Fara í efni

Sveitarstjórn Strandabyggðar

1392. fundur
9. júní 2026 kl. 16:01 - 18:58
í Hnyðju
Nefndarmenn
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir Oddviti
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson Varaoddviti
Jón Örn Haraldsson Aðalmaður
Kjartan Jónsson Aðalmaður
Þorgeir Pálsson Aðalmaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemd væri gerð við fundarboðið. Jón Örn Haraldsson gerði athugasemd við fundarboðið og sagði að gögn hefðu borist seint vegna liðar nr. 4 og fylgigögn hafi ekki borist að öllu leiti samkvæmt samningi. Hann lagði til að erindinu yrði frestað til næsta fundar. Oddviti gaf orðið laust: Þorgeir Pálsson tók til máls og mótmælti frestun og taldi varhugavert tefja málið frekar þar sem bið væri eftir húsnæði. Hann taldi að öll gögn hefðu komið fram sem við eigi. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók til máls og sagði gögn vanta í fundarboðið. Hann hefði viljað sjá verkáætlun til að vinna fjárhagsáætlun í samræmi. Oddviti lagði til að lið nr. 4 yrði frestað til næsta fundar. Samþykkt með þremur atkvæðum. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sat hjá og Þorgeir Pálsson greiddi atkvæði á móti.
Dagskrá
1.
Kosning í nefndir og ráð
Málsnúmer 2605036
Lögð er fram eftirfarandi tillaga um skipan í nefndir:

Kjörstjórn:
Bryndís Sveinsdóttir
Þorsteinn Sigfússon
Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir

til vara:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Gunnar Númi Hjartarson
Guðfinna Lára Hávarðardóttir

Stjórn Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps
aðalmaður:
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir

til vara:
Vísað til næsta fundar

Oddviti lagði til breytingu á skipan US nefndar vegna kynjahalla þ.e. að Sigríður Guðmundsdóttir taki sæti Péturs Matthíassonar í nefndinni.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Þorgeir Pálsson


Svæðisráð um Strandsvæðaskipulag Vestfjarða

Lagt er til að Hafdís Sturlaugsdóttir verði fulltrúi Strandabyggðar


Skipað verður í fleiri nefndir á næsta fundi sveitarstjórnar.


Borið upp til samþykktar og nefndarskipan samþykkt samhljóða.
2.
Sumarleyfi sveitarstjórnar og sumarlokun skrifstofu
Málsnúmer 2605039
Oddviti gaf skrifstofustjóra orðið og hún fór yfir tillöguna.

Lagt er til að lokun skrifstofu vegna sumarleyfa verði frá 20. júlí til 4. ágúst og frá og með 12. júní verði skrifstofunni lokað á hádegi alla föstudaga.
Við lokun skrifstofu færist sími á vaktsíma áhaldahúss 835-3396.

Oddviti gefur orðið laust.

Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem spurði hvort lokun kl. 12 á föstudögum yrði til frambúðar. Skrifstofustjóri útskýrði að þessi lokun myndi gilda á sumarleyfistíma.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.

Oddviti ítrekaði fyrri tillögu að fundur sveitarstjórnar 14. júlí falli niður vegna sumarleyfa en þess í stað verði haldinn aukafundur í lok júní/byrjun júlí.

Oddviti gaf orðið laust, enginn tók til máls.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhjóða.

3.
Reglur um garðslátt fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
Málsnúmer 2605043
Oddviti fól skrifstofustjóra að kynna tillögu að reglum um garðslátt í Strandabyggð.

Oddviti gaf orðið laust: Jón Örn Haraldsson lagði til að reglur yrðu sendar til frekari umfjöllunar ADH nefndar eftir sumarið.

Oddviti bar tillöguna undir atkvæði. Samþykkt samhljóða.

Eftirtaldir tóku til máls: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Þorgeir Pálsson.

Sveitarstjórn lagði til eftirfarandi breytingar á orðalagi í fyrstu málsgrein og að reglurnar tækju gildi fyrir þetta sumar með breytingunni. Breyting er eftirfarandi:

„Reglur um garðslátt til elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Strandabyggð.“

Oddviti bar tillöguna undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
4.
Verksamningur vegna jarðvegsvinnu í Brandskjólum
Málsnúmer 2605042
Frestað til næsta fundar. Oddviti gaf orðið laust

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson lagði til að aukafundur sveitarstjórnar yrði haldinn sem fyrst eftir að gögn hafi borist svo að hægt verði að samþykkja verksamninginn.
5.
Erindi íbúa á Vitabraut v.akstursleiðar í Brandsskjól
Málsnúmer 2606007
Lagt fram erindi frá íbúum á Vitabraut með ósk um að sveitarstjórn skoði að breyta áætlaðri akstursleið um Vitabraut í Brandskjól.

Oddviti gaf orðið laust:

Til máls tóku:
Þorgeir Pálsson sem útskýrði að þrjár leiðir hafi verið skoðaðar varðandi aðgengi í Brandskjól og þessi leið hafi verið fyrir valinu.

Kjartan Jónsson sem spurði út í Hvolsmýrarbraut og hvort sú leið hafi verið skoðuð sem varanleg leið inn í hverfið.

Þorgeir Pálsson útskýrði að sú leið hafi verið skoðuð sem neyðarleið og gönguleið en væri ekki raunhæfur kostur sem varanleg leið.

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók undir með Þorgeiri Pálssyni en deildi jafnframt áhyggjum íbúa á Vitabraut. Hann telur vera svigrúm til að skoða skipulagið með það í huga að leysa verkefnið með öðrum hætti.

Kjartan Jónsson telur að ígrunda þurfi vel framtíðarlausnir í leið inn í hverfið.

Þorgeir Pálsson sagði ekki hafa staðið til að vera með þungaflutninga á Vitabraut heldur einungis akstur íbúa inn í hverfið.

Kjartan Jónsson spurði um hvaða leið hafi verið í tillögum fyrri sveitarstjórnar varðandi efnis- og þungaflutninga.

Þorgeir Pálsson svaraði að leiðin hafi átt að liggja í gegnum tjaldsvæðið.

Oddviti telur að svigrúm sé til að skoða betur leiðir til úrbóta.

Jón Örn Haraldsson lagði til að oddvita og skrifstofustjóra verði falið að svara erindinu miðað við umræður fundarins.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða
6.
Netöryggi í Strandabyggð, uppfærðar reglur
Málsnúmer 2601036
Oddviti bað skristofstjóra um að kynna breytingar á netöryggisreglum sem hún gerði.

Lagðar fram uppfærðar reglur um netöryggi í Strandabyggð.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku:
Þorgeir Pálsson sem fagnaði framlögðum reglum og vonast til að með reglunum verði borin meiri virðing fyrir gögnum.

Jón Örn Haraldsson tók til máls og spurði um eftirlit með meðhöndlun gagna. Skrifstofustjóri svaraði að það verði eflt með netöryggisreglum.

Oddviti tók undir varðandi mikilvægi regluverks um gagnaöryggi.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
7.
Skoðunarskýrsla HMS - raflagnir í Brunngötu 2
Málsnúmer 2605033
Lögð fram úttektarskýrsla H.M.S vegna raflagna í Leikskólanum Lækjarbrekku.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku: Kjartan Jónsson sem lagði til að ráðinn yrði rafverktaki sem gerir úrbætur sem fyrst. Þorgeir Pálsson tók undir með Kjartani Jónssyni.

Oddviti lagði til að skrifstofustjóra verði falið að koma úrvinnslu í farveg með forstöðumanni eignasjóðs.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
8.
Minnisblað Eflu v. sýnatöku á bókasafni í apríl 2026
Málsnúmer 2606002
Lagt fram minnisblað vegna sýnatöku á bókasafni í lok apríl 2026.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku:
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem spurði út í framkvæmdir í eldri hluta og hvort ekki væri tilefni til endurtöku sýna í bóksafni.

Þorgeir Pálsson fagnaði skýrslunni og tók fram að starfsmenn Eignasjóðs hafi farið eftir leiðbeiningum Eflu við opnun á aðgengi í bókasafn. Það er þó enn óljóst með ástand gömlu skólastofanna.

Jón Örn Haraldsson taldi að úrbóta væri þörf á gluggaumbúnaði bókasafns og á eldri hluta skólans og er sammála tillögu Sigurbjörns Rafns Úlfarssonar um að framkvæma nýja sýnatöku.

Þorgeir Pálsson tók undir með Sigurbirni Rafni Úlfarssyni og Jóni Erni Haraldssyni. Hann tók einnig fram að vorið 2023 hefði verið drenað ofan við húsið og að kynding hafi verið aukin til að þurrka húsnæðið.

Oddviti lagði til að sýni verði tekin í haust, staðan skoðuð og ákvörðun tekin í framhaldinu.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða
9.
Hundagerði á Hólmavík, erindi frá T-lista
Málsnúmer 2606006
Lagt fram erindi T-lista varðandi hundagerði á Hólmavík. Oddviti bað Þorgeir Pálsson að fylgja erindinu úr hlaði. Þorgeir fór yfir erindið.

Oddviti gaf orðið laust

Til máls tóku:

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem styður tilöguna.
Jón Örn Haraldsson tók til máls og styður tillöguna.
Þorgeir Pálsson tók til máls.

Oddviti leggur til að erindinu verði vísað til Umhverfis- og skipulagsnefndar

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
10.
Uppbyggingarsamningur við Hótel Strandir ehf. erindi frá T-lista
Málsnúmer 2606005
Lagt fram erindi T-lista varðandi uppbyggingarsamning við Hótel Strandir. Oddviti fól Þorgeiri Pálssyni að kynna erindið sem hann gerði og lagði til að gerður verði uppbyggingarsamningur við Hótel Strandir ehf.

Oddviti lagði til að jákvætt yrði tekið í erindið, boðað yrði til fundar með fulltrúum hótels Stranda og nýrri sveitarstjórn og erindinu vísað til næsta fundar.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem studdi samtal við fulltrúa Hótel Stranda ehf. hann lagði til að fundur verði haldinn sem fyrst.

Borið upp til samþykktar og samþykkt með fjórum atkvæðum en Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sat hjá.
11.
Lokaskýrsla Deloitte vegna útgáfu Byggðasögu Stranda
Málsnúmer 2601042
Lögð fram lokaskýrsla Deloitte hf. um útgáfu Byggðasögu Stranda.

Oddviti gaf orðið laust.

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson taldi engar nýjar upplýsingar hafi komið fram og að kostnaður sem féll á þessa útgáfu 2013 verði aldrei endurheimtur en að handrit bókarinnar sé til. Hann spyr skrifstofustjóra varðandi kostnað sem fallið hafi til vegna þessa.

Skrifstofustjóri svaraði að ekki hafi borist reikningur frá Deloitte hf. en að töluverður tími hafi farið í samantekt gagna úr bókhaldi hjá starfsmönnum skrifstofu.

Þorgeir Pálsson tók undir með Sigurbirni og sagði að ósk hafi verið frá íbúum að kanna hvað hefði verið til kostað í vinnu við bókina. Hann gerir sömuleiðs ráð fyrir að skýrslan verði birt á heimasíðunni.

Oddviti sagði þetta vera mikilvæga heimild og taldi eðlilegt að skoða útgáfu í framtíðinni. Í lokadrögum hafa engar nýjar upplýsingar komið í ljós sem gefa annað til kynna en að málinu sé lokið og engin þörf á að bregðast við.

Skýrslan er lögð fram til kynningar.
12.
Yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála
Málsnúmer 2605040

Lagt fram yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku:
Þorgeir Pálsson sagði skýrsluna vera vinnuskjal fyrir sveitarstjórn og að rétt væri að óska eftir fundi með forstöðumanni HMS þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir fyrirhuguðu hverfi í Brandskjólum og lagði til að skýrslunni yrði vísað til umfjöllunar US nefndar.

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson tók undir með Þorgeiri Pálssyni.

Oddviti lagði til að skýrslunni verði vísað til US nefndar til umfjöllunar

Samþykkt samhljóða. Að öðru leiti er skýrslan lögð fram til kynningar.
13.
Tilnefning fulltrúa Strandabyggðar á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2605028
Lagt fram erindi Sambands sveitarfélaga um kosningu landsþingsfulltrúa Strandabyggðar sem á rétt á einum aðalfulltrúa sem handhafa kjörbréfs.

Oddviti gaf orðið laust.

Jón Örn Haraldsson tók til máls og lagði til að Hrafnhildur Þorsteinsdóttir verði handhafi kjörbréfs Strandabyggðar.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
14.
Kosning í Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða og kjörnefnd Fjórðungssambands
Málsnúmer 2605029
Oddviti tók til máls og lagði til að Jón Örn Haraldsson og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson verði fulltrúar í Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða.

Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.

Oddviti lagði fram tillögu um að Þorgeir Pálsson verði fulltrúi í kjörnefnd Fjórðungssambands Vestfjarða.

Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
15.
Fundargerð US nefndar 4.06.26
Málsnúmer 2606008
Oddviti bað Sigurbjörn Rafn Úlfarsson sem formann US nefndar að fara yfir fundargerðina og tók hann til við að fara yfir efni og umræður fundarins.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku:
Þorgeir Pálsson og tók undir athugasemd nefndarinnar í lið nr. 3.
Kjartan Jónsson spurði út í grenndarkynningu á Kópnesbraut í lið 3.

Liður nr. 1 í fundargerð US nefndar sem snýr að breytingu á deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjunar. Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti samþykkt Umhverfis- og skipulagsnefndar að heimila vinnu við deiliskipulagsbreytingu.

Borið undir atkvæði sveitarstjórnar sem samþykkti samhljóða.

Að öðru leiti var fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.
Umsókn um byggingarleyfi að Skeiði
Málsnúmer 2605051
Lögð fram til samþykktar sveitarstjórnar umsókn Orkubús Vestfjarða um byggingarleyfi að Skeiði 5 en US nefnd lagði til að sveitarstjórn samþykki leyfið.

Oddviti gaf orðið laust, enginn tók til máls.

Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
17.
Þinggerð aukaþings Fjórðungssambands Vestfirðinga 15.04.2026
Málsnúmer 2605032
Þinggerð lögð fram til kynningar

Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls


18.
Boð á 71. Fjórðungsþing á kosningaári
Málsnúmer 2605031
Boðað er á 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga og kynnt nýjum fulltrúum í sveitarstjórn að afloknum kosningum til sveitarstjórna. Þingið verður haldið þann 24. júní 2026 í fjarfundi.

Lagt fram til kynningar og sveitarstjórnarfólk hvatt til að skrá sig á þingið.

Oddviti gaf orðið laust:
Þorgeir Pálsson hvatti til skráningar og á þessu þingi yrði sagt frá Fjórðungsþingi haustið 2026 og hvatti hann nýja fulltrúa til að mæta á það.
19.
Áfangastaðaáætun Vestfjarða uppfærð áfangastaðaáætun 2024
Málsnúmer 2604026
Uppfærð áfangastaðaáætlun lögð fram til kynningar.

Oddviti gaf orðið laust:

Til máls tóku:
Skrifstofustjóri tók fram að Heiðrún Harðardóttir væri fulltrúi Strandabyggðar í vinnu við áfangastaðaáætlun.

Oddviti tók fram mikilvægi þess að sveitarstjórnarfólk kynnti sér skýrsluna.
20.
Náttúrustofa Vestfjarða, fundargerð stjórnar nr. 159, 11. maí 2026
Málsnúmer 2605027
Fundargerð lögð fram til kynningar.

Oddviti gaf orðið laust.

Til máls tóku:
Þorgeir Pálsson vakti athygli á því að áhersla Náttúrustofu Vestfjarða væri ekki á Strandabyggð og vill brýna sveitastjórnarfólk til að skoða stefnu stofnunarinnar um mönnun starfsstöðvar á svæðinu.

Oddviti telur nauðsynlegt að taka samtalið við stofnunina.

Jón Örn Haraldsson tók undir það sem hefur komið fram og finnst leitt að stofnanir á vegum ríkisins eða á Vestfjarðavísu sýni starfsmannamálum minni áhuga í Strandabyggð.

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson lagði til að erindi þess efnis verði sent á Náttúrustofu.

Þorgeir Pálsson tók fram að það hefði verið gert reglulega.

Jón Örn Haraldsson lagði til að oddvita og skrifstofustjóra verði falið að senda erindi á Náttúrustofu með ósk um samtal.

Borið upp undir atkvæði sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

21.
Starfsendurhæfing Vestfjarða. Ársreikningur, ársskýrsla og dagskrá aðalfundar
Málsnúmer 2606004
Ársreikningur, ársskýrsla og dagskrá aðalfundar sem haldinn var 27. maí sl. eru lagðar fram til kynningar

Oddviti gaf orðið laust, enginn tók til máls.

22.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerð stjórnar nr. 998, 8.5.26 og 999 28.5.26
Málsnúmer 2601002
Fundargerðir lagðar fram til kynningar

Oddviti gaf orðið laust, enginn tók til máls.