Sveitarstjórn Strandabyggðar
1394. fundur
11. ágúst 2026
kl.
16:06
-
18:10
í Hnyðju
Nefndarmenn
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Oddviti
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Varaformaður
Anna Karen Amin Kolbeins
Varamaður
Kjartan Jónsson
Aðalmaður
Þorgeir Pálsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Heiðrún Harðardóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Heiðrún Harðardóttir
verkefnastjóri
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemd væri gerð við fundarboðið.
Þorgeir Pálsson er ekki með athugasemd heldur spurningu, en hann gerði ráð fyrir erindi varðandi Brandskjól og uppbyggingarsamning vegna Hótel Strandir. Oddviti tilgreinir að beðið er með uppbyggingarsamning eftir að sveitarstjóri hafi störf og eftir er að funda með Mokað og keyrt varðandi Brandskjól.
Fundargerð lesin yfir.
Dagskrá
1.
Viðauki IV við fjárhagsáætlun 2026
Lagður er fram svohljóðandi viðauki IV við fjárhagsáætlun Strandabyggðar vegna ársins 2026 á fundi sveitarstjórnar þann 11 ágúst 2026:
Framkvæmdir:
Framkvæmdir við hússtjórnarkerfi í Íþróttamiðstöð. Um er að ræða tengingu á hitakatli og dælum. Með þeirri tengingu verður hægt að hafa fulla stýringu á búnaðinum í gegnum hússtjórnarkerfið og jafnframt fá sjálfvirkar viðvaranir ef bilanir eða önnur frávik koma upp. Þessi framkvæmd er því mikilvægt lokaskref í að fullnýta möguleika nýja kerfisins, auka rekstraröryggi og stuðla að áframhaldandi orkusparnaði.
Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður verði 19.000.000.- upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 9.340.000.- og samþykkt var í viðauka III að hækka fjárheimildir í 16.000.000
Niðurstaða:
Lækkun verður á handbæru fé í árslok um úr 36.274.000 í 33.294.000
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann telur rétt að taka fram að um endurnýjun á upprunarlegu kerfi er að ræða. Hann fagnar að þessum hluta í íþróttamiðstöðinni er komið í eðlilegt horf.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og tekur undir með Þorgeiri og tekur vel í viðaukann.
Oddviti tók til máls.
Oddviti lagði því næst Viðauka IV við fjárhagsáætlun 2026 fyrir fundinn til afgreiðslu og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu.
Samþykkt samhljóða.

2.
Ráðning sveitarstjóra Strandabyggðar
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson óskar eftir samþykki sveitarstjórnar að víkja af fundi vegna vanhæfnis. Samþykkt samhljóða. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson víkur af fundi og Kristín Anna Oddsdóttir tekur hans sæti.
Lagður er fram ráðningarsamningur við Dagrúnu Fanný Liljarsdóttur sem sveitarstjóra.
Oddviti lýsir yfir ánægju með samninginn og komandi samstarf við Dagrúnu. Gert er ráð fyrir að Dagrún hefji störf 12. ágúst og yfir núverandi kjörtímabil.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann óskar Dagrúnu til hamingju með starfið og Strandabyggð með að vera komin með sveitarstjóra og telur mikilvægt að sveitarstjóri hefji störf sem fyrst. Strandabandalagið óskar efir að leggja fram eftirfarandi bókun:
„Í sveitarstjórnarlögum segir m.a. um ráðningu sveitarstjóra: „VI. kafli. Framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélaga.
54. gr. Ráðning framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn ræður framkvæmdastjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélags. Heimilt er tveimur sveitarfélögum eða fleiri að ráða sameiginlegan framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin“. Þetta fyrirkomulag er einnig undirstrikað í Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Strandabyggðar.
Það er því alveg ljóst að það er á ábyrgð sveitarstjórnar að ráða sveitarstjóra. Nú hefur það gerst að meirihluti sveitarstjórnar Strandabyggðar, hefur gengið frá ráðningarsamningi við einstakling um starf sveitarstjóra, án alls samráðs við minnihlutann. Þrátt fyrir ítrekað tal um „samtal“ og „samvinnu“ af hálfu Vegvísis í kosningabaráttunni, virðist skorta verulega á efndir þeirra loforða. Þessi ráðning sveitarstjóra er annað dæmið á skömmum tíma, þar sem ekkert samráð er haft við minnihlutann. Hið fyrra var umsögn um endurskoðun á byggðakvótakerfinu, sem tekin var fyrir á sveitarstjórnarfundi 1393, þann 7.7. sl. Bæði þessi mál eru sett fram sem mál sveitarstjórnar, en án aðkomu minnihlutans.
Strandabandalagið óskar nýráðnum sveitarstjóra til hamingju með sérlega spennandi starf, enda óvenju mörg áhugaverð og viðamikil innviðamál sem bíða, eftir afkastamikið síðasta kjörtímabil undir forystu Strandabandalagsins. Strandabandalagið mun styðja sveitarstjóra í hans störfum í hvívetna eins og efni standa til.
Strandabandalagið getur hins vegar ekki annað en setið hjá í þessu máli, líkt og hinu fyrra, þar sem ekki er hægt að skrifa undir og ábyrgjast mál í nafni sveitarstjórnar sem Strandabandalagið hafði enga aðkomu að. Það er ákvörðunartakinn sem ber ábyrgðina“.
Kristín Anna Oddsdóttir tók til máls. Hún fagnar ráðningu sveitarstjóra. Framsókn og óháðir í Strandabyggð leggja fram eftirfarandi bókun:
"Gerðar eru athugasemdir við það hvernig staðið var að ráðningu sveitarstjóra, einkum hvað varðar upplýsingagjöf, gagnsæi, samtal og aðkomu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Strandabyggðar er skipuð fimm kjörnum fulltrúum. Samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar fer sveitarstjórn með stjórn sveitarfélagsins og meðal verkefna hennar er að ráða sveitarstjóra. Þá kveður 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 á um að sveitarstjórn ráði framkvæmdastjóra sveitarfélagsins.
Í þessu máli upplýsti meirihlutinn fulltrúa minnihluta um að umsækjandi væri til skoðunar og að haft yrði aftur samband. Það samtal átti sér ekki stað. Daginn eftir var ráðning sveitarstjóra kynnt opinberlega, áður en málið hafði komið til formlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Þegar niðurstaða í jafn mikilvægu máli er kynnt áður en sveitarstjórn tekur málið formlega fyrir vakna eðlilega spurningar um raunverulegt vægi þeirrar afgreiðslu.
Gagnsæi, samtal og samvinna eru grundvöllur trausts. Þau birtast í vinnubrögðum, upplýsingamiðlun og raunverulegri aðkomu kjörinna fulltrúa að mikilvægum ákvörðunum.
Bókunin snýr eingöngu að ferlinu og vinnubrögðunum, ekki þeim einstaklingi sem ráðinn var. Nýjum sveitarstjóra er óskað velfarnaðar í starfi.
Lögð áhersla á að framvegis verði mikilvæg mál sveitarfélagsins unnin með gagnsæi, virðingu og samtali að leiðarljósi og með raunverulegri aðkomu sveitarstjórnar í heild sinni."
Oddviti tók til máls og þakkar fyrir gagnlegar og góðar ábendingar sem tekið verður tillit til í áframhaldandi samstarfi.
Oddviti lagði því næst samninginn fyrir fundinn til afgreiðslu og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu.
Samþykkt með þremur atkvæðum G-lista Vegvísis, Þorgeir Pálsson og Kristín Anna Oddsdóttir sitja hjá.
Oddvita falið að undirrita samninginn við Dagrúnu eftir að orðalag um vinnustundir hefur verið lagfært.

Kristín Anna Oddsdóttir víkur af fundi og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tekur sæti að nýju.
3.
Náttúruverndarstofnun, samningur um refaveiðar 2026-2028
Oddviti rakti tilurð máls. Orðið gefið laust.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Um er að ræða staðlaðan samning milli sveitarfélags og ríkis. Heiðrún Harðardóttir svarar spurningum Sigurbjarnar um kostnað sveitarfélagsins umfram greiðslur frá Náttúruverndarstofnun.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann nefnir að það væri gott fyrir Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar að greina kostnað sveitarfélagsins vegna refa- og minkaveiðar.
Samningur lagður fram til kynningar.
Tillaga Þorgeirs um að vísa til ADH nefndar að fara í kostnaðargreiningu borið undir atkvæði. Samþykkt samhljóða.

4.
Árneshreppur, samstarf um skólahald 2026-2027
Oddviti rakti tilurð máls.
Árneshreppur hefur leitað til Strandabyggðar til áframhaldandi skólasamstarfs veturinn 2026-2027 með samskonar móti og á síðasta skólaári.
Orðið gefið laust.
Kjartan Jónsson tók til máls. Hann tekur vel í erindið og mikilvægt að halda samstarfinu góðu.
Þorgeir Pálsson tók undir orð Kjartans.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Hann áttar sig ekki á umfangi samstarfsins en er hlynntur samstarfi og horfa þarf til kostnaðar vegna samstarfsins og að Strandabyggð sé ekki að greiða með þjónustunni.
Oddviti tók til máls og segir að út frá fundi með oddvita Árneshrepps verði leitað til viðeigandi ráðuneytis vegna gerð samnings þar sem Strandabyggð yrði leiðandi sveitarfélag.
Oddviti vísar málinu um samstarf við Árneshrepp um skólahald til afgreiðslu. Samþykkt samhljóða.

5.
Kaldrananeshreppur, samstarf um skólahald 2026-2027
Oddviti rakti tilurð máls.
Oddviti Kaldrananeshrepps hafði samband við oddvita til að ræða samstarf um skólahald veturinn 2026-2027 vegna skorts á starfsfólki í Grunnskólanum á Drangsnesi sem og aðstöðuleysi Grunnskólans á Hólmavík.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann tekur jákvætt í erindið og fer yfir hugmyndir sem hafa komið upp til að leysa aðstöðuleysi verkgreina í grunnskólanum.
Oddviti tók til máls og nefnir að það þurfi að gera aðstöðuna betri til að geta byrjað strax í haust en það er ekki staðan hjá grunnskólanum eins og er og er því horft til samtarfs við Kaldrananeshrepp.
Þorgeir Pálsson spyr hvort að það eigi að auglýsa eftir tónlistarkennara. Oddviti staðfestir að það verði gert.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Hann tekur jákvætt í erindið, en þekkir lítið til um útfærslu á samstarfinu og ítrekar að kostnaður og kostnaðardreifing þurfi að liggja ljóst fyrir.
Oddviti tekur undir með Sigurbirni varðandi kostnaðardreifingu.
Oddviti leggur tillögu um samstarf um skólahald við Kaldrananeshrepp til afgreiðslu. Samþykkt samhljóða.

6.
Securitas hf, úttekt á brunaviðvörunarkerfi NFS-4 - Félagsheimili
Oddviti rakti tilurð máls. Orðið gefið laust.
Kjartan Jónsson tók til máls.
Úttektarskýrsla lögð fram til kynningar.

7.
Lyfjastofnun, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um lyfjaútibú B
Oddviti rakti tilurð máls.
Óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna breytingar á rekstraraðila lyfsölu heilsugæslunnar. Um er að ræða yfirtöku á rekstri og mun starfsemin halda óbreyttri mynd.
Orðið gefið laust.
Kjartan Jónsson tekur til máls og vill leggja áherslu á mikilvægi þess að ekki verði skerðing á þjónustu til íbúa.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Hann tekur undir með Kjartani Jónssyni og telur að nýr rekstraraðili sé með góðan rekstur á öðrum stöðum.
Oddviti tók til máls.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson hefði viljað fá erindið fyrr sent til sveitarstjórnar.
Þorgeir Pálsson tók til máls og tekur undir með Sigurbirni.
Kjartan Jónsson tekur til máls.
Sigurbjörn Rafn telur að umsögnin þurfi að innihalda að vonast sé eftir að ekki verði skerðing til íbúa og að sveitarstjórn óski rekstraraðilum velfarnaðar í starfi.
Þorgeir Pálsson nefnir breytingar á stjórnun heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Hólmavík og telur verkefni fyrir oddvita að setja sig í samband við yfirstjórn um þjónustu í Strandabyggð.
Oddviti leggur til að tillaga Sigurbjörns verði send á Lyfjastofnun. Samþykkt samhljóða.

8.
Umsagnarbeiðni, tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi
Oddviti rakti tilurð máls.
Óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar fyrir tímabundið áfengisleyfi.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann tekur jákvætt í erindið.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og leggur til að sveitarstjórn taki jákvætt í erindið.
Kjartan Jónsson tók til máls og er sammála fyrri ræðumönnum
Oddviti leggur til að Sveitarstjórn taki vel í umsögnina og gerir ekki athugasemd við leyfið.

9.
Samtök um dýravelferð á Íslandi, hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Oddviti rakti tilurð máls þar sem sveitarfélög eru hvött til að taka afstöðu um loðdýrarækt í aðalskipulagi. Orðið gefið laust.
Kjartan Jónsson tók til máls. Hann nefnir að þetta þurfi að hafa í huga við næstu vinnu aðalskipulags.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Hann telur hæpið að banna atvinnugrein í aðalskipulagi.
Þorgeir Pálsson tók til máls og tekur undir með Sigurbirni. Það eru lög í landinu sem heimila loðdýrarækt sama hver skoðun á því er. Það þarf að fara varlega í þetta þegar unnið er að aðalskipulagi.
Anna Karen Amin Kolbeins tók til máls. Hún telur að það sé ekki til fyrirstöðu að koma með afstöðu með eða á móti og telur að um sé að ræða góða hvatningu, eftir það sem kom upp í Mosfellsdal, þar sem mikið lífríki er hér í kring.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson telur varhugavert að taka einstaka atriði úr skipulagsvinnu.
Erindi lagt fram til kynningar.

10.
Velferðarnefnd, fundargerð 60. fundar 6.8.26
Oddviti, sem er jafnframt formaður Velferðarnefndar, fór yfir fundargerð nefndarinnar.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann fagnar að það sé komin dagsetning fyrir aðalfund og að skerpa þurfi á utanumhaldi félagsþjónustunnar.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og spyr hvort rekstur félagsþjónustunnar sé utan við rekstur sveitarfélagsins. Oddviti svarar að Strandabyggð gerir ráð fyrir kostnaði vegna félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps í fjárhagsáætlanagerð.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.
Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd, fundargerð 6.8.26
Oddviti fór yfir fundargerðina í fjarveru Jóns Arnar, formanns Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls og fagnar að fjallskilaseðill liggi fyrir.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tekur undir með Þorgeiri Pálssyni.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls og fagnar að fjallskilaseðill liggi fyrir.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tekur undir með Þorgeiri Pálssyni.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12.
Fjallskilaseðill 2026
Oddviti bar Fjallskilaseðil 2026 til atkvæða og kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnarmanna með handauppréttingu.
Samþykkt samhljóða.
Starfsmönnum skrifstofu Strandabyggðar er falið að birta Fjallskilaseðil 2026 á heimasíðu sveitarfélagsins og koma áleiðis til bænda.

13.
Fræðslunefnd, fundargerð 6.8.26
Oddviti gaf Kjartani Jónssyni, formanni Fræðslunefndar, orðið.
Kjartan Jónsson fór yfir fundargerð nefndarinnar.
Orðið gefið laust.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Hann spyr um notkun snjalltækja innan skólans við kennslu. Oddviti svarar erindinu og segir að búið er að kaupa fartölvur fyrir nemendur í 3. bekk og upp úr. Spjaldtölvur eru komnir til ára sinna og eru orðnir lélegir og þarf að fjárfesta í því.

14.
Samstarf við Grunnskólann á Drangsnesi veturinn 2026-2027
Oddviti gaf Kjartani Jónssyni, formanni Fræðslunefndar, orðið.
Kjartan Jónsson tók til máls og fór yfir umræður nefndarinnar um erindið. Hann segir að erindið hafi einnig verið tekið fyrir hjá Skólaráði og að þetta sé ekki að fullu útfært.
Orðið gefið laust.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls. Hann spyr um umfang skólaaksturs vegna tillögunnar. Kjartan Jónsson segir að þetta hafi verið rætt en er ekki að fullu útfært.
Oddviti segir að leggjast þurfi yfir bílakostinn.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann spyr hvort þessi breyting kalli á viðauka. Oddviti svarar að svo geti verið, sem og útfærsla á list- og verkgreinum. Það þarf að greina kostnaðinn vegna breytinganna. Oddviti nefnir að tíminn sé knappur og að því fleiri sem koma að útfærslunni því betra.
Oddviti bar tillögu Fræðslunefndar til afgreiðslu.

15.
Skráningardagar Leikskólans Lækjarbrekku
Oddviti gaf Kjartani Jónssyni, formanni Fræðslunefndar, orðið.
Kjartan Jónsson tók til máls og fór yfir umræður nefndarinnar um erindið.
Orðið gefið laust.
Oddviti fagnar erindinu og tækifæri fyrir foreldra að lækka kostnað.
Oddviti bar tillögu Fræðslunefndar til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
Kjartan Jónsson tók til máls og fór yfir umræður nefndarinnar um erindið.
Orðið gefið laust.
Oddviti fagnar erindinu og tækifæri fyrir foreldra að lækka kostnað.
Oddviti bar tillögu Fræðslunefndar til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
16.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið - Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga
Lagt er fram erindi Innviðaráðuneytisins vegna stefnumótunar í málefnum sveitarfélaga.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Um er að ræða skýrt verkefni sem þarf að fara í.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og tekur undir með Þorgeiri. Hann óskar eftir að vera með í samráði við vinnu að umsögn sveitarfélagsins.
Þorgeir Pálsson segir að sem sveitarstjórn þurfi þau að setja fram hvað sveitarstjórnin vill sjá gerast.
Erindið lagt fram til kynningar.

17.
HS Orka hf, Hvalárvirkjun, upplýsingapóstur júlí 2026
Oddviti rakti tilurð máls og segir að búið er að bjóða sveitarstjórn á fund varðandi málefnið.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls og telur að sveitarstjórn eigi að þiggja boð um fund þar sem um er að ræða mikilvægt málefni.
Kjartan Jónsson tók til máls og tekur undir með Þorgeiri.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tekur undir með fyrri ræðumönnum.
Oddviti mun setja sig í samband við HS Orku og þiggja boð um fund.

18.
Umhverfis- og orkustofnun. Upplýsingar v.vatnaáætlunar 2028-2033
Oddviti rakti tilurð máls.
Orðið gefið laust.
Oddviti telur mikilvægt að sveitarstjórn vinni saman að þessu og leiti mögulega til utanaðkomandi ráðgjafar.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og tekur undir með oddvita að vanda þurfi til verka.

19.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - Kynningarbréf
Lagt er fram kynningarbréf Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
Oddviti leggur til að bréfið verði lagt fyrir viðeigandi nefndir sveitarfélagsins.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann segir mikilvægt fyrir sveitarstjórnir að vera meðvitaðir um starfsemi samtakanna. Hann hvetur kjörna fulltrúa að fylgjast með starfi samtakanna.

20.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - Kynningarbréf
Lagt er fram kynningarbréf samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
Orðið gefið laust.
Þorgeir Pálsson tók til máls og telur að sveitarstjórn þurfi að kynna sér starfsemi samtakanna.

21.
Samtök orkusveitarfélaga - Kynningarbréf
Lagt er fram kynningarbréf Samtaka orkusveitarfélaga.
Orðið gefið laust.
Kjartan Jónsson tók til máls. Hann telur að sveitarstjórn þurfi að kynna sér hvort sveitarfélagið eigi að vera hluti að samtökunum.
Þorgeir Pálsson tekur undir með Kjartani og telur að Strandabyggð ætti að skoða inngöngu með jákvæðum huga. Hann tilgreinir að framundan sé lagabreyting varðandi fasteignamat orkumannvirkja sem er myndi leiða til tekjuaukningar til sveitarfélagsins. Það er hlutverk sveitarfélagsins að taka þátt í þeirri vinnu.