Fara í efni

Sveitarstjórn Strandabyggðar

1388. fundur
10. mars 2026 kl. 16:00 - 19:02
Félagsheimilinu á Hólmavík
Nefndarmenn
Matthías Sævar Lýðsson Aðalmaður
Hlíf Hrólfsdóttir Aðalmaður
Þorgeir Pálsson Oddviti
Grettir Örn Ásmundsson Varaoddviti
Marta Sigvaldadóttir Varamaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri
Oddviti bauð alla velkomna, í þetta sinn í félagsheimilið, þar sem Hnyðja væri í útleigu vegna kvikmyndagerðar á Hólmavík. Spurt var um athugasemdir við fundarboðun, engin athugasemd er gerð við fundarboðið.
Dagskrá
1.
Viðauki II 2026
Málsnúmer 2603006
Oddviti reifaði aðstæður og aðdraganda viðaukans og gaf síðan skrifstofustjóra, Salbjörgu Engilbertsdóttur orðið og bað hana að rekja einstaka liði viðaukans.

Salbjörg Engilbertsdóttir tók til máls og útskýrði viðauka II

Framkvæmdir:
3109 Ráðhús, frestun framkvæmda v. Endurbóta í kjallara kr. 500.000
3113 Félagsheimili, frestun málunar og hurðir kr. 2.000.000
3150 Lækkun fjárfestinga v. Sorpmála kr. 5.000.000
3151 Götur, frestun framkvæmda kr. 4.250.000
3152 Borist hefur tilboð í endurgerð á Sparkvelli upp á kr. 3.500.000, var ekki á upphaflegri áætlun. Gert er ráð fyrir heildarkostnaði allt að 5.000.000
3116 Loftdæla slökkviliðs er dæmd ónýt og hefur borist tilboð upp á 2.600.000, var ekki á upphaflegri áætlun
3152 Brandskjól framkvæmdakostnaður lækkar úr. 53.600.000 í kr. 30.000.000
6100 Lækkun framkvæmda við Hólmavíkurhöfn um 10.000.000 úr 12.700.000 í 2.700.000. Flotbryggjur og festingar.
6500 Sorpsamlag. Mistök voru gerð í skráningu fjárfestingaráætlunar Sorpsamlagsins Stjórn samþykkti fjárfestingar á árinu 2026 kr. 72.500.000 en skráð var í áætlun kr. 38.000.000. Lögð er til lækkun á þeirri áætlun um 2.500.000. Sömuleiðis var skráð í áætlun ársins 2027 v. Byggingar móttökustöðvar kr. 97.500.000 sem lækkar í kr. 28.500.000. Lántaka var skráð á árið 2026 kr. 35.000.000 en lækkar í 30.000.000 og á árinu 2027 var lántaka skráð kr. 60.000.000 sem fer út. Vaxtakostnaður sem fellur á árið 2026 eru kr. 267.000.
6700 Ljósleiðaraframkvæmd 2026. Gert er ráð fyrir 80.000 kr. á hvert staðfang sem ríkissjóður mun síðan endurgreiða til Strandabyggðar. Heildartekjur áætlaðar kr. 10.800.000 og kostnaður sá sami.
6900 Fráveita, kostnaðartala í upphaflegri áætlun var röng. Kostnaður við framkvæmdina er kr. 31.600.000 og styrkur Fiskeldissjóðs kr. 12.700.000, áður var skráð í áætlun 18.900.000 í kostnað. Hækkun er um 12.700.000 úr 6.200.000 í 18.900.000
7130 Lækjartún 16, frestun framkvæmda v. Endurbóta á baðherbergi. Kr. 1.500.000


Hækkun framkvæmda um 5.450.000.

Áhrif viðaukans á rekstarniðurstöðu samstæðu Strandabyggðar er lækkun afkomu þ.e. lækkun er á handbæru fé í A-B hluta úr 46.808.000 í 26.611.000 eða um 20.197.000 sem er vegna lækkunar á lántöku.

Oddviti gaf orðið laust.

Mathhías Sævar Lýðsson tók til máls og bar upp tvær spurningar varðandi viðaukann og óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun í eigin nafni:

"Þegar fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun var samþykkt af meiri hluta sveitarstjórnar á fundi 9. desember (sjá fundargerð) benti ég á að forsendur áætlunarinnar væru byggðar á veikum grunni og væru of bjartsýnar. Einnig benti ég á að sú skuldasöfnun sem fyrirhuguð er, væri ekki viðunandi. Því miður hafði ég rétt fyrir mér.
Nú þegar aðeins tveir mánuðir eru liðnir af árinu, er lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun þar sem um lækkun útgjalda er tæpar 47 milljónir og hækkun útgjalda er rúmar 52 milljónir. Þetta eru gríðarlegar breytingar eru settar fram í Viðauka II af starfsmönnum sveitarfélagsins. Sveitarstjórn hefur ekki komið að vinnu við þær breytingar. Í sveitarstjórnarlögum 138/2011 segir í 58. gr. „Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins.“ Með framlagningu Viðauka II er algjörlega gengið fram hjá sveitarstjórn með því að hún geti ekki haft nein áhrif á hvaða liðir eru skornir niður og hvaða liðir eru hækkaðir. Enginn umræða, rökstuðningur eða vinnufundir um svona stórar breytingar á fjárhagsáætlun. Það kemur líka fram í viðaukanum að í tveimur tilfellum hafi rangar tölur verið settar inn í fjárhagsáætlun, þar sem munaði 32.000.000 í öðru tilvikinu. Fjárhagsáætlunin sem samþykkt var í desember var því greinilega illa unnin.
Einnig koma fram í Viðauka II miklar breytingar á þriggja ára áætlun þar sem fjárfestingar 2027 eru lækkaðar um 124 milljónir og lántökuheimildir sama árs lækkaðar um 55 milljónir.
Það er alveg ljóst að þessar breytingar eru gerðar vegna slæmrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Því miður munu þessar breytingar ekki duga til að rétta af fjárhagsstöðuna heldur verður meira að koma til."

Matthías Sævar Lýðsson óskar sömuleiðis eftir að leggja fram tillögu A-lista:

"Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að leggja fyrir næsta sveitarstjórnarfund þann 14. apríl tillögur um hvaða leiðir eru færar til að laga erfiða fjárhagsstöðu Strandabyggðar. Fyrsti liður í því er fundur sveitarstjórnar með Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga."

Oddviti tók til máls og útskýrði nánar efni viðauka II og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Oddviti deilir áhyggjum Matthíasar en bendir á að ekki sé þörf á að mála dekkri mynd en þarf.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og minnti á að sveitarstjórn beri ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins og segist ekki hafa forsendur til að gera miklar breytingar á viðaukanum.

Oddviti tók til máls og sagði að ekki væri verið að færa ábyrgðina til en með viðaukanum væri verið að draga úr fjárfestingum, lántökum og gera tilfærslur.

Oddviti lagði viðaukann því næst fram til samþykktar sveitarstjórnar. Samþykkt með fjórum atkvæðum og Matthías Sævar Lýðsson situr hjá.

Oddviti bar tillögu A-lista undir atkvæði sveitarstjórnar. Tillagan er felld með þremur atkvæðum T-lista gegn tveimur atkvæðum A-lista.





2.
Lántaka Strandabyggðar hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Málsnúmer 2603016
Oddviti rakti tilurð máls og gaf síðan skrifstofustjóra, Salbjörgu Engilbertsdóttur orðið og les hún upp eftirfarandi viðauka í lánasamningi.

Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 80.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Til tryggingar láninu - þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði - samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr.sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.

Er lánið tekið til að endurfjármagna afborganir á eldri lánum sveitarfélagsins hjá Lánasjóðnum. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga. Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Strandabyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Oddviti bar lántökuna undir samþykkt sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.



3.
Lántaka Sorpsamlags Strandasýslu ehf hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Málsnúmer 2603015
Oddviti rakti tilurð máls og gaf síðan skrifstofustjóra, Salbjörgu Engilbertsdóttur orðið og les hún upp eftirfarandi viðauka í lánasamningi.


Ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Sorpsamlags Strandasýslu í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Sorpsamlags Strandasýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin nær til láns að höfuðstól allt að kr. 9.000.000,- með lokagjalddaga þann
4. desember 2033 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem Sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir. Lánið er tekið til að endurfjármagna afborganir á eldri lánum félagsins hjá Lánasjóðnum. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga. Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila. Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu. Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Strandabyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og spurði út í lánakjörin þar sem ekki er gert ráð fyrir afborgunum höfuðstóls fyrr en á síðari árum. Sömuleiðis spurði hann til hvers lánið væri tekið. Oddviti útskýrði tilgang lánsins sem er til endurnýjunar á bílakosti.

Oddviti kannað því næst hug fundarmanna til lántökunnar með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
4.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingur í Strandabyggð 2026
Málsnúmer 2511014
Oddviti rakti tilurð máls. Ljóst er að innleiðing lagabreytinga og aukinnar þjónustu er lærdómsferli og tekur sinn tíma. Í þessari endurgerð gjaldskrárinnar hefur verið aukin þjónusta við dreifbýlið, á þann hátt að hægt er að hafa stærri ílát við bæi í dreifbýli, sem sóttir eru á 12 vikna fresti. Sama gjald er tekið fyrir 240 og 660 l ílát.

Oddviti gaf orðið laust.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og vakti athygli á að með breytingu í gjaldskránni væri boðið upp á að fækka ferðum sem hún telur að sé skerðing á þjónustu.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og taldi hagræðingu á að fækka ferðum.

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls og benti á að hægt væri að fara með úrgang á móttökustöð.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og benti á að það hefði þurft að vera skýrara hverju var breytt í gjaldskrá.

Oddviti kannaði því næst hug fundarmanna til breyttrar gjaldskrár með handauppréttingu. Samþykkt með fjórum atkvæðum, Hlíf Hrólfsdóttir sat hjá.
5.
Kaupsamningur milli Strandabyggðar og Hornsteina um sölu á hlut Strandabyggðar í Hornsteinum
Málsnúmer 2602036
Oddviti rakti tilurð máls og vísaði í staðfestan kaupsamning Strandabyggðar og Hornsteina um kaup á umæddum hlut.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Samningurinn lagður fram til kynningar.
6.
Kaupsamningur milli Strandabyggðar og Kaupfélags Steingrímsfjarðar um sölu á hlut Strandabyggðar í Hornsteinum
Málsnúmer 2602037
Oddviti rakti tilurð máls og vísaði í staðfestan kaupsamnings Strandabyggðar og Kaupfélags Steingrímsfjarðar um kaup á umæddum hlut.

Samningurinn lagður fram til kynningar.
7.
Kaupsamningur milli Strandabyggðar og Trésmiðjunnar Höfða um sölu á hlut Strandabyggðar í Hornsteinum
Málsnúmer 2602038
Oddviti rakti tilurð máls og vísaði í staðfestan kaupsamning milli Strandabyggðar og Trésmiðjunnar Höfða um kaup á umæddum hlut.

Samningurinn lagður fram til kynningar.
8.
Þjóðfræðistofa Háskóla Íslands, Tillaga um verndarsvæði í byggð á Hólmavík, lokaskýrsla
Málsnúmer 2506019
Oddviti rakti tilurð máls. Skýrslan hefur verið send til Minjastofnunar.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að fela sveitarstjóra að senda Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tillögu að verndarsvæði í byggð á Hólmavík til staðfestingar."

Oddviti bar tillöguna undir atkvæði sveitarstjórnar. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða

Skýrslan er að öðru leiti lögð fram til kynningar.
9.
Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 2603013
Oddviti rakti tilurð máls. Oddviti kallaði eftir hug fundarmanna til umsóknarinnar með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
10.
Trésmiðjan Höfði, Hornsteinar fasteignafélag ehf og Strandagluggar og hurðir ehf, Erindi til sveitarstjórnar
Málsnúmer 2603014
Oddviti rakti eðli máls. Ljóst er að vissar verklagsreglur gilda um framkvæmd verkefna af þessu tagi og er val á undirverktökum þá á ábyrgð þess verktaka sem sér um verkið fyrir hönd Brákar, í þessu tilviki. Sveitarstjórn gæti þó ávallt komið sjónarmiðum sínum á framfæri, nú sem áður. Sveitarstjóri mun koma ábendingu bréfritara til skila til hlutaðeigandi aðila.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu málsins
11.
Víkingurinn 2026, erindi til sveitarstjórnar
Málsnúmer 2602039
Oddviti rakti eðli máls og lagði til að erindinu verði hafnað.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar til þeirrar tillögu með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
12.
Siglingasamband Íslands, Áskorun til sveitarstjórna
Málsnúmer 2603008
Oddviti rakti eðli máls og sagðist taka undir áskorun Siglingasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar.

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Oddviti tók til máls.
13.
Skipulagsgátt, Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 1267/2025
Málsnúmer 2512006
Oddviti rakti tilurð máls og lagði til að sveitarfélagið geri ekki athugasemd við umrædda breytingu á aðalskipulagi Árneshrepps.

Odviti gaf orðið laust og Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Oddviti kannaði hug sveitarstjórnar til þeirrar tillögu með handauppréttingu.

Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að koma þessari tillögu til skila.
14.
Skipulagsgátt, Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0164/2026 í Skipulagsgátt
Málsnúmer 2603007
Oddviti rakti tilurð máls og lagði til að sveitarfélagið geri ekki athugasemd við umrædda breytingu á aðalskipulagi Árneshrepps.

Oddviti kannaði hug sveitarstjórnar til þeirrar tillögu með handauppréttingu.

Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að koma þessari tillögu til skila.
15.
Fræðslunefnd, fundargerð 26.2.2026
Málsnúmer 2603003
Oddviti, sem formaður fræðslunefndar, rakti efni og umræðu fundarins.

Oddviti gaf orðið laust.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls og spurði út í lið nr. 1 sem er ferli við ráðningu leikskólastjóra. Hún vekur athygli á að í samþykktum sveitarfélagsins er það sveitarstjórn sem ræður leikskólastjóra. Sömuleiðis spyr hún hvort það þurfi að aðskilja leik- og grunnskóla þar sem eigi að ráða annan stjórnanda. Einnig telur hún að þessar breytingar þurfi samþykki sveitarstjórnar og óskar eftir að sjá viðkomandi starfslýsingar og gögn sem voru lögð fyrir fræðslunefnd varðandi lið nr. 1. Hún telur sig ekki vera að samþykkja það sem stendur í lið nr. 1.

Oddviti tók fram að í lok vikunnar fái tilheyrandi starfsmenn tilkynningu um breytingar á starfi. Hann tók jafnframt fram að með þessari ráðningu sé ekki verið að aðskilja leik- og grunnskóla í þessu skrefi.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun A-lista:

"Ekki hefur farið fram umræða í sveitarstjórn um skipulagbreytingar um ákvarðanir teknar varðandi stjórn leik, grunn og tónskóla. Í Samþykktum um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar segir í 45. gr. „Sveitarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og veitir þeim lausn frá starfi. Æðstu stjórnunarstöður í Strandabyggð eru forstöðumaður eignasjóðs, íþrótta- og tómstundafulltrúi, skólastjóri sameinaðs leik-, grunn- og tónskóla Strandabyggðar og skrifstofustjóri.“ Ef ráða á leikskólastjóra þarf því m.a. að breyta samþykktum Strandabyggðar."

Matthías Sævar Lýðsson tók jafnframt fram að með því væri hann ekki draga úr þörf á ráðningu leikskólastjóra.

Oddviti tók til máls og tekur fram að það hafi verið rætt reglulega að ráða leikskólastjóra og ekki hafi verið ætlunin að vinna gegn samþykktum sveitarfélagsins.

Að öðru leiti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.
Menntastefna Strandabyggðar 2026-2031
Málsnúmer 2511003
Oddviti rakti eðli máls, og lagði til að sveitarstjórn samþykkti Menntastefnu Strandabyggðar, 2026-2031.

Oddviti gaf orðið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og fagnaði nýrri Menntastefnu. Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Oddviti kannaði hug sveitarstjórnar til þeirrar tillögu með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
17.
Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd, fundargerð 27.2.2026
Málsnúmer 2603004
Oddviti gaf formanni nefndarinnar, Gretti Erni Ásmundssyni orðið sem útskýrði efni fundarins.

Oddviti tók til máls og gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Fundargerð að öðru leiti lögð fram til kynningar.

18.
Uppsögn á samning um refa og grenjaveiði í Djúpi
Málsnúmer 2307006
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki uppsögn samnings. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.

Sveitarstjórn leggur jafnframt til að svæði 6 verði skipt upp í tvö svæði og formanni falið að auglýsa hið fyrsta. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.
19.
Auglýsa refa- og grenjavinnslu í Bitru
Málsnúmer 2602044
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.
20.
Velferðarnefnd, fundargerð 2.3.2026
Málsnúmer 2603005
Oddviti fól formanni nefndarinnar Matthíasi Sævari Lýðssyni að rekja efni fundarins.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundargerð 5.3.2026
Málsnúmer 2602020
Oddviti fól formanni nefndarinnar að rekja efni fundarins. Matthías Sævar Lýðsson fór yfir fundargerðina og afgreiðslur nefndarinnar. Liðir sem krefjast samþykkis sveitarstjórnar eru í næstu liðum.

Eftirtaldir tóku til máls:
Þorgeir Pálsson
Grettir Örn Ásmundsson

Fundargerðin að öðru leiti lögð fram til kynningar.
22.
Umsókn um lóð að Kópnesbraut 29 a & b
Málsnúmer 2603011
Nefndin leggur til að umsóknin verði samþykkt. Samþykkt samhljóða.


Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki breytingu á staðföngum, í Kópnesbraut 29 og Kópnesbraut 31. Samþykkt samhljóða.
23.
Umsókn um byggingarleyfi að Kópnesbraut 29 a & b
Málsnúmer 2603012
Nefndin leggur til að umsóknin verði samþykkt. Samþykkt samhljóða.
24.
Umsókn um byggingarleyfi að Borgabraut 4 - Finnahótel, greinargerð brunahönnuðar
Málsnúmer 2509015
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
25.
Verkefni sveitarstjóra, febrúar 2026
Málsnúmer 2602018
Orðið gefið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og spurði út í nokkur atriði.
Oddviti tók til máls og svaraði spurningum.

Lagt fram til kynningar.
26.
Ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025
Málsnúmer 2603001
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls. Ársreikningurinn lagður fram til kynningar.
27.
Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða, fundargerð 24. fundar, 11.2.2026
Málsnúmer 2602033
Orðið gefið laust.

Eftirtaldir tóku til máls:
Þorgeir Pálsson
Matthías Sævar Lýðsson

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
28.
Hafnasamband Íslands, fundargerð stjórnar nr. 480, 16.2.2026
Málsnúmer 2603002
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
29.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerð stjórnar nr. 993, 18.2.2026 og nr. 994, 3.3.2026
Málsnúmer 2601002
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls. Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.