Sveitarstjórn Strandabyggðar
1395. fundur
8. september 2026
kl.
16:00
-
17:54
í Hnyðju
Nefndarmenn
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Oddviti
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Varaoddviti
Jón Örn Haraldsson
Aðalmaður
Kjartan Jónsson
Aðalmaður
Marta Sigvaldadóttir
Varamaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir
Ritari
Dagrún Fanný Liljarsdóttir
Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir
skrifstofustjóri
Oddviti bauð fundarmenn og sveitarstjórann Dagrúnu Fannýju Liljarsdóttur sem nú situr sinn fyrsta fund, velkomin á fundinn. Oddviti spyr hvort að athugasemdir séu við fundarboðun.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og óskaði eftir fundargögnum um leið og þau berast til að undirbúningur sé betri.
Marta Sigvaldadóttir lagði fram kvörtun að hún hefði ekki fengið fundargögn fyrr en í gær.
Oddviti tók ábendingar til greina og kemur þeim í farveg hjá skrifstofu.
Þá var tekið til við dagskrárstörf.
Dagskrá
1.
Breyting á prókúru Strandabyggðar
Lögð eru fram eyðublöðin RSK 17.43 sem er tilkynning um breytingu á framkvæmdastjórn og prókúru og RSK 17.91 sem er tilkynning um skráningu/breytingu á prókúruhafa hjá opinberum aðila. Oddviti leggur til að veita Dagrúnu Fanný Liljarsdóttur og Salbjörgu Engilbertsdóttur prókúru og jafnframt verði Dagrún Fanný Liljarsdóttir skráð sem framkvæmdarstjóri Strandabyggðar.
Orðið gefið laust.
Marta Sigvaldadóttir tók til máls og sagði gögnin ekki hafa borist og hvort ekki ætti því að fresta þessum lið.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og tók útskýringar vegna tafa á skilum á fundargagni til greina og samþykkir fyrir sitt leiti afgreiðslu prókúrunnar.
Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

2.
Ósk um rökstuðning vegna stjórnvaldsákvörðunar um ráðningu sveitarstjóra Strandabyggðar
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson óskaði eftir að víkja fundi vegna vanhæfis. Oddviti bar óskina undir atkvæði sveitarstjórnar sem samþykkti samhljóða. Kristín Anna Oddsdóttir tók sæti á fundinum.
Lagt fram erindi frá Sigurbirni Rafni Úlfarssyni með ósk um rökstuðning vegna ráðningar sveitarstjóra. Sömuleiðis er lagt fram svar meirihluta sveitarstjórnar með rökstuðningi.
Oddviti gaf orðið laust.
Kristín Anna Oddsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Bókun Framsóknar og Óháðra:
Við lýsum yfir áhyggjum af málsmeðferð meirihlutans við afgreiðslu á beiðni um rökstuðning og gögn vegna ráðningar sveitarstjóra. Rétt er að taka skýrt fram að athugasemdir þessar eiga einungis við um málsmeðferð og stjórnsýslu sveitarfélagsins, en beinist ekki að þeim einstaklingi sem ráðin var til starfa.
Framsókn og óháðir gera eftirfarandi athugasemdir:
Svar meirihluta sveitarstjórnar frá 2. september 2026 uppfyllir ekki að fullu lágmarkskröfur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í fyrsta lagi vantar laga- og réttarvísanir fyrir ráðningarákvörðuninni sjálfri, en tilvísun til þeirra réttarreglna sem ákvörðun byggist á er fortakslaust skilyrði skv. 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Í öðru lagi skortir samanburð á milli umsækjenda til að sýna hvers vegna sá sem ráðinn var þótti hæfari en sá sem rökstuðningsins óskaði. Í þriðja lagi var beiðni um gagnaaðgang skv. 15. gr. laganna algjörlega óafgreidd, sem stríðir gegn lögvörðum upplýsingarétti aðila. Mikilvægt er að Strandabyggð gæti fyllsta gagnsæis og vandaðra stjórnsýsluhátta í hvívetna til að tryggja réttaröryggi og viðhalda trausti íbúa. Því er skorað á sveitarstjórn að bæta úr þessum vanköntum fljótt og örugglega.
Oddviti tók fram að í aðdraganda kosninga kom skýrt fram að við vildum auglýsa eftir sveitarstjóra sem gæti gætt hlutleysis í sveitarstjórnarmálum og fylgdum faglegri ráðgjöf Hagvangs.
Oddviti gaf orðið laust.
Marta Sigvaldadóttir lagði fram eftirfarandi bókun frá Strandabandalaginu:
„Bókun Standabandalagsins vegna liðar 2 á dagskrá fundar 1395, í sveitarstjórn Strandabyggðar, 8.9.26 - Ósk um rökstuðning vegna stjórnvaldsákvörðunar um ráðningu sveitarstjóra Strandabyggðar, málsnúmer 2608052
Fyrir liggur erindi Sigurbjörns Úlfarssonar, „Beiðni um rökstuðning, aðgang að gögnum og upplýsingar vegna ráðningar sveitarstjóra Strandabyggðar“ og rökstuðningur meirihluta sveitarstjórnar, undirritaður af oddvita Strandabyggðar, Hrafnhildi Þorsteinsdóttur. Það verður að segjast, að rökstuðningur meirihluta sveitarstjórnar nær alls ekki til allra þeirra þátta sem fram koma í erindi Sigurbjörns og vantar þar talsvert uppá. Erindi hans var skýrt og spurningar nákvæmar, en þeim er þó ekki öllum svarað. Einnig vekur það athygli, að ekki er að sjá neitt formlegt svar Hagvangs við spurningum Sigurbjörns. Að lokum verður aðkoma skrifstofustjóra að ráðningarferlinu að teljast eftirtektarverð, í ljósi þess að það er sveitarstjórn sem ræður sveitarstjóra. Í rökstuðningi meirihluta sveitarstjórnar, er aðkoma skrifstofustjóra ekki útskýrð á neinn hátt.
Meirihluti sveitarstjórnar Strandasýslu fór þá leið við ráðingu sveitarstjóra, að auglýsa opinberlega eftir sveitarstjóra. Við þá ákvörðun undirgengst meirihlutinn vissar reglur og skyldur er varða upplýsingagjöf og leiðbeiningarskyldu. Því miður vantar töluvert upp á, að meirihlutinn geri sér fulla grein fyrir þessum skyldum og leikreglum, amk ef tekið er mið af rökstuðningi meirihluta sveitarstjórnar. Það er miður. Strandabandalagið hefur fullan skilning á beiðni Sigurbjörns Úlfarssonar og harmar að sama skapi ófullnægjandi svar meirihlutans.
Það er mikilvægt að meirihlutinn sjái að sér og ljúki þessi máli með sóma þannig að kastljósið snúist í þá átt að styðja við nýjan sveitarstjóra í þeim viðamikil verkefnum sem framundan eru. Meirihlutanum er óskað velfarnaðar í því lærdómsferli sem hann er nú í, hvað stjórnsýslu og afgreiðslu mála varðar“.
Jón Örn Haraldsson tók til máls og útskýrði hlutverk skrifstofustjóra í ráðingarferlinu en hún sat ráðningarfundi til að upplýsa varðandi innra skipulag og til að gefa bókhaldsupplýsingar. Hún kom ekki að ráðningunni sjálfri.
Kristín Anna Oddsdóttir vék af fundinum og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók aftur sæti sitt á fundinum.

3.
Verksamningur vegna jarðvegsvinnu í Brandskjólum
Lagður fram verksamningur frá Keyrt og mokað ásamt verkáætlun.
Oddviti gaf orðið laust.
Kjartan tekur til máls og leggur til að verksamningur verði samþykktur með fyrirvara um nákvæmari verkáætlun og hún sé gerð í samráði við Jóhann Birki eftirlitsaðila hjá Verkís, óska sérstaklega eftir ýtarlegri verkáætlun fyrir árið 2027 sem skiptir máli fyrir fjárhagsáætlunargerð sem og staðfestingu á verktryggingu sem Brynjar Þorbjörnsson hjá Keyrt og mokað hefur sótt um og ætti að fá fljótlega. Í kjölfarið að fela sveitarstjóra að undirrita samninginn með fyrirvara um að gögn hafi borist.
Eftirtaldir aðilar tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Marta Sigvaldadóttir og Jón Örn Haraldsson.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson leggur fram eftirfarandi bókun Framsóknar og óháðra:
Þrátt fyrir drjúgan undirbúningstíma og frestun á afgreiðslu málsins bárust ekki öll nauðsynleg gögn til afgreiðslu málsins í tíma eða voru ekki nægjanlega ítarleg. Við samþykkjum tillögu meirihlutans með þeim fyrirvara að fullgild gögn berist fyrir undirritun verksamnings. Umrædd gögn eru nauðsynlegur hluti samningsins og verða að liggja fyrir.
Oddviti bar samninginn undir atkvæði sveitarstjórnar sem samþykkti samhljóða.

4.
Samþykkt um búfjárhald í Strandabyggð
Lögð fram samþykkt um búfjárhald í Strandabyggð til seinni umræðu.
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.
Samþykktin var borin undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

5.
Tillaga Framsóknar og óháðra um stofnun Byggðaráðs Strandabyggðar
Lögð fram tillaga Framsóknar og óháðra um stofnun Byggðaráðs þar sem ráðið myndu skipa oddvitar allra lista í sveitarstjórn.
Oddviti fól Sigurbirni Rafni Úlfarssyni að fylgja erindinu úr hlaði. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og las upp tillöguna.
Oddviti tók fram að skv. 5 kafla í sveitarstjórnarlögum og gr. 35 kemur fram eftirfarandi: „Sveitarstjórn getur ákveðið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að kosið skuli byggðarráð. Í sveitarstjórnum sem eru skipaðar fimm aðalfulltrúum er þó ekki heimilt að kjósa byggðarráð.“ Oddviti fagnar þó tillögunni um aukið samráð og leggur til að sveitarstjórn sinni þessu.
Kjartan Jónsson tók til máls og lagði til að vinnufundir yrðu nýttir sem þetta samráð.
Til máls tóku: Marta Sigvaldadóttir, Jón Örn Haraldsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson.
Jón Örn Haraldsson lagði til að farið yrði í frekari vinnu til að móta reglulega vinnufundi og nýta erindið sem grunn að frekari útfærslu.
Oddviti bar undir atkvæði sveitarstjórnar tillögu Framsóknar og óháðra varðandi stofnun byggðaráðs. Tillagan var felld með þremur atkvæðum Vegvísis gegn einu atkvæði Framsóknar og óháðra. Strandabandalagið sat hjá.
Oddviti bar undir atkvæði tillögu Jóns Arnar Haraldssonar. Sveitarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða.

6.
Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Lögð fram umsókn um skólavist tveggja grunnskólanemenda í skóla hjá Kópavogsbæ.
Oddviti gaf orðið laust. Kjartan Jónsson tók til máls.
Oddviti lagði til að umsóknin yrði samþykkt. Borið undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

7.
Magnea D. Hlynsdóttir, ósk um laun í námsleyfi
Jón Örn Haraldsson óskaði eftir að víkja sæti vegna vanhæfis. Oddviti bar óskina undir samþykki sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða. Inn kom varamaðurinn Laufey Heiða Reynisdóttir og tók sæti á fundinum.
Oddviti lagði fram umsókn frá Magneu Dröfn Hlynsdóttur sem sækir nám í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við HÍ. Oddviti lagði til að umsóknin yrði samþykkt og bar undir atkvæði sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða.
Laufey Heiða Reynisdóttir vék af fundi og Jón Örn Haraldsson tók aftur sæti á fundinum.

8.
Erindi frá leigjendum í Þróunarsetri, styrkir til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni
Lagt fram erindi varðandi styrkumsóknir um uppbyggingu vinnustaðaklasa en opið er fyrir umsóknir hjá Byggðastofnun til 28. september.
Oddviti kynnti að starfsmaður Vestfjarðarstofu hafi boðið aðstoð sína við að sækja um styrk til eflingar Þróunarsetursins og gaf orðið laust.
Eftirtaldir tóku til máls: Kjartan Jónsson, Marta Sigvaldadóttir og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem styðja tillöguna.
Oddviti lagði til að erindið yrði samþykkt og ber undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

9.
Verkefni sveitarstjóra ágúst 2026
Lögð fram verkefnaskýrsla sveitarstjóra.
Oddviti gaf orðið laust. Marta Sigvaldadóttir tók til máls og spurði um stöðuna á samtali við framkvæmdaraðila v. Hótel Stranda. Dagrún Fanný Liljarsdóttir tók til máls og svaraði að fundur yrði á morgun með þeim aðilum.
Skýrslan lögð fram til kynningar að öðru leiti.

10.
Velferðarnefnd, fundargerð 61. fundar 25. ágúst 2026
Lögð fram fundargerð Velferðarnefndar. Oddviti sem er formaður nefndarinnar fór yfir helstu liði fundarins. Reglur um akstursþjónustu sem rædd var á fundinum var lögð fram til samþykktar í næsta lið.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11.
Reglur á þjónustusvæði Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps um akstursþjónustu
Lagðar fram samræmdar akstursreglur á þjónustusvæði Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.
Oddviti gaf orðið laust. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og benti á að gjaldskrá vegna akstursþjónustu væri ekki birt á vef sveitarfélaganna.
Reglurnar bornar undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

12.
Aðalfundur Félagsþjónstu Stranda og Reykhólahrepps 2026 ásamt ársreikningi
Lögð fram fundargerð frá aðalfundi Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps sem haldinn var 25.ágúst sl. ásamt ársreikningi 2025. Oddviti fór yfir fundargerðina og umræður fundarins og gaf síðan orðið laust.
Enginn tók til máls. Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.
Sorpsamlag Strandasýslu, fundargerð aðalfundar 2026 ásamt ársreikningi
Lögð fram fundargerð frá aðalfundi Sorpsamlags Strandasýslu sem haldinn var 31. ágúst sl. ásamt ársreikningi 2025.
Oddviti fól Kjartani Jónssyni stjórnarmanni í Sorpsamlagi Strandasýslu að fara yfir fundargerðina og hann fór yfir fundargerðina og umræður fundarins.
Oddviti gaf orðið laust.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og óskaði eftir að framvegis yrði liður í ársreikningi varðandi þjónustukaup sundurliðaður frekar. Kjartan Jónsson tók undir með Sigurbirni Rafni Úlfarssyni.
Fundargerð og ársreikningur að öðru leiti lögð fram til kynningar.

14.
Drög að frumvarpi v. sameiningar sýslumannsembætta
Lögð fram drög að frumvarpi v. sameiningar sýslumannsembætta sem nú er í samráðgátt stjórnvalda.
Oddviti gaf orðið laust.
Jón Örn Haraldsson tók til máls og vonast til að tillaga varðandi eflingu starfseminnar verði efld. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls.
Sveitarstjórn Strandabyggðar bindur vonir um að staðið verði við áherslur Dómsmálaráðuneytisins um aukna þjónustu á landsbyggðinni, óháð búsetu og jafnt aðgengi landsbyggðar og komi ekki til með að skerða þjónustu eða störf í Strandabyggð.
Oddviti bar tillögu þessa undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

15.
Náttúruhamfaratrygging Íslands. Erindi til sveitarstjórnar.
Lagt fram erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands varðandi áhrifa laga nr. 55/1992 varðandi byggingar mannvirkja á þekktum flóðasvæðum.
Oddviti gaf orðið laust.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og óskaði eftir að taka málið upp hjá US nefnd til úrvinnslu.
Oddviti lagði til að erindinu verði vísað til US nefndar til umfjöllunar og bar undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

16.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Erindi til sveitarstjórnar frá faghópi 3 í Rammaáætlun
Lagt fram erindi frá ráðuneytinu varðandi álit sveitarfélagsins á vindorkumannvirkjum.
Oddviti gaf orðið laust. Jón Örn Haraldsson tók til máls og óskaði afstöðu sveitarstjórnar varðandi hugsanlegt vanhæfi sitt vegna tengsla við landeigendur í Geiradal.
Oddviti taldi að Jón Örn hefði ekki fjárhagslegan ávinning og því ekki um vanhæfi að ræða.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og tók undir með oddvita.
Oddviti bar hugsanlegt vanhæfi undir atkvæði sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða að Jón Örn Haraldsson væri ekki vanhæfur í umræðu um þennan lið.
Oddviti gaf orðið laust. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson lagði til að sveitarstjórn myndi kynna sér málið vel og skila inn sameiginlegri umsögn. Málið sé stórt og umdeilt.
Oddviti bar tillögu Sigurbjörns Rafn Úlfarssonar undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

17.
Samband sveitarfélaga fundargerð stjórnar nr. 1001
Fundargerð lögð fram til kynningar.