Fara í efni

Sveitarstjórn Strandabyggðar

1390. fundur
12. maí 2026 kl. 16:06 - 19:40
í Hnyðju
Nefndarmenn
Þorgeir Pálsson Oddviti
Grettir Örn Ásmundsson Varaoddviti
Júlíana Ágústsdóttir Aðalmaður
Matthías Sævar Lýðsson Aðalmaður
Hlíf Hrólfsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri
Oddviti bauð alla velkomna. Spurt var um athugasemdir við fundarboðun. Engin athugasemd var gerð við fundarboðið.
Dagskrá
1.
Ársreikningur Strandabyggðar 2025, seinni umræða ásamt endurskoðunarskýrslu 2025
Málsnúmer 2604034
Oddviti rakti tilurð máls. Lítil breyting er á helstu niðurstöðum frá fyrri umræðu og jákvætt að tap er mun minna en afkomuspá s.l. haust, sem fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Oddviti bauð því næst skrifstofustjóra að bæta við ef þörf væri á og gaf svo orðið laust.

Salbjörg Engilbertsdóttir tók til máls og útskýrði að niðurstaða rekstrar úr A-hluta væri neikvæð um 2.175.000 og úr A og B hluta væri neikvæð um 21.457.000. Handbært fé frá rekstri úr A og B hluta í árslok eru tæpar 52.000.000 og handbært fé á bankareikningum í árslok eru kr. 19.809.000. Skuldahlutfall A og B hluta er 144% í lok árs 2025 en var 150% árið áður. Salbjörg fór sömuleiðis yfir endurskoðunarskýrslu KPMG.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og spurði út í bókunarfjárhæð lána. Matthías óskaði sömuleiðis eftir að texti yrði leiðréttur í fundargerð og gerður skýrari og ritari brást við því.

Oddviti lagði því næst ársreikning Strandabyggðar 2025 fyrir fundinn til samþykkis og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
2.
Viðauki III við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605015
Lagður er fram svohljóðandi viðauki III við fjárhagsáætlun Strandabyggðar vegna ársins 2026 á fundi sveitarstjórnar þann 12. maí 2026

Rekstur:
0006 - Fasteignaskattar. Tekjur eru hærri af fasteignagjöldum en áætlað var. Hækkun um 3.000.000.-
0010 - Jöfnunarsjóður hefur birt nýjan útreikning á grunnskólaframlagi. Hækkun er á framlagi um 3.658.000. -
0920 - Tekjur af deiliskipulagi vegna hótelreits. Gert var ráð fyrir tekjum af skiplagsgjöldum kr. 2.000.000.- en v. úthlutunar hótelreits mun sú upphæð hækka um 1.000.000.-
1001 - Tekjur af gatnagerðargjöldum v. hótelreits. Gert var ráð fyrir tekjum í áætlun upp á kr. 3.000.000 en skv. útreikningi mun sú upphæð hækka um 2.600.000.-
2140 - Rannsókn Deiloutte vegna útgáfu á Strandir I mun bera kostnað upp á allt að kr. 5.000.000.- sem ekki var gert ráð fyrir í upphaflegri áætlun

Framkvæmdir:

Framkvæmdir við hússtjórnarkerfi í Íþróttamiðstöð kemur til með að kosta meira eða um 16.000.000.- upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 9.340.000.-

Lántaka:

Lækkun verður á lántöku ársins þar sem tiltekin verkefni töldust ekki lánshæf. Upphafleg lántaka átti að vera 160.000.000.- en lántaka verður 151.000.000.- í Eignasjóði. Reikna þarf því með að halda yfirdráttarheimild að upphæð 20.000.000.- til að mæta fjárþörf.

Niðurstaða:
Auknum kostnaði vegna viðauka III verður mætt með lækkun á handbæru fé um 13.734.000 úr 46.808.000 í 33.074.000

Oddviti lagði því næst Viðauka III við fjárhagsáætlun 2026 fyrir fundinn til samþykktar og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
3.
Staða í bókhaldi I ársfjórðungur 2026
Málsnúmer 2605008
Oddviti gaf Salbjörgu Engilbertsdóttir skrifstofustjóra orðið og útskýrði hún niðurstöður úr 1. ársfjórðungi í bókhaldi. Niðurstaða úr A hluta eru kr. 21.278.000 í hagnað og niðurstaða A og B hluta 43.000.000. Skatttekjur af fasteigna-, sorphirðu-, fráveitu-, og vatnsgjöldum eru að fullu tekjufærð sem gefur ekki rétta mynd af niðurstöðunni og hlutfallað niður á mánuði ætti niðurstaðan að vera öfugu megin við núllið.

Í neðri hluta skjalsins er samantekt um framkvæmdir og raunkostnað 31.mars 2026.

Oddviti útskýrði stöðuna enn frekar en að öðru leiti er skjalið lagt fram til kynningar.
4.
Lánasamningur Strandabyggðar við Lánasjóð sveitarfélaga nr. 2605_37
Málsnúmer 2604080
Oddviti gaf skrifstofustjóra, Salbjörgu Engilbertsdóttur, orðið.

Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum
sveitarfélagsins:

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá
Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 71.000.000,- og höfuðstólsfjárhæð allt
að kr. 83.299.778,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að
lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum
kostnaði, samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr.
sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga, verði veðsettar.

Lánið er tekið til að fjármagna fjárfestingar og framkvæmdir ársins. Um er að ræða verkefni
sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers
hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989 veitt fullt og ótakmarkað umboð
að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Strandabyggðar, sem og til að móttaka,
undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á
meðal beiðni um útborgun láns.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og kom inn á að Lánasjóður hafi ekki verið tilbúinn að lána nema 71 milljón af upphaflegri umsókn sem var 80 milljónir og spurði um hvort sveitarfélagið þyrfti að útlista hvert og eitt verkefni sem þyrfti að taka lán fyrir. Hann óskaði jafnframt eftir að leggja fram eftirfarandi bókun:

"Hér er fjallað um lántöku þar sem var ráðgerð í fjárhagsáætlun. Áætlað var að taka 80 milljónir en ekki fékkst lán út á hluta af því sem sótt var um. Þetta sýnir erfiða fjárhagsstöðu Strandabyggðar. Afföll á þessu láni eru rúm 17% þ.e. endurgreiðslufjárhæðin er 83,3 milljónir en 71 milljón útgreiðslufjárhæðin."

Oddviti útskýrði nánar og bar síðan lánasamninginn upp undir atkvæði sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum en Matthías Sævar Lýðsson situr hjá.
5.
Yfirferð tilboða í jarðvegsvinnu við íbúðahverfið Brandskjól
Málsnúmer 2604037
Oddviti rakti tilurð máls og fór yfir helstu niðurstöður í minnisblaði ráðgjafa sveitarstjórnar, Verkís á Ísafirði. Gaf oddviti því næst orðið laust.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og spurði út í mismun á áætlun og tilboðum. Eðlilegt hefði verið að bjóða út aftur eftir endurreikning.

Oddviti tók fram að hægt hefði verið að leggja fram tvær kostnaðaráætlanir með og án efniskostnaðar en niðurstaðan hefði orðið sú sama.

Hlíf Hrólfsdóttir taldi eðlilegt að fresta erindinu og vísa því til nýrrar sveitarstjórnar.

Oddviti taldi enga ástæðu til að fresta erindinu því að það byggði á samþykktu deiliskipulagi og hafi verið lagt fram tímanlega.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og minnti á að frestur til samþykktar tilboðsins rynni út á morgun 13. maí og því ástæðulaust annað en að samþykkja tilboðið en honum finnst ókostur við að binda hendur nýrrar sveitarstjórnar og finnst þetta snúin staða þess vegna. Hann hefði viljað hafa meira fjármagn í verkefnið.

Oddviti fór yfir stöðu áætlunar v.Brandsskjóla og það sé há krafa um að byrja á verkefninu vegna húsnæðisskorts. Sömuleiðis fór oddviti yfir verkefni síðust ára og komandi ára. Brandsskjólsverkefnið sé sömuleiðis verkefni til margra ára.

Oddviti lagði síðan tillögu ráðgjafa fyrir fundinn og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt með tveimur atkvæðum, Matthías Sævar Lýðsson kýs gegn tillögunni, Hlíf Hrólfsdóttir situr hjá og Júlíana Ágústsdóttir situr hjá vegna tengsla.
6.
Ráðningarsamningur Tómstundafulltrúa Strandabyggðar og framkvæmdastjóra HSS
Málsnúmer 2605012
Oddviti rakti tilurð máls og lýsti yfir ánægju með samninginn. Var samningurinn kynntur á Ársþingi HSS í síðustu viku og er almenn ánægja með hann í samfélaginu. Gaf oddvti því næst orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og fagnaði ráðningunni og óskaði eftir að bókað yrði að tómstundafulltrúa væri óskað velfarnaðar í starfi. Hann óskaði sömuleiðis eftir að leggja fram eftirfarandi bókun:

"Sveitarstjórn samþykkti að auglýsa eftir íþrótta og tómstundafulltrúa. Þegar gengið var eftir hvort umsóknir hefðu borist tilkynnti oddviti að 4 hefðu sótt um og tveir yrðu teknir í viðtal. Nöfn þeirra voru ekki kynnt sveitarstjórn. Næsta sem sést um þetta mál er frétt á heimasíðunni þar sem búið er að ganga frá ráðningarsamningi. Þetta er gert þrátt fyrir skýr ákvæði 45. grein í Samþykktum um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar þ.e. „Sveitarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og veitir þeim lausn frá starfi. Æðstu stjórnunarstöður í Strandabyggð eru forstöðumaður eignasjóðs, íþrótta- og tómstundafulltrúi, skólastjóri sameinaðs leik-, grunn- og tónskóla Strandabyggðar og skrifstofustjóri.“

Oddviti baðst afsökunar á þessum mistökum.

Samningurinn lagður fram til kynningar.
7.
Fjárhagsleg úttekt vegna útgáfu Byggðasögu Stranda, Strandabyggð
Málsnúmer 2601042
Oddviti rakti tilurð máls. Í aðdraganda kosninga 2022 var ljóst að íbúar vildu vita um afdrif þessa verkefnis og setti Strandabandalagið það því á sinn verkefnalista, næði listinn meirihluta. Það lá strax fyrir að verkefnið væri viðamikið og flókið, enda nær það áratugi aftur í tímann. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte var ráðið til að gera fjárhagslega úttekt á þeim kostnaði sem sveitarfélagið hefði orðið fyrir vegna þessa verkefnis. Var miðað við þann tímapunkt þegar sveitarfélagið, ásamt nágranna sveitarfélögunum Kaldrananeshreppi, Árneshreppi og Bæjarhreppi sem var nýsameinaður við Húnaþing vestra, tóku verkefnið yfir. Nú liggur fyrir minnisblað með drögum að niðurstöðu og þar kemur fram eftirfarandi: „Á árunum 2013-2020 voru heildargreiðslur Strandabyggðar vegna Byggðasögu Stranda 10.391.830 kr. miðað við þau gögn sem fram koma í bókhaldsfærslum Strandabyggðar. Þörf er á frekari greiningu annarra gagna sem gæti haft áhrif á lokaniðurstöðu úttektarinnar.“ Í minnisblaðinu kemur einnig fram að skuld verkefnisins áður en sveitarfélagið tók við því, hafi numið rúmum 50 milljónum árið 2012. Það er ljóst að enn er vinna eftir vegna þessa verkefnis, margt er óljóst sem þarfnast skýringa, að mati starfsmanna Deloitte. Það verður því verkefni nýrrar sveitarstjórnar að ljúka málinu. Því næst gaf oddviti orðið laust.


Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og nefndi að í minnisblaðinu komi fram að skuld verkefnisins hafi numið 50 milljónum árið 2012 og hann spyr hvort starfsmaður í Sparisjóðnum hafi upplýst um reikninga í einkaeigu. Hann óskar sömuleiðis eftir að leggja fram eftirfarandi bókun:

"Mér er eignlega orðavant yfir þeirri viteysu að kosta fjármunum sveitarfélagsins að leita að tölum - upphæðum sem liggja fyrir og hafa legið fyrir í bókhaldi Strandabyggðar. Þessar sömu tölur voru lagðar fram þegar rætt var um bókina Strandir á fundi sveitarstjórnar í desember 2023.
Spurning sem Deloitte var falið að svara var: Hvað hefur sveitarfélagið Strandabyggð varið miklum fjármunum vegna útgáfu Byggðasögu Stranda, Strandabyggð? Svarið liggur nú fyrir og er það sama og skrifstofustjóri Strandabyggðar lagði í fundargögn fyrir desemberfund 2023."

Oddviti óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun Strandabandalagsins:

„Beiðni Strandabandalagsins í þessu máli snýst um að verja hagsmuni sveitarfélgsins, ekki einstaklinga sem tengjast verkefninu. Strandabandalagið vildi verða við óskum íbúa um að fá betri yfirsýn yfir kostnað og fjárhagsstöðu verkefnisins. Það var okkar trú að sveitarfélagið gæti staðfest kostnað sinn vegna þessa verkefnis og hefur það nú verið gert. Eftir er hins vegar að rýna í þann kostnað sem verður til áður en Strandabyggð ásamt Kaldrananeshreppi og Árneshreppi yfirtekur verkefnið, árið 2013. Þar ættu fulltrúar eða aðilar tengdir Búnaðarsambandi Strandamanna að geta orðið að liði, þeim sem vilja vita meira um kostnað við verkefnið, verktakagreiðslur og annað því tengt. Eru íbúar því hvattir til að leita þangað eftir frekari upplýsingum.
Það verður að segjast, að ferill þessa ágæta verkefnis er afar óheppilegur og margir lausir endar. Íbúar lögðu sparifé sitt í verkefnið á fyrri stigum án þess að því lyki með útgáfu Stranda I. Það er því vel skiljanlegt að íbúum sárni og að þeir vilji vita meira. Öll óvissa kallar líka á alls kyns sögur og skýringar, sem oft eiga ekki við rök að styðjast. Væri heillavænlegast fyrir alla hlutaðeigandi að Búnaðarsamband Strandamanna gerði álíka grein fyrir áföllnum kostnaði og hér er gert, hvað varðar beinan kostnað við verkefnið.“

Oddviti tók fram að handrit bókarinnar sé vistað á sameiginlegu drifi hjá Strandabyggð og það sé ekki hans að meta hvort það sé útgáfuhæft.

Skrifstofustjóri upplýsti að ekki hafi borist reikningur frá Deloitte. Handritið sé vistað á minnislykli í læstum skáp í skjalageymslu og afrit á sameiginlegu drifi og sömuleiðis í útprenti í skjalageymslu.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Oddviti tók til máls.

Minnisblaðið er lagt fram til kynningar.
8.
Samgöngusamningur Strandabyggðar
Málsnúmer 2604078
Oddviti rakti tilurð máls. Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi nr. 1377 að taka þátt í Grænum skrefum með Vestfjarðastofu fyrir skrifstofu Strandabyggðar. Innleiðing Grænna skrefa er í gangi og er samgöngusamningur hluti af innleiðingu verkefnisins. Í samningnum eru starfsmenn sveitarfélagsins hvattir til að ferðast ekki einir með einkabíl til og frá vinnu, heldur nota vistvæna ferðamáta. Verkefnið er í senn hvetjandi og heilsusamlegt, að mati oddvita. Gaf oddviti því næst orðið laust.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og gerir sér grein fyrir að þetta sé hluti af grænum skrefum en að þetta sé kostnaðarauki fyrir sveitarfélagið.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og las upp 2 greinar úr samningnum og telur þetta vera kostnaðarsamt.

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls og lagði til að fjárhæðir væru teknar út úr samningnum.

Fundarmenn eru sammála um að hvetja starfsmenn til að ferðast á umhverfisvænan hátt í stað þess að gera um það samning.

Samþykkt samhljóða.
9.
Refaveiði, svæði 1 - Stikuháls að Ennishálsi
Málsnúmer 2605010
Oddviti rakti tilurð máls. Komin er umsókn um grenjavinnslu á svæði 1, Stikuhálsi að Ennishálsi. Oddviti gaf orðið laust.

Enginn tók til máls.

Lagði oddviti því næst til að umsókn um grenjavinnslu á svæði 1, Stikuhálsi að Ennisháls, yrði samþykkt og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
10.
Refaveiði, svæði 2 - Ennisháls að Forvaða
Málsnúmer 2605011
Oddviti rakti tilurð máls. Komin er umsókn um grenjavinnslu á svæði 2, Ennisháls að Forvaða. Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.

Lagði oddviti því næst til að umsókn um grenjavinnslu á svæði 2, Ennishálsi að Forvaða, yrði samþykkt og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
11.
Netöryggi í Strandabyggð, stefnur og verklagsreglur
Málsnúmer 2601036
Oddviti rakti tilurð máls. Á síðasta fundi komu fram óskir um að bæta inn orðunum „kjörnir fulltrúar“ þar sem talað er um starfsmenn sveitarfélagsins og hefur það verið gert af skrifstofu Strandabyggðar. Orðið gefið laust

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og taldi upp heiti fylgiskjalanna sem fylgja þessum fundarlið.

Oddviti lagði því næst stefnur og verklagsreglur um netöryggi í Strandabyggð fyrir fundinn og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
12.
Varmaskiptaverkefni í Strandabyggð
Málsnúmer 2605025
Oddviti rakti tilurð máls. Nú eru komin fram umbeðin viðbótargögn frá ISOR sem kallað var eftir á fundi sveitarstjórnar í lok síðasta árs. Umhverfis- og orkusjóður hefur þegar greitt 30% af þeim 37,5 milljón króna styrk sem Strandabyggð fékk til verkefnisins, og því eru til og eyrnamerktar þessu verkefni um 11 milljónir. Það er mat starfsmanna Hagvarma ehf, sem hefur unnið verkefnið með sveitarfélaginu, að nýta ætti þetta fjármagn í frumborun innan Hólmavíkur. Oddviti vísaði hér í minnisblað sitt sem er hluti fundargagna. Sveitarstjórn þarf að taka ákvörðun um næstu skref þessa verkefnis og er liður í því að hitta fulltrúa Hagvarma og Ísors. Oddviti gaf síðan orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og tók fram að hann hefði ekki mikla trú á verkefninu. Borað hefði verið í nágrenni Hólmavíkur og allar holur hafi verið þurrar. Matthías Sævar Lýðsson leggur fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að vísa Varmaskiptaverkefni til næsta sveitarstjórnarfundar og þar með næstu sveitarstjórnar. Þar sem hægt væri að fylgja eftir samþykkt sveitarstjórnar um fund með ISOR."

Oddviti les upp úr minnisblaði varðandi tilraunaholur en tekur jafnframt undir með Matthíasi Sævari Lýðssyni að vísa erindinu áfram til næstu sveitarstjórnar en ítrekar að styrkurinn sé gildur til næstu tveggja ára.

Tillaga Matthíasar Sævars Lýðssonar borin upp undir atkvæði. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
13.
Kennarasamband Vestfjarða, erindi til sveitarstjórnar
Málsnúmer 2605023
Oddviti rakti tilurð máls. Sagðist hann taka jákvætt í erindið enda tilefnið mikilvægt. Gaf hann því næst orðið laust.

Eftirfarandi tóku til máls:

Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir
Þorgeir Pálsson

Oddviti lagði til að sveitarstjóra yrði falið að hafa samband við Kennarasamband Vestfjarða og kennara í grunnskólanum á Hólmavík varðandi hugsanlega styrkupphæð. Samþykkt með fjórum atkvæðum. Júlíana Ágústsdóttir situr hjá.
14.
Fundargerð stjórnar Sorpsamlags Strandasýslu ehf 29.4.26
Málsnúmer 2602014
Oddviti, sem formaður stjórnar Sorpsamlagsins, fór yfir fundargerðina. Þar var gengið frá lánasamningi við Lánasjóð sveitarfélaga upp á kr. 21 milljón. Þá var einnig rætt á fundinum að halda opið hús í Sorpsamlaginu og er stefnt á það sem fyrst eftir sauðburð.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.
Lánasamningur Sorpsamlags Strandasýslu ehf við Lánasjóð sveitarfélaga nr. 2605_36
Málsnúmer 2605016
Oddviti vísaði í umræðu varðandi fundargerð stjórnarfundar Sorpsamlagsins í lið 14. las upp tillögu að bókun í fundargerð.

Ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og
umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Sorpsamlags Strandasýslu í eigu
sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Sorpsamlags
Strandasýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar
ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr.
sveitarstjórnarslaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að höfuðstól allt að kr. 21.000.000,- með lokagjalddaga
þann 4. desember 2033, ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og
öðrum kostnaði, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem
sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess
að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til að fjármagna kaup á sorpbíl. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna
efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um
Lánasjóð sveitarfélaga.

Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæðum
samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig
til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning
við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Strandabyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og öll skjöl, fyrirmæli
og tilkynningar, sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Oddviti ber lánasamninginn upp til samþykktar sveitarstjórnar Strandabyggðar. Samþykkt með fjórum atkvæðum en Júlíana Ágústsdóttir situr hjá.
16.
Fundargerð Velferðarnefndar 22.04.2026
Málsnúmer 2603005
Oddviti gaf formanni Velferðarnefndar, Matthíasi Sævari Lýðssyni, orðið.

Matthías Sævar Lýðsson tók fram að flest erindi Velferðarnefndar séu færð í trúnaðarbók og fór síðan yfir fundargerðina.

Fundargerð lögð fram til kynningar.
17.
Erindisbréf Velferðarnefndar
Málsnúmer 2605019
Oddviti spurði formann og félagsmálastjóra út í orðalag í erindisbréfinu.

Matthías Sævar Lýðsson og Hlíf Hrólfsdóttir sem jafnframt er félagsmálastjóri, útskýrðu nánar orðalagið.

Oddviti óskaði samþykki nefndarmanna fyrir erindisbréfinu. Samþykkt samhljóða.



18.
Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar 07.05.2026
Málsnúmer 2602015
Oddviti gaf formanni Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar, Júlíönu Ágústsdóttur, orðið.

Júlíana Ágústsdóttir fór yfir fundargerðina sem er að öðru leyti lögð fram til kynningar.

Enginn tók til máls.
19.
Fundargerð Fræðslunefndar 07.05.2026
Málsnúmer 2603003
Oddviti, sem formaður fræðslunefndar, fór yfir efni fundarins.

Oddviti gaf orðið laust. Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og oddviti svaraði.

Fundargerð lögð fram til kynningar.
20.
Skipurit og hlutverk skólastjórnenda
Málsnúmer 2605003
Oddviti vísar í fundargerð Fræðslunefndar, þar sem nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki skipuritið. Oddviti rakti áherslur skipuritsins og gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi tillögu:

Þar sem skipurit og hlutverk skólastjórnenda fara í bága við Samþykktir um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar er ekki hægt að samþykkja skipuritið óbreytt. Þetta kom m.a. fram í áliti Björns Jóhannessonar, lögmanns Strandabyggðar. Sveitarstjórn Strandabyggðar vísar framhaldi málsins til næstu sveitarstjórnar.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og telur að það þurfi að aðskilja skólana ef skipuritið eigi að virka.

Oddviti spyr hvort að A-listi leggi til að nýr leikskólastjóri komi inn í skipulagslaust starf.

Matthías Sævar Lýðsson spyr hvort að sveitarstjórn ætti ekki að fara eftir eigin reglugerðum.

Oddviti vísar í orð lögmanns sveitarfélagsins og telur þetta fullkomlega gerlegt og eðilegt að samþykkja skipuritið.

Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykkti tillögu fræðslunefndar um að samþykkja skipuritið og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt með þremur atkvæðum Strandabandalagsins en fulltrúar A-lista greiða atkvæði á móti.
21.
Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar 05.05.2026
Málsnúmer 2602020
Oddviti gaf formanni Umhverfis- og skipulagsnefndar, Matthíasi Sævari Lýðssyni, orðið.

Formaður fór yfir fundargerðina. Fundarliðir eru teknir fyrir til samþykktar í næstu liðum.

Að öðru leiti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
22.
Umsókn um stofnun lóðar að Kirkjubóli í Staðardal
Málsnúmer 2603046
Umsóknin borin upp undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt samhljóða
23.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagni á Skjaldbökuslóð
Málsnúmer 2603041
Formaður tekur fram að Júlíana Ágústsdóttir sat hjá í afgreiðslu en það láðist að bóka það í fundargerð. Umsóknin borin upp undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt af fjórum atkvæðum. Júlíana Ágústsdóttir sat hjá.
24.
Umsókn um lóð að Kópnesbraut 27
Málsnúmer 2604082
Formaður tekur fram að Júlíana Ágústsdóttir sat hjá í afgreiðslu en það láðist að bóka það í fundargerð. Umsóknin borin upp undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt af fjórum atkvæðum. Júlíana Ágústsdóttir sat hjá.
25.
Umsókn um byggingarleyfi að Kópnesbraut 27
Málsnúmer 2604083
Formaður tekur fram að Júlíana Ágústsdóttir sat hjá í afgreiðslu en það láðist að bóka það í fundargerð. Umsóknin borin upp undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt af fjórum atkvæðum. Júlíana Ágústsdóttir sat hjá.
26.
Landhólf til afnota í Skeljavík
Málsnúmer 2604084
Oddviti fagnar að ný samþykkt sveitarfélagsins um búfjárhald sé virk.

Umsóknin borin upp undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt samhljóða
27.
Deiliskipulag Hafnardalsárvirkjunar
Málsnúmer 2605009
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að framlögð drög að vinnslutillögu deiliskipulags Hafnardalsárvirkjunar verði kynnt í samræmi við 4.mgr 40. gr.skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan borin upp undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt samhljóða.
28.
Girðingar í Strandabyggð
Málsnúmer 2605017
Oddviti tók til máls og tekur undir með nefndinni en telur að þetta sé vandasamt og að eignarhald þurfi að vera á hreinu.

Tillaga Umhverfis- og skipulagsnefndar er lögð fram til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
29.
Óleyfisframkvæmdir í Strandabyggð
Málsnúmer 2605024
Tillaga Umhverfis- og skipulagsnefndar er lögð fram til samþykktar. Samþykkt samhljóða
30.
Gámarnir á tanganum
Málsnúmer 2605018
Oddviti tók til máls og sagði málið hafa verið í vinnslu sl. misseri. Erfitt sé að bregðast við þegar úrræði er ekki til varðandi aðra staðsetningu en það verði að vinna að endanlegri lausn. Það er sömuleiðis búið að biðja eigendur um að fjarlægja ónýta gáma.

Júlíana Ágústsdóttir tók til máls.
Grettir Ásmundsson tók til máls.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Tillaga Umhverfis- og skipulagsnefndar er lögð fram til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
31.
Fundargerð 25. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða 14.04.2026
Málsnúmer 2602033
Oddviti rakti tilurð máls. Hér er komin fundargerð síðasta fundar, þar sem lögð fram kynning á umsögn um Kynningartillögu á grundvelli 24. gr Skipulagslaga nr. 123/2010. Á fundinum var farið yfir umsagninr og viðbrögð við þeim.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
32.
Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050
Málsnúmer 2405007
Oddviti rakti tilurð máls. Fram er komið erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga með „beiðni til sveitarstjórnar um samþykki tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, á grundvelli samþykkis 26. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða, þann 4. maí 2026“. Oddviti gaf orðið laust

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Oddviti tók til máls.

Lagði oddviti til að sveitarstjórn samþykki tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, og kallaði eftir afstöðu fundarmanna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.

33.
Verkefni sveitarstjóra í apríl 2026
Málsnúmer 2602018
Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi tillögu:

"Eins og venja er hjá sveitarfélögum þá samþykkir Sveitarstjórn Strandabyggðar að ekki verði gerðir skuldbindandi samningar eða viljayfirlýsingar að hálfu sveitarstjórnar eftir þennan síðasta sveitarstjórnarfund á þessu kjörtímabili, utan þess sem þegar hefur verið samþykkt á fundum sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
34.
Brák íbúðafélag hses. Ársfundur 2025, 28.4.26
Málsnúmer 2605026
Oddviti gaf orðið laust.

Hlíf Hrólfdóttir tók til máls.

Fundargerð ársfundar lögð fram til kynningar.

35.
Skipulagsstofnun, umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0534/2026 í Skipulagsgátt
Málsnúmer 2605014
Oddviti rakti tilurð máls og gaf orðið laust.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að skila inn umsögn á þeim nótum að Strandabyggð geri ekki athugasemd við breytingu á nýju deiliskipulagi. Samþykkt samhljóða.
36.
Skipulagsstofnun, umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0415/2026 í Skipulagsgátt
Málsnúmer 2605013
Oddviti rakti tilurð máls og gaf orðið laust.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að skila inn umsögn á þeim nótum að Strandabyggð geri ekki athugasemd við breytingu á aðalskipulagi. Samþykkt samhljóða.
37.
Náttúrufræðistofnun, ársskýrsla 2025
Málsnúmer 2605022
Orðið gefið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar lögð fram til kynningar. Sveitarstjórn þakkar ársskýrsluna og sveitarstjóra falið að koma því á framfæri
38.
Hafnasamband Íslands, fundargerð stjórnar nr. 482
Málsnúmer 2603002
Orðið gefið laust. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
39.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, fundargerðir stjórnar nr. 94, 95, 96 og 97
40.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, umsögn stjórnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Málsnúmer 2604077
Orðið gefið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og tekur undir umsögn stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Oddviti tekur undir með Matthíasi og fagnar þeirri samvinnu sem varð í sveitarfélaginu og nágrannasveitarfélagi og því viðnámi sem skapaðist þegar fyrstu hugmyndir að breytingu að línuívilninun og breytingar á rækju- og skelbótum voru lagðar fram. Þar unnu allir saman að sameiginlegum hagsmunum þessarar sveitarfélaga.

Umsögnin lögð fram til kynningar.
41.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerð stjórnar nr. 997
Málsnúmer 2601002
Orðið gefið laust.

Eftirtaldir tóku til máls:
Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir
Þorgeir Pálsson

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Oddviti tók fram að í lok þessa kjörtímabils yrði fundur þar sem valdi yrði afsalað til nýrrar sveitarstjórnar. Mörg erfið mál hafa verið á borði sveitarstjórnar undanfarin ár. Oddviti þakkar sveitarstjórn og fundarritara samstarfið á kjörtímabilinu. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og tók undir með oddvita. Fundargerð lesin yfir og fundi slitið.