð í samráði við Jóhann Birki eftirlitsaðila hjá Verkís, óska sérstaklega eftir ýtarlegri verkáætlun fyrir árið 2027 sem skiptir máli fyrir fjárhagsáætlunargerð sem og staðfestingu á
verktryggingu sem Brynjar Þorbjörnsson hjá Keyrt og mokað hefur sótt um og ætti að fá fljótlega. Í kjölfarið að fela sveitarstjóra að undirrita samninginn með fyrirvara um að gögn hafi borist.“ Lítið hefur heyrst frá meirihlutanum um framgang málsins síðan og þegar þetta er skrifað, 8.10 (mánuði eftir samþykkt þessarar bókunar, liggur ekkert frekar fyrir um næstu skref eða stöðu verksins. Með því að samþykkja tillögu Strandabandalagsins væri verið að tryggja aðhald og eftirfylgni við þetta mikilvæga hagsmunamál Strandabyggðar. Það er illt að vikur og mánuðir líði án þess að framkvæmdir hefjist og vill Strandabandalagið með þessari tillögu ýta málinu áfram, til hagsbóta fyrir sveitarfélagið."
Oddviti bað sveitarstjóra að kynna stöðu mála fyrir sveitarstjórn. Dagrún Fanný Liljarsdóttir tók til máls og fór yfir stöðu mála en tafir hafa orðið hjá verktaka og eftirlitsaðila vegna sumarleyfa. Verktrygging og verkáætlun barst í lok síðustu viku og því ætti verkið að hefjast fljótlega.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Kjartan Jónsson.
Oddviti bar tillögu Strandabandalagsins undir atkvæði sveitarstjórnar. Tillögunni var hafnað með 3 atkvæðum Vegvísis, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sat hjá.
Þorgeir Pálsson óskaði eftir því að það yrði bókað að þetta verkefni yrði unnið áfram í samráðshóp eins og erindi nr. 10.
Oddviti svaraði því til að það sama muni eiga við og að þetta verkefni yrði rætt í samráðshóp sveitarstjórnar.

12.
Strandabandalagið, Þátttaka í verkefni HMS um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Brandskjólum
Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni T-lista að kynna erindið. Þorgeir Pálsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Strandabandalagið leggur til að farið verði viðræður við HMS um aðkoma sveitarfélagsins að verkefni HMS um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með stofnframlagi sveitarfélagsins
Greinargerð: Strandabyggð hefur þegar tekið þátt í verkefni af þessu tagi, þegar raðhús við Höfðatún var byggt með stofnframlagi sveitarfélagsins. Hér má sjá auglýsingu HMS um nýtt verkefni af þessum toga. Strandabandalagið leggur til að farið verði í viðræður við HMS um uppbyggingu í Brandsskjólum, framtíðar íbúðarhúsnæði Strandabandalagsins.“
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Jón Örn Haraldsson, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Kjartan Jónsson og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir.
Oddviti bar tillögu Strandabandalagsins undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að vinna erindið áfram.

13.
Erindi til sveitarstjórnar, vegna fyrirkomulags skólaaksturs og kennslu.
Lagt var fram erindi frá foreldrum barna í skólaakstri sem eru búsett í Kollafirði, varðandi akstur með skólabörn frá heimilum og á Drangsnes þar sem kennsla fer fram einn dag vikunnar fyrir hverja bekkjadeild.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem vildi að sveitarfélagið miði að því að kennt yrði miðlægt á Hólmavík. Hrafnhildur Þorsteinsdóttir útskýrði að þetta væri flókið mál og það snéri einnig að mönnun og miðað væri við að þetta yrði tímabundin lausn. Þorgeir Pálsson sem sagði grunnhugmyndina ekki slæma en það skorti samráð og hann taldi að hægt væri að kenna þetta hér. Hrafnhildur Þorsteinsdóttir tók fram að hún vildi ekki skyndilausnir og núverandi rými í skólanum henti ekki sem listgreinastofur. Jón Örn Haraldsson og Kjartan Jónsson bentu á að stærri skólabíll leysi ferðamál ungmenna í tómstundum t.d. Rætt var um að taka myglusýni aftur í gamla skólanum.
Oddviti lagði til að sveitarstjóri kalli eftir frekari upplýsingum um málið og svari erindinu.
Afgreiðsla málsins var lögð fram til samþykktar sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

14.
Erindi til sveitarstjórnar Strandabyggðar vegna Kópnesbrautar
Lagt var fram erindi íbúa við Kópnesbraut varðandi úrbætur á götu.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og báðir lögðu til að málið færi í umfjöllun US nefndar og verði unnið í samfellu með útfærslu Kópnesbrautar og Bröttugötu. Þorgeir Pálsson minnir á að US nefnd hafi fjallað um málið en styður áframhaldandi vinnu við verkefnið. Jón Örn Haraldsson var sammála Sigurbirni Rafni Úlfarssyni og að vanda þurfi útfærslu.
Oddviti lagði til að bréfriturum yrði þakkað erindið og að sveitarstjóra verði falið að funda með þeim og vinna að bráðabirgðalausn með forstöðumanni eignasjóðs. Sömuleiðis lagði oddviti til að farið verði í vinnu við deiliskipulag á svæðinu.
Lagt fram til afgreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

15.
Erindi til sveitarstjórnar, Farsíma- og neyðarsamband í Staðardal
Lagt fram erindi frá Daníel Rúnarssyni varðandi farsímasamband í Staðardal.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Jón Örn Haraldsson, Kjartan Jónsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem benti á að hér væri komin góð tillaga að ályktun sem lögð yrði fram á Fjórðungsþingi, oddviti tók undir með Sigurbirni. Þorgeir Pálsson benti á að þetta hafi verið rætt áður á Fjórðungsþingi en taldi þörf á að þrýsta á stjórnvöld.
Oddviti tók fram að sveitarstjórn hafi verið í samtali við þingmenn varðandi málið og lagði til að sveitarstjóra yrði falið að koma ábendingunni til Fjarskiptastofu.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson lagði til að unnin verði tillaga að ályktun sem lögð verði fyrir
Fjórðungsþing.
Oddviti lagði tillöguna fram til samþykkis sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

16.
Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags
Oddviti lagði til að erindið yrði tekið af dagskrá vegna afturköllunar umsóknar.
17.
Samtök um kvennaathvarf, Beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sagðist bera virðingu fyrir málefninu en lagði til að erindinu yrði hafnað í ljósi fjárhagstöðu sveitarfélagsins. Jón Örn Haraldsson og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir tóku undir með oddvita B-lista.
Oddviti bar tillöguna fram til atkvæða. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.

18.
Stígamót, Ósk um stuðning til Stígamóta 2027
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sagðist bera virðingu fyrir starfi Stígamóta en lagði til að erindinu yrði hafnað í ljósi fjárhagstöðu sveitarfélagsins. Fundarmenn tóku undir með oddvita B-lista.
Oddviti bar tillöguna fram til atkvæða. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.

19.
Strandagaldur ses, Samstarf og stuðningur við Galdrafár 2027
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson lagði til að erindið yrði samþykkt og miðað við að stuðningur felist í útláni á aðstöðu og búnaði eins og fyrri ár. Fundarmenn taka undir með Þorgeiri Pálssyni. Sveitarstjóra verði falið að vera tengiliður við samstarfið.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
20.
Samband íslenskra sveitarfélaga, Notendaráð sveitarfélaga
Lögð fram áminning um skipan fulltrúa í notendaráð í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráðs og ungmennaráðs. Strandabyggð hefur skipað fulltrúa í þessi ráð. Lagt fram til kynningar.
21.
Vestfjarðastofa, Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030
Lögð fram svæðisbundin forgangsröðun aðgerða Farsældarráðs Vestfjarða 2026-2030 til samþykktar sveitarstjórnar.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Jón Örn Haraldsson.
Fulltrúar Vegvísis lögðu til að erindinu yrði vísað í viðeigandi nefndir og báru undir atkvæði sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.

22.
Hollvinasamtök Reykjalundar, Ákall um stuðning við uppbyggingu Reykjalundar
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson lagði til að erindinu yrði hafnað í ljósi fjárhagstöðu sveitarfélagsins. Þorgeir Pálsson sagðist vilja styðja erindið.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sagðist bera mikla virðingu fyrir þessum samtökum en lagði til að erindinu yrði hafnað.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu Kjartans Jónssonar með fjórum atkvæðum en Þorgeir Pálsson greiddi atkvæði á móti.

23.
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða, Bréf til sveitarfélaga á Vestfjörðum
Lagt var fram bréf frá formanni heilbrigðisnefndar og framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða varðandi lagabreytingar vegna niðurfellingar Heilbrigðiseftirlits og skuldbindinga sveitarfélaganna eftir að lagabreytingar taka gildi um áramótin. Sömuleiðis óska bréfritarar eftir fundi með sveitarstjórnum á eftirlitssvæðinu til að ræða breytingarnar og næstu skref.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson sem vill vekja athygli á grafalvarlegri stöðu Heilbrigðiseftirlitsins. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók undir með Þorgeiri Pálssyni og taldi vinnubrögð ríkisvaldsins fara langt yfir öll mörk.
Sveitarstjórn tók undir áhyggjur Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða og harmar þessa stöðu.
Oddviti lagði til að sveitarstjóra yrði falið að fylgja erindinu eftir og bar þá tillögu undir atkvæði sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.

24.
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða, fundargerðir stjórnar nr. 157 og 158
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
25.
Innviðaráðuneytið, Minningardagur um fórnalömb umferðarslysa 15. nóvember 2026
Erindi frá Innviðaráðuneyti varðandi Alþjóðlegan minningardag Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson sem óskaði eftir að það yrði bókað að skrifstofu verði falið að kynna þetta mikilvæga málefni á heimasíðu sveitarfélagsins. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson lagði til að sveitarstjóri fylgi erindinu eftir.
Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.

26.
Enter Iceland ehf, Kynning og mögulegt samstarf
Lagt fram erindi frá Enter Iceland ehf. sem er ný íslensk sjónvarpsstöð á sjónvarpi Símans varðandi mögulegt samstarf og greiðslu kostnaðar vegna grunnkostnaði ferðar og upptöku.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og lagði til að erindinu yrði hafnað og sveitarstjóra falið að svara erindinu.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og lagði til að erindinu yrði hafnað og sveitarstjóra falið að svara erindinu.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
27.
Ungmennaráð, fundargerð stjórnarfundar 18.09.2026
Fundargerð Ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem tók fram varðandi lið 3, sem er Sameinumst á Ströndum, að sú hátíð yrði ólíklega haldin aftur. Þorgeir Pálsson tók til máls og sagði að Sameinumst á Ströndum hafi verið einstaklingsframtak og ekki á vegum sveitarfélagsins nema með fjárstuðningi. Hann tók einnig fram að sveitarstjórn þyrfti að svara nefndinni varðandi lið nr. 5 varðandi tómstundarútu.
Jón Örn Haraldsson lagði til að sveitarstjóra yrði falið kanna útfærslu og kostnað á lið nr. 5. Sömuleiðis varðandi lið nr. 6 að vinna það í samtali við sveitarstjórn Kaldrananeshrepps.

28.
Ungmennaráð Strandabyggðar - 20.09.2026
Lagður fram tölvupóstur frá formanni Ungmennaráðs varðandi skipan nýrra fulltrúa í ráðið.
Unnur Erna Viðarsdóttir - formaður
Jóhanna Rannveig Jánsdóttir - áheyrnarfulltrúi Umhverfis og skipulagsnefnd
Jökull Ingimundur Hlynsson - áheyrnarfulltrúi TÍM nefndar
Árný Helga Birkisdóttir - áheyrandafulltrúi Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd
Elma Dögg Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi fræðslunefndar
Varamenn eru:
Hekla Karítas Þorgeirsdóttir
Ingvar Þór Pétursson
Álfrún Áslaug Steinunnardóttir
Ásdís Helga Ingólfsdóttir
Aníta Rós Kjartansdóttir
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson lagði til að sveitarstjórn fagni nýju ungmennaráði og bjóði þau velkomin til starfa.

29.
Tómstunda, íþrótta og menningarmálanefnd - fundargerð fundar nr. 92
Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni T-lista og formanni nefndarinnar að kynna fundargerðina. Þorgeir Pálsson tók til máls og fór yfir efni fundarins og umræður.
Liðir í fundargerð sem krefjast samþykkir sveitarstjórnar eru næstu þrír liðir í fundargerð sveitarstjórnar en fundargerð TÍM nefndar að öðru leiti lögð fram til kynningar.

30.
Erindisbréf Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar 2026-2030
Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni að fara yfir erindisbréfið.
Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til samþykktar sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

31.
Erindi Vegvísis til Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar
Vegvísir leggur fram beiðni til Strandabyggðar að koma á fót samfélagsmiðstöð sem er jafnframt útibú héraðsbókasafnsins þar sem íbúar gætu komið saman og tekið þátt í fjölbreyttu og aðgengilegu félagsstarfi.
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson fagnaði þessu erindi og sagði það vera í samræmi við hugmyndir B-lista framsóknar og óháðra.
Oddviti lagði til að tekið yrði jákvætt í erindið og tillögu nefndarinnar og sveitarstjóra falið að vinna nánar að útfærslu verkefnisins með málshefjanda. Vegvísir tilnefndi Önnu Karen Amin Kolbeins sem fulltrúa við verkefnið.
Oddviti bar afgreiðslu erindisins undir samþykki sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

32.
Erindi um samstarf vegna Bókavíkur 16.-22. nóvember 2026
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson sem fagnaði erindinu.
Oddviti lagði til að erindið yrði samþykkt og að sveitastjóra falið að vera tengiliður verkefnisins.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt samhljóða.

33.
Fundargerðir Velferðarnefndar 2026 nr. 62 og 63.
Oddviti fór yfir fundargerðirnar og gaf orðið síðan laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
34.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundargerð 08.10.2026
Oddviti fól Sigurbirni Rafni Úlfarssyni formanni að fara yfir umræður fundarins og fundargerð.
Liðir fundarins sem krefjast samþykkis sveitarstjórnar eru í næstu liðum þessarar fundargerðar, að öðru leiti var fundargerðin lögð fram til kynningar.

35.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi, kvíslatunguvirkjun
Oddviti gaf orðið laust. Kjartan Jónsson tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.

36.
Breyting á deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjunar
Oddviti gaf orðið laust. Sigurbjörn tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
37.
Erindi T-lista. Hundagerði á Hólmavík
Oddviti gaf orðið laust. Þorgeir Pálsson tók til máls og þakkaði úrvinnslu nefndarinnar og niðurstöðu hennar. Jón Örn Haraldsson tók til máls og taldi meinbugi á staðsetningarvali nefndarinnar vegna aðgengis og taldi þurfa meira eftirlit og lagði til að erindinu yrði vísað frá.
Kjartan Jónsson spurði hvort að hundagerði á vegum sveitarfélagsins kalli á eftirlit eða kröfur á hendur sveitarfélagsinu. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson var ekki sammála. Hrafnhildur Þorsteinsdóttir spurði um mögulegan kostnað vegna verkefnisins. Þorgeir Pálsson taldi þessar áhyggjur Vegvísis vera storm í vatnsglasi.
Oddviti bar tillögu nefndarinnar undir atkvæði sveitarstjórnar. Henni var hafnað með þremur atkvæðum Vegvísis. T-listi og B-listi Framsóknar og óháðra greiddu atkvæði með tillögunni.
Þorgeir Pálsson óskaði eftir að leggja fram þá athugasemd að hundaeigendur muni nú sleppa hundum sínum lausum á opnum svæðum í Strandabyggð.

38.
Sumarhúsabyggð í Skeljavík
Oddviti gaf orðið laust.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykkti tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.

39.
Beiðni - Botnlangaskilti á Borgabraut
Oddviti gaf orðið laust. Þorgeir Pálsson lagði til að botnlangaskiltið verði staðsett við Plássið eða eingöngu hægra megin við Borgabraut. Jón Örn Haraldsson tók undir með Þorgeiri Pálssyni og benti á að það vanti botnlangaskilti á fleiri stöðum. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók undir athugasemdirnar.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykkti tillögu nefndarinnar og feli forstöðumanni eignasjóðs að koma því í framkvæmd.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykkti tillögu nefndarinnar og feli forstöðumanni eignasjóðs að koma því í framkvæmd.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
40.
Umsókn um stofnun lóðar að Gerimundastöðum - Kvíslatunguvegur
Oddviti gaf orðið laust. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
41.
Skriðnesenni, breyting á opinberu heiti
Oddviti gaf orðið laust. Þorgeir Pálsson tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
42.
Verkefni sveitarstjóra, september 2026
Oddviti gaf orðið laust. Eftirtaldir tóku til máls: Þorgeir Pálsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson þökkuðu fyrir góða skýrslu og störfin.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
43.
Hafnasamband Íslands, fundargerðir stjórnar 2026 nr. 484 og 485.
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
44.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir stjórnar 2026 nr. 1002 og 1003
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
45.
Vestfjarðastofa ses, Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu og Fjórðungssambands Vestfjarða nr. 80 og 81
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Þorgeir Pálsson lagði til að sveitarstjórn taki undir áhyggjur Vestfjarðarstofu varðandi niðurskurð til Sóknaráætlunar. Einnig fagnaði hann nýrri námsleið við Háskólasetur Vestfjarða sem er viðbótarnám á meistarastigi í lagareldi.
Tillaga Þorgeirs Pálssonar borin undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

46.
Náttúrstofa Vestfjarða, Fundargerð stjórnar 2026 nr. 160
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
47.
Náttúrustofa Vestfjarða, Fundargerð Ársfundar 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
48.
Samband íslenskra sveitarfélaga, Umboð til atkvæðagreiðslu á fundum samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum og samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Oddviti lagði til að formgera umboð fyrir Dagrúnu Fanný Liljarsdóttur sveitarstjóra vegna setu hennar á fundunum í síðustu viku.
Oddviti bar umboðið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.