Sveitarstjórn Strandabyggðar
1387. fundur
10. febrúar 2026
kl.
16:04
-
18:22
í Hnyðju
Nefndarmenn
Þorgeir Pálsson
Oddviti
Júlíana Ágústsdóttir
Aðalmaður
Matthías Sævar Lýðsson
Aðalmaður
Hlíf Hrólfsdóttir
Aðalmaður
Marta Sigvaldadóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Salbjörg Engilbertsdóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Salbjörg Engilbertsdóttir
skrifstofustjóri
Oddviti bauð alla velkomna.
Spurt var um athugasemdir við fundarboðun.
Matthías Sævar Lýðsson gerir athugasemd við fundarboðun og segir villu hafa slæðst inn.
Í útsendri dagskrá fyrir fundinn er dagskrámál 13 umsagnarbeiðni vegna máls 0171/2025 en það mál varðar breytingu á deiliskipulagi í Garðabæ. Aftur á móti er í fylgiskjali með málinu vitnað í mál 0170/2025 Kláfur upp á Eyrarfjall. Ég fer fram á að þessi villa verði leiðrétt, það er nr. 0171 í heiti dagskrárliðar verði 0170.
Matthías Sævar Lýðsson óskar eftir að leggja fram eftirafarandi bókun:
Við undirbúning við þessa sveitarstjórnarfundar ætlaði ég að leita í eldri fundargögnum og fundargerðum. Það er ekki endilega einfalt mál. Ný heimasíða fór í loftið í byrjun nóvember. Síðan þá hafa fundargerðir verið birtar á nýrri heimasíðu. Þegar ný heimasíða fór í loftið var gömlu heimasíðunni lokað fyrir almenning. Yfirfærsla gagna t.d. fundargerða hefur ekki átt sér stað. Þetta þýðir að almenningur hefur ekki aðgang að fundargerðum fyrir nóvember 2025 eða öðrum fundargerðum sem voru á eldri vef Strandabyggðar. Í Samþykktum um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar stendur í 16. gr."Fundargerðir sveitarstjórnar skulu vera aðgengilegar á vefsíðu sveitarfélagsins." Það er í verkahring sveitarstjóra að sjá til þess að farið sé að samþykktunum.
Oddviti segist taka athugasemdina til greina og segir að allar fyrri fundargerðir og aðrar upplýsingar eru aðgengilegar á nýju heimasíðunni í gegnum tengil sem heitir vefsafn og er undir stjórnsýslu.
Þá var gengið til dagskrár:
Dagskrá
1.
Framlenging á yfirdráttarheimild í Sparisjóði Strandamanna
Oddviti rakti tilurð máls og gaf orðið laust.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls
Oddviti tók til máls og kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar, samþykkt samhljóða

2.
Staðfesting á sölu á hlut sveitarfélagsins í Hornsteinum til forkaupsréttarhafa
Oddviti bað þá kjörnu fulltrúa sem teldu sig vanhæfa við afgreiðslu máls að tilgreina það. Matthías Sævar Lýðsson lýsti sig vanhæfan. Oddviti óskaði eftir afstöðu sveitarstjórnar til vanhæfisins. Samþykkt samhljóða. Því næst vék Matthías Sævar Lýðsson af fundi. Enginn varamaður kom í hans stað.
Oddviti rakti tilurð máls og stöðu þess. Fram kom að unnið er að gerð kaupsamninga með aðstoð lögfræðings sveitarfélagsins.
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjórn staðfesti umrædda sölu á hlut sveitarfélagsins í Hornsteinum og feli sveitarstjóra að klára gerð kaupsamninga við viðkomandi. Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Matthías Sævar Lýðsson kemur aftur inn á fundinn.

3.
Deloitte hf, samningur um fjárhagslega úttekt vegna útgáfu Byggðasögu Stranda
Oddviti rakti tilurð máls. Orðið gefið laust.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskar eftir að leggja fram eftirfarandi bókun A-lista:
Á fundi 1353 kom til umræðu Byggðasaga Stranda. Þar lagði T-listinn fram eftirfarandi tillögu:
„Meirihlutinn leggur til að fenginn verði óháður endurskoðandi til að fara í og greina atburðarrás og stöðu verkefnisins Byggðasaga Stranda, eða Strandir 1, með það fyrir augum að skýra þróun og stöðu þessa verkefnis. ?.
Óskaði oddviti eftir samþykki sveitarstjórnar með handauppréttingu. Samþykkt með þremur atkvæðum T-lista en fulltrúar A- lista greiða atkvæði gegn tillögunni. Sveitarstjóra falið að leita til hugsanlegra verktaka og leggja fyrir sveitarstjórn.“
Nú leggur oddviti fram undirritaðan samning við Deloitte. En sveitarstjóra var falið að leita til verktaka og leggja fyrir sveitarstjórn. Þetta umboð til sveitarstjóra felur ekki í sér að skrifa undir samning fyrir hönd sveitarstjórnar enda kom það fram á sveitarstjórnarfundi 12.12.2023 að samningurinn verði lagður fyrir sveitarstjórn fyrir undirritun.
Enn á ný fer oddviti með stuðningi meirihlutans fram úr því sem samþykkt er á sveitarstjórnarfundi. Í fjárhagsáætlun er ekki hægt að sjá að gert sé ráð fyrir kostnaði allt að 5.000.000,- vegna þessa (sbr. Aðalbók). Eins og stendur í Sveitarstjórnarlögum 138/2011 og Samþykkt um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar er skylt að leggja fram viðauka áður en stofnað er til útgjalda utan fjárhagsáætlunar.
Það er ótrúleg þráhyggja hjá meirihluta sveitarstjórnar, sér í lagi þegar horft er til fjárhagsstöðu Strandabyggðar, að stofna til þessarra útgjalda þegar öll gögn málsins liggja ljós fyrir í gögnum og bókhaldi Strandabyggðar og láu fyrir þegar málið var tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar 12.12. 2023.
Að öðru leiti er vísað til bókunnar A-lista á sveitarstjórnarfundi 1353.
Oddviti benti á að staða verkefnisins hafi verið reglulega kynnt fulltrúum A-lista, þá sé ekki um að ræða fjárfestingarkostnað.
Oddviti óskar eftir að leggja fram eftirfarandi bókun T-lista:
„Hér er fyrst og fremst verið að kanna heildarkostnað Strandabyggðar vegna þessa verkefnis, á þeim tíma þegar sveitarfélagið stýrði verkefninu í samstarfi við Kaldrananeshrepp og Árneshrepp, en einnig fyrir þenn tíma og þá hvort sveitarfélagið hafi greitt til Búnaðarsambands Strandamanna vegna þessa. Þar sem verkefnið hefur verið umdeilt í samfélaginu, er brýnt að niðurstaða fáist, þannig að allir hlutaðeigandi, geti verið sáttir við þá niðurstöðu sem fæst.
Það vekur óneytanlega furðu hversu mikla áherslu A listinn leggur á sögulega forsögu þessa máls, í stað þess að vilja hjálpa til við að upplýsa um heildarkostnað verkefnisins.“
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls
Samningurinn lagður fram til kynningar.

4.
Rannsóknamiðstöð Íslands, styrkur vegna Netöryggi í Strandabyggð
Oddviti bað skrifstofustjóra, Salbjörgu Engilbertsdóttur, að gera grein fyrir styrknum.
Salbjörg útskýrði umsókn sem gerð var haustið 2025 til Rannís varðandi verkefnið „Örugg framtíð ? Netöryggi í Strandabyggð“ sem miðar að því að styrkja netöryggi í sveitarfélaginu, með því að greina áhættu, bæta innviði og auka fræðslu til starfsfólks og íbúa. Markmiðið er að skapa öruggara stafrænt umhverfi fyrir alla í Strandabyggð.
Með styrknum er hægt að hefja markvissa vinnu við að herða öryggi upplýsingatæknikerfa, auka öryggisvitund meðal starfsmanna ásamt því að setja upp rekstrarhandbók og verklag. Styrkinn má einnig nota til búnaðarkaupa sem styðja við netöryggismál. Lagt er til að Heiðrún Harðardóttir sinni verkefnastjórn fyrir hönd Strandabyggðar og að gerður verði samningur við Steinar Darra Emilsson netöryggisfræðing um að vinna verkið áfram í samræmi við styrkumsókn.
Oddviti gefur orðið laust
Matthías Sævar Lýðsson fagnar frumkvæði starfsmanna og telur þetta brýnt mál
Oddviti leggur tillögu skrifstofustjóra fram til samþykktar sveitarstjórnar og er hún samþykkt samhljóða.

5.
Samstarfssamningur Strandabyggðar og Héraðssambands Strandamanna
Oddviti rakti tilurð máls. Oddviti greindi einnig frá gjöf sem Birna Friðbjört Stephensen Hannesdóttir, svæðisfulltrúi ÍSÍ á Vestfjörðum færði sveitarstjórn, en það er ritið „Íþróttabókin, ÍSÍ, saga og samfélag í 100 ár“. Sveitarstjórn færir Birnu og ÍSÍ kærar þakkir fyrir gjöfina.
Orðið gefið laust.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og líst vel á samninginn.
Oddviti lagði til að gengið yrði til samninga við HSS um styrk og að samhliða samningnum, yrði rætt um að tengja samam starf tómstundafulltrúa Strandabyggðar og framkvæmdastjóra HSS í sama stöðugildið. Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar til tillögunnar. Samþykkt samhljóða.

6.
Míla ehf, Samningur um lagningu ljósleiðarakerfis á Hólmavík
Oddviti rakti tilurð máls. Fyrir liggur nú samkomulag við Mílu um lagningu ljósleiðara í þorpið og fer sú vinna fram á þessu ári og næsta. Styrkur stjórnvalda rennur upp í kostnað þessa verkefnis, en Míla ber síðan umframkostnað. Orðið gefið laust.
Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls. Júlíana Ágústsdóttir tók til máls. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar varðandi samninginn. Samþykkt samhljóða.

7.
Tillaga T lista Strandabandalagsins um gerð verðmats á Þróunarsetrinu
Oddviti rakti tilurð máls. Tillaga og greinargerð Strandabandalagsins er svohljóðandi:
„Tillaga: Gerð verðmats á Þróunarsetrinu
Strandabandalagið leggur til að sveitarfélagið láti framkvæma verð- og kostnaðarmat á Þróunarsetrinu, með það fyrir augum að skoða hugsanlega sölu á eigninni.
Greinargerð:
Þróunarsetrið hefur þjónað sveitarfélaginu vel frá því sveitarfélagið fékk húsnæðið í hendur. Hefur verið jöfn og góð starfsemi í húsinu allt frá þeim tíma, auk þess sem húsið hýsir fundarsal sveitarstjórnar sem einnig er nýttur í margs konar útleigu.
Húsnæðið hefur ekki hlotið viðunandi viðhald í áraraðir, sérstaklega utanhúss, en einnig skortir talsvert á viðhald og endurbætur innanhúss. Framundan er því umfangsmikið og kostnaðarsamt viðhald.
Það er mat Strandabandalagsins, að eignarhald á húsinu þjóni ekki lengur hagsmunum sveitarfélagsins líkt og áður og er því lagt til að auglýst verði eftir fagaðilum til að verðmeta húsnæðið m.t.t. sölu þess og einnig að áætla viðgerðarkostnað.“
Orðið gefið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að leggja fram eftirfarandi bókun:
"Í Þróunarsetrinu hafa verið og eru unnin störf án staðsetningar og hefur Strandabyggð bent á þennan stað í því sambandi. Við sölu á húsinu er hætt við að dýrmæt störf tapist úr Strandabyggð. Mörgun spurningum er ósvarað m.a. um fundaraðstöðu Strandabyggðar, kjörstað og fleira. Þörf er á endurbótum á húsnæðinu og sem hefur ekki fengið neitt viðhald utanhúss undanfarnin ár. Hér er tekið undir að það væri gott að fá kostnaðarmat á endurbótum og viðhaldi húsnæðisins og svo í framhaldi af því væri hægt að taka ákvarðanir."
Oddviti tók til máls.
Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar til tillögu Strandabandalagsins. Samþykkt með fjórum atkvæðum en Matthías Sævar Lýðsson situr hjá.

8.
Magnús Á. Ágústsson, erindi til sveitarstjórnar
Oddviti rakti tilurð máls og bað Matthías Sævar Lýðsson að útskýra erindið nánar. Matthías tók fram að sveitarstjórn sé heimilt að lækka eða fella niður fasteignagjöld af friðlýstum eignum.
Oddviti sagði að fullan skilning væri á stöðu bréfritara og kostnaðarsömum framkvæmdum en leggur til um leið að hafna beiðninni.
Orðið gefið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls. Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.
Oddviti ber tillöguna upp til atkvæða sveitarstjórnar. Samþykkt með fjórum atkvæðum, Matthías Sævar Lýðsson situr hjá

9.
Foreldrafélag Leik-, grunn- og tónskólans á Hólmavík, erindi til sveitarstjórnar
Oddviti rakti tilurð máls og fyrri samskipti við foreldrafélagið. Lagði oddviti til að boðað yrði til fundar með foreldrafélaginu og sveitarstjórn til að ræða þetta og önnur tengd mál.
Orðið gefið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og leggur fram tillögu A-lista: A-listi leggur til að staða tómstundafulltrúa verði auglýst verði með vorinu til að mönnun verði frá hausti.
Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar gagnvart því að halda fund með foreldrafélaginu. Samþykkt samhljóða.
Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar gagnvart tillögu A-lista. Samþykkt samhljóða.

10.
Atlantsflug ehf, erindi til sveitarstjórnar
Oddviti rakti tilurð máls. Hér er verið að vekja athygli á þingsályktunartillögu um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Bréfritari bendir á aðra kosti sem gætu verið hagkvæmari.
Orðið gefið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Lagt fram til kynningar.

11.
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, Styrktarstjóður EBÍ
Oddviti rakti eðli máls. Orðið gefið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjóra yrði falið að útbúa umsókn í samráði við forstöðumenn. Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar til tillögunnar.
Samþykkt samhljóða.

12.
Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0173/2025 í Skipulagsgátt
Oddviti rakti eðli máls, þar sem kallað er eftir umsögn um Eyrarkláf. Málið er í samráðsgátt og rennur umsagnarfrestur út í dag, 10.2.
Orðið gefið laust. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.
Oddviti lagði til að sveitarstjóra verði falið að skila inn umsögn á þeim nótum að „sveitarfélagið gerði ekki athugasemd við áform um Eyrarkláf á Ísafirði“. Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

13.
Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0171/2025 í Skipulagsgátt
Oddviti rakti tilurð máls og vísaði í erindi nr 12 í dagskrá, en þar er um sama mál að ræða nema annars vegar er um að ræða tillögu á vinnslustigi (nýtt deiliskipulag) og hins vegar breytingu á aðalskipulagi. Lagði oddviti til sömu afgreiðslu og sveitarstjórn viðhafði undir lið 12.
Oddviti kallaði eftir afstöðu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

14.
Umsagnir Fjórðungssambands Vestfirðinga um Lagareldi og um tillögu að Samgönguáætlun 2026-2040
Oddviti rakti tilurð máls. Lagði oddviti áherslu á að sveitarstjórn sé vel upplýst um umsögn Fjórðungssambandsins, bæði þar sem Strandabyggð sé fiskeldissveitarfélag og eins hvað samgönguáætlun varðar. Orðið gefið laust.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að þakka Vestfjarðarstofu fyrir mikla og góða vinnu við báðar umsagnir. Oddviti tók undir með Matthíasi Sævari Lýðssyni.
Lagt fram til kynningar.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskaði eftir að þakka Vestfjarðarstofu fyrir mikla og góða vinnu við báðar umsagnir. Oddviti tók undir með Matthíasi Sævari Lýðssyni.
Lagt fram til kynningar.
15.
Sorpsamlag Strandasýslu ehf, fundargerð stjórnar 26.1.26
Oddviti, sem formaður stjórnar, rakti efni fundarins. Orðið gefið laust.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.
Fundargerð TÍM nefndar 19.1.26
Oddviti bað formann Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar að gera grein fyrir fundinum. Júlíana Ágústsdóttir tók við og útskýrði efni fundarins.
Oddviti tók til máls og fór yfir stöðuna við framkvæmdir á bókasafni og sparkvelli.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og spurði um inngönguleið á bókasafn og kostnað við endurbætur á sparkvelli. Oddviti svaraði síðan spurningum Matthíasar.
Júlíana Ágústsdóttir tók til máls.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

17.
Fundargerð US nefndar 05.02.26
Oddviti bað formann Umhverfis- og skipulagsnefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir fundinum.
Matthías Sævar Lýðsson tók til við að fara yfir fundargerðina og eru þrír liðir hennar lagðir fram sem sér liðir á dagskrá þ.e nr. 18, 19 og 20.
Varðandi lið nr. 4 á dagskránni sem er undir önnur mál þá leggur oddviti til að sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.

18.
Breyting á aðalskipulagi Strandabyggð, Hafnardalsárvirkjun
Oddviti bað formann Umhverfis- og skipulagsnefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir málinu.
Matthías Sævar Lýðsson fór yfir tillöguna leggur til að erindið verði samþykkt af sveitarstjórn.
Oddviti leggur til að sveitarstjórn samþykki tillögu US nefndar. Samþykkt samhljóða.

19.
Mýrebella ehf, Umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu í Steinadal
Oddviti bað formann Umhverfis- og skipulagsnefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir málinu.
Matthías Sævar Lýðsson fór yfir erindið. Oddviti leggur til að sveitarstjórn samþykki erindið. Samþykkt samhljóða.

20.
Sorpsamlag Strandasýslu ehf, Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Skeiði 3
Oddviti bað formann Umhverfis- og skipulagsnefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir málinu.
Matthías Sævar Lýðsson fór yfir erindið.
Oddviti tók til máls. Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls. Matthías Sævar Lýðsson tók til máls. Júlíana Ágústsdóttir tók til máls.
Oddviti og leggur til að sveitarstjórn samþykki erindið. Samþykkt með fjórum atkvæðum. Júlíana Ágústdóttir situr hjá.

21.
Verkefni sveitarstjóra janúar 2026
Orðið gefið laust.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og lagði fram nokkrar spurningar til sveitarstjóra sem hann svaraði. Enginn annar tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og lagði fram nokkrar spurningar til sveitarstjóra sem hann svaraði. Enginn annar tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
22.
Hafnasamband Íslands, fundargerðir stjórnar nr. 476, 477, 478 og 479
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls. Lagt fram til kynningar.
23.
Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerð stjórnar nr. 992, 23.1.26
Orðið gefið laust. Enginn tók til máls. Lagt fram til kynningar.
24.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerð stjórnar nr. 88, 21.1.26
Orðið gefið laust.
Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og telur mikilvægt að stuðningur ríkisins skili sér til íbúa á köldum svæðum.