Fara í efni

Sveitarstjórn Strandabyggðar

1389. fundur
14. apríl 2026 kl. 16:00 - 19:33
Félagsheimilinu á Hólmavík
Nefndarmenn
Þorgeir Pálsson Oddviti
Þórdís Karlsdóttir Varamaður
Júlíana Ágústsdóttir Aðalmaður
Matthías Sævar Lýðsson Aðalmaður
Hlíf Hrólfsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri
Oddviti bauð alla velkomna og spurði um athugasemdir við fundarboðun, engin athugasemd er gerð við fundarboðið.
Dagskrá
1.
Ársreikningur Strandabyggðar 2025
Málsnúmer 2604034
Oddviti býður Helga Níelsson endurskoðanda sveitarfélagins velkominn á fundinn og mun hann kynna ársreikning sveitarfélagsins.

Oddviti leggur fram til fyrri umræðu ársreikning Strandabyggðar vegna 2025.

Niðurstaða úr rekstri í A-hluta er tap upp á rúmar 2 millj.kr. og tap úr samstæðu A og B eru tæpar 22 milljónir kr.

Skuldahlutfall A og B hluta er 142% % í lok árs 2025 en var árið áður 150%.

Veltufé frá rekstri í hlutfalli við rekstrartekjur var 9,1% en var 4,5% á árinu 2024. Handbært fé hækkaði lítillega frá fyrra ári og var handbært fé frá rekstri í árslok 2025 kr. 35 m.kr.

Á síðasta ári var framkvæmt og fjárfest fyrir ríflega 114 milljónir króna.

Umfangsmestu fjárfestingarnar voru leikskólalóð, tæpar 80 millj. og framkvæmdir við grunnskóla rúmar 17 millj.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun:

"Það er ánægjulegt að tap sveitarfélagsins skuli ekki vera „nema“ 22 milljónir þar sem það stefndi í tæpar 60 milljónir í desember. Auknar tekjur um 50 milljónir komu í veg fyrir slíkt tap. Í fjárhagsáætlun sem samþykkt var í desember 2024 var gert ráð fyrir rúmlega 28 milljónum í hagnað þannig að viðsnúningur á rekstri er 50 milljónir frá áætlun. Í fyrra var viðsnúningurinn tæpar 53 milljónir. Eins og ég benti á við samþykkt þessarra fjárhagsáætlanna voru ekki raunhæfar eins og komið hefur í ljós. Því miður tel ég að þetta eigi við núgildandi fjárhagsáætlun líka nema verulega verði tekið til og sýnt aðhald í rekstri.
Fjárhagsstaða Strandabyggðar er erfið. Skuldir og skuldbindingar samkvæmt ársreikningi 2025 nema 1.535 milljónum og jukust á síðasta ári um 160 milljónir.
Eigið fé A hluta hækkar um tæpar 10 milljónir milli ára er eigið fé B hluta lækkar og er neikvætt um 137 milljónir."

Oddviti tók til máls og svaraði bókun Matthíasar Sævars Lýðssonar og útskýrði fjárfestingar síðustu ára og fjárhagslega stöðu í Strandabyggð í því samhengi.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls

Oddviti bar fram þakkir til Helga Níelssonar endurskoðanda og leggur til að ársreikningi 2025 verði vísað til seinni umræðu.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.
2.
Verksamningur vegna niðursetningar á hreinsigámi í Austurtúni
Málsnúmer 2604035
Oddviti rakti tilurð máls. Fyrir sveitarstjórn liggur að samþykkja verksamninginn en þó mætti gera á honum þær áherslubreytingar, að fresta uppsetningu utanhússklæðningar á gámnum til næsta árs, í sparnaðarskyni. Myndi það lækka kostnað þessa árs um kr. 2.887.000.-

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Eftirtaldir tóku til máls:
Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir
Júlíana Ágústsdóttir

Umræður voru á þann veg að verkið ætti að klára að fullu og ganga til samnings.

Oddviti lagði því til að verksamningurinn yrði samþykktur án breytinga og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu.

Samþykkt samhljóða af 4 sveitarstjórnarmönnum en Júlíana Ágústsdóttir situr hjá vegna tengsla.
3.
Ályktun sveitarstjórnar Strandabyggðar vegna afnáms línuívilnunar og rækjubóta
Málsnúmer 2604040
Oddviti rakti tilurð máls. Sagðist hann styðja ályktunina efnislega og boðskap hennar, enda mikið hagsmunamál í húfi. Hins vegar mætti aðlaga orðalag ályktunarinnar að orðfæri sveitarfélagsins.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:

Í stað „Við tökum undir með nágrönnum okkar á Vesturlandi;“ kemur
„Við tökum undir með sveitarstjórn Kaldrananeshrepps og bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar“

Oddviti lagði ennfremur til breytingu á orðalagi sem er: "sveitarfélagið varar við að auka tímabundnar veiðar á kostnað traustra heilsársstarfa í sveitarfélaginu"

Hlif Hrólfsdóttir tók til máls

Sveitarstjórn samþykkir með fjórum atkvæðum en Júlíana Ágústsdóttir situr hjá. Sveitarstjóra falið að koma ályktuninni á framfæri til réttra aðila.



4.
Lóðaleigusamningur við Hótel Strandir ehf. vegna hótelbyggingar
Málsnúmer 2604036
Oddviti rakti tilurð máls. Taldi hann undirskrift samningsins mikið framfaramál fyrir Strandabyggð og mikilvægt að nú hæfist loka hönnun á vegum Hótel Stranda ehf. Í þessu verkefni felast mikil tækifæri fyrir íbúa Strandabyggðar enda ljóst að hótelið mun kalla á aukna þjónustu og afþreyingu í sveitarfélaginu, á Ströndum og á Vestfjörðum almennt.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og gerði eftirfarandi athugasemdir við lóðaleigusamninginn:

a. Umsókn um lóð að Jakobínutúni 2 hefur ekki komið fyrir US nefnd
b. Byggingafulltrúi áritar skjal um lóð án þess að bera það undir US nefnd. Í því skjali kemur fram að engar kvaðir eru innan lóðar. Samt er lóðin teiknuð yfir fjölfarna gönguleið m.a. barna á leið í skóla. Leiðin hefur einnig verið notuð sem varaleið fyrir viðbragsaðila. Lóðarhafa er því heimilt að loka þessari leið, og banna umferð.
c. Sveitarstjóra hafði ekki verið falið af sveitarstjórn að gera þennan lóðaleigusamning, en það er sveitarstjórn sem felur sveitarstjóra verkefni sem þetta.
d. Í samningum er 3. gr. tvítekin.
e. Í seinni 3 greininni stendur „ Fasteignaskatti og lóðarleigu fylgir lögveð í fasteign þeirri, sem þau er lögð á, ásamt dráttarvöxtum og innheimtukosnaði, í tvö ár frá gjalddaga og ganga fyrir öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla“ Þýðir þetta að eftir þessi tvö ár þarf ekki að greiða af eigninni?
f. Í 4. grein stendur „.. ekki í skilum með árgjaldið ...“ Er þar verið að tala um eitthvað annað en lóðarleigu?
g. Aðeins einn vottar fjárræði og undirskrift aðila.
h. Í samninginn vantar ákvæði um:
a. Skatta og skyldur til opinberra þarfa
b. Hvað má byggja á lóðinni
c. Kvaðir um t.d. aðgang veitustofnanna og framkvæmdir á lóð í þágu samfélags s.s. veitulagnir
d. Reglur um afmarkanir lóðar t.d. girðingar er trjágóður og hirðingu lóðar þ.e. ástand hennar.
e. Tilkynningarskylda um framsal á leigurétti
f. Uppbyggingartíma eða niðurrif ef framkvæmdir tefjast.

Matthías Sævar Lýðsson leggur sömuleiðis fram eftirfarandi tillögu:

Sveitarstjórn Strandabyggðar fellir úr gildi þann lóðarleigusamning sem sveitarstjóri hefur undirritað (sjá meðfylgjandi fundargagn) vegna fjölmargra ágalla á samningnum. Sveitarstjóra verði falið að benda forsvarsmönnum Hótel Strandir á að sækja um lóðina að Jakobínutúni 2 þannig að málið fari rétta leið í gegnum stjórnkerfi Strandabyggðar.

Oddviti tók til máls og rakti ferlið undanfarin ár vegna umsóknar um hótellóðina og spurði jafnframt Matthías Sævar Lýðsson, sem er formaður Umhverfis- og skipulagsnefndar hvort hann standi viljandi í vegi fyrir framkvæmdinni sem hefur farið í gegnum samþykkt aðal- og deiliskipulags. Oddviti fór jafnframt yfir minnisblað, viljayfirlýsingu og tölvupósta milli leigutaka og sveitarstjóra.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að lóðarleigusamningur yrði leiðréttur.

Oddviti tók til máls og útskýrði frekar ákvæði samningsins.

Júlíana Ágústsdóttir tók til máls og tók undir nokkrar af athugasemdum Matthíasar S. Lýðssonar

Oddviti tók til máls og taldi mjög óvarlegt að taka tillögu Matthíasar Sævars Lýðssonar til afgreiðslu í ljósi alls þess ferils sem þetta mál hefur farið í stjórnsýslu sveitarfélagsins og skipulagsyfirvalda.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Lóðaleigusamningurinn er að öðru leiti lagður fram til kynningar.



5.
Ráðningarsamningur leikskólastjóra leikskólans Lækjarbrekku
Málsnúmer 2604038
Oddviti rakti tilurð máls. Sagði hann það mjög gleðilegt að nú hafi loksins tekist að ráða faglærðan einstakling inn í daglegt starf leikskólans. Leik- og grunnskólinn í Strandabyggð var sameinaður á sínum tíma, án þess að það yrði fjárhagslegur samruni sem einfaldar þessa ráðningu nú. Búið er að fara yfir verkaskiptingu milli leikskólastjóra og skólastjóra grunnskólans og kom skólastjóri mikið og vel að þeirri vinnu, ásamt ráðgjöfum Ásgarðs. Hins vegar benti oddviti á, að í samþykktum um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar, er talað um að sveitarstjórn ráði í lykilstöður, eins og skólastjóra sameinaðs leik- og grunnskóla. Leggur oddviti því til, eftir að hafa ráðfært sig við lögfræðing Sambands íslenskra sveitarfélaga, að sveitarstjórn íhugi sem fyrst, breytingu á samþykktinni, hvað þetta varðar.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og spurði hvort oddviti væri að leggja til að aðskilja skólana.

Oddviti tók til máls og sagðist aðeins vera að leggja til breytingu á orðalagi samþykktar um stjórn og fundarsköp. Jafnframt taldi hann eðlilegt að létta álagi á stjórnendum og auka þjónustu við börn í leikskóla.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og fagnaði því að ráðinn væri fagmenntaður starfsmaður á leikskóla en taldi að ekki væri staðið rétt að þessum breytingum og að skipta þyrfti skólanum upp til þess að ráða leikskólastjóra.

Oddviti tók til máls.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og spurði um kostnaðarauka og hvort hann væri í áætlun.

Skrifstofustjóri tók til máls og útskýrði að sveitarstjórn hefði samþykkt kostnað vegna ráðningar leikskólastjóra frá haustinu 2026. Matthías Sævar Lýðsson spurði sömuleiðis út í aðkomu Ásgarðs og verkaskiptingu.

Oddviti tók til máls og sagði að það hefði verið kynnt á síðasta fundi fræðslunefndar.

Oddviti lagði til að ráðningarsamningur leikskólastjóra leikskólans Lækjarbrekku yrði samþykktur og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu.

Samþykkt með þremur atkvæðum, Hlíf Hrólfsdóttir greiðir atkvæði á móti og Matthías Sævar Lýðsson situr hjá.

Jafnframt lagði oddviti til að sveitarstjórn setti af stað ferli við endurskoðun samþykktarinnar hvað varðar ráðningu sveitarstjórnar í lylkilstöður sveitarfélagsins, því hér væri ekki um einsdæmi að ræða hvað slíkar stöður varðar. Samþykkt með fjórum atkvæðum, Matthías Sævar Lýðsson situr hjá.
6.
Netöryggi í Strandabyggð, reglur og stefnur um netöryggismál í Strandabyggð
Málsnúmer 2601036
Oddviti rakti tilurð máls. Strandabyggð hlaut netöryggisstyrk frá Rannís í febrúar 2026. Einn af verkþáttum verkefnisins er að setja áhættumat og verklagsreglur til að draga út áhættu og tryggja stöðugleika í verki. Steinar Darri Emilsson sérfræðingur í netöryggi hefur starfað með starfsmönnum Strandabyggðar að verkefninu og hefur sett upp stefnur og verklagsreglur í tengslum við netöryggi.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og sagði þessi gögn væru mjög ítarleg og nefndi að kjörnir fulltrúar væru ekki taldir með í reglum um starfsmenn og þyrfti að bæta úr því. Jafnframt lagði hann til að erindinu yrði frestað til næsta fundar.

Oddviti bar tillögu Matthíasar Sævars Lýðssonar undir atkvæði og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
7.
Grenjavinnsla á svæði 6
Málsnúmer 2604041
Oddviti rakti tilurð máls. Fram eru komnar tvær umsóknir um grenjavinnslu á svæði 6a og 6b.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Oddviti lagði til að umsókn um grenjavinnslu á svæði 6a yrði samþykkt. Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi við umsækjanda.

Oddviti lagði til að umsókn um grenjavinnslu á svæði 6b yrði samþykkt. Samþykkt með fjórum atkvæðum og Matthías Sævar Lýðsson greiddi atkvæði á móti. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi við umsækjanda.

8.
Innviðaráðuneyti, Hringvegur um Vestfirði
Málsnúmer 2604048
Oddviti rakti tilurð máls.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og las upp eftirfarandi ályktun Strandabyggðar:

"Sveitarstjórn Strandabyggðar fagnar tillögu starfshóps Innviðaráðherra að Hringvegurinn (Þjóðvegur 1) sé líka á Vestfjörðum. Hins vegar fellst sveitarstjórn Strandabyggðar ekki á þá niðurstöðu starfshópsins að Innstrandavegur nr. 68 þ.e. frá vegamótum við Staðarskála og að Hrófá eigi ekki að vera hluti af þeim hringvegi. Það er krafa sveitarstjórnar Strandabyggðar að Innstrandarvegur verði í framtíðinni hluti af Hringveginum og tekur undir samþykkt sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 12. mars 2026 um sama málefni"

Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða og sveitarstjóra falið að koma henni á framfæri við ráðuneytið


9.
Slit á Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 2603042
Oddviti rakti tilurð máls.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Oddviti lagði til að tillaga um slit á Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks verði samþykkt og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða
10.
Viðauki I við samning um Velferðarþjónustu Vestfjarða
Málsnúmer 2510014
Oddviti bað Hlíf Hrólfsdóttur að gera grein fyrir erindinu.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og útskýrði viðaukann

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Oddviti lagði til að viðaukinn yrði samþykktur og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að koma niðurstöðu til skila til hlutaðeigandi.
11.
Samþykkt um búfjárhald í Strandabyggð
Málsnúmer 2603037
Oddviti rakti tilurð máls. Bauð hann því næst Matthíasi Sævari Lýðssyni, að segja nokkur orð um samþykktina. Matthías Sævar Lýðsson útskýrði samþykktina

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Oddviti lagði til að Samþykkt um búfjárhald í Strandabyggð verði samþykkt og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
12.
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða, Eftirlitsskýrsla vegna Íþróttamiðstöð-sundlaug, Hólmavík 5.3.2026
Málsnúmer 2603022
Oddviti rakti tilurð máls og gaf orðið laust.

Skýrslan er lögð fram til kynningar.
13.
Húsnæðisáætlun 2026
Málsnúmer 2604039
Oddviti rakti tilurð máls.

Gaf oddviti því næst orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls

Oddviti lagði til að Húsnæðisáætlun Strandabyggðar 2026 verði samþykkt og bað sveitarstjórnarmenn að gefa afstöðu sína til kynna með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
14.
Fundargerðir Fræðslunefndar 7. apríl 2026
Málsnúmer 2603003
Oddviti, sem formaður fræðslunefndar, rakti efni fundarins og gaf síðan orðið laust.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og spurði út fundargerð varðandi fjölda starfsmanna, barngildi og tímabundna ráðningarsamninga.

Skrifstofustjóri tók til máls og útskýrði ráðningarsamninga starfsfólks.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.
Sorpsamlag Strandasýslu ehf, fundargerð stjórnar 13.3.2026
Málsnúmer 2602014
Oddviti, sem formaður stjórnar Sorpsamlagsins, rakti efni fundarins og gaf síðan orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson og Hlíf Hrólfsdóttir tóku til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.
Fjórðungssamband Vestfjarða, Samræmd móttaka og inngilding íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélögum á Vestfjörðum, kostnaðarmat móttökuáætlunar
Málsnúmer 2601015
Oddviti rakti tilurð máls.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Lagt fram til kynningar.
17.
Verkefni sveitarstjóra 2026
Málsnúmer 2602018
Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og spurði um nokkur atriði í skýrslu sveitarstjóra:

a. Hvað er Fræðslustjórn? Hver er í henni? Hvar er hún í stjórnkerfi sveitarfélagsins? Hver eru verkefni hennar?
b. Samráðsfundur með Vestfjarðarstofu. Gerðir þú minnisblað um þann fund?
c. Hvað kom út úr fundi með Vegagerðinni um innkeyrslu í sumarhúsahverfið?
d. Minnisblað um fund með HMS. Það er ekki hlutverk sveitarstjóra að úthluta lóðum til verktaka eða Brákar það þarf að sækja um þær, þegar þær eru tilbúnar að undangenginni auglýsingu.
e. Getur þú sagt okkur frá fundinum með Envalys.
f. Hvað kom fram á fundi um framhaldsnám á Vestfjörðum?
g. Hvenær á fundurinn með stjórnendum í Vegagerðinni um ástand vega í Strandabyggð?

Sveitarstjóri svaraði spurningum munnlega og fór yfir stöðu einstakra mála.

Júlíana Ágústsdóttir og Hlíf Hrólfsdóttir tóku til máls.



18.
Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands
Málsnúmer 2603045
Oddviti gaf orðið laust. Enginn tók til máls.

Ályktunin lögð fram til kynningar
19.
Náttúrustofa Vestfjarða, Fundargerð 158. stjórnarfundar ásamt ársreikningi 2025
Málsnúmer 2603024
Oddviti rakti tilurð máls og gaf síðan orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Fundargerð og ársreikningur lögð fram til kynningar.
20.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir stjórnar nr. 995 og 996
Málsnúmer 2601002
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
21.
Hafnasamband Íslands fundargerð 481
Málsnúmer 2604049
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls.

Fundargerð lögð fram til kynningar.