Fræðslunefnd
26. fundur
26. febrúar 2026
kl.
16:30
-
17:34
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Þorgeir Pálsson
Formaður
Júlíana Ágústsdóttir
Varamaður
Heiðrún Harðardóttir
Aðalmaður
Valgeir Örn Kristjánsson
Varamaður
Steinunn Magney Eysteinsdóttir
Aðalmaður
Magnea Dröfn Hlynsdóttir
Áheyrnarfulltrúi
Kristín Anna Oddsdóttir
Áheyrnarfulltrúi
Jóhanna B.Ragnarsdóttir
Áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þorgeir Pálsson
Formaður
Fundur fræðslunefndar Strandabyggðar haldinn að Hafnarbraut 25, fimmtudaginn 26.2.26. Fundur hófst 16:34. Mætt eru: Heiðrún Harðardóttir, Valgeir Örn Kristjánsson í stað Guðfinnu Lára Hávarðardóttir, Steinunn Eysteinsdóttir, Júlíanna Ágústsdóttir í stað Vignis Rúnars Vignissonar og Þorgeir Pálsson sem ritaði fundargerð. Aðrir sem sitja fundinn eru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri, Kristín Anna Oddsdóttir frá foreldrafélagi, Kristrún Lind Birgisdóttir og Anna María Þorkelsdóttir frá Ásgarði voru í fjarfundi.
Engin önnur formleg mál tekin fyrir, en spurt var um sumarfrí leikskóla og samræmingu þeirra. Unnið er að þessu með Ásgarði. Einnig var spurt um nýtt gervigras og net á battavöllinn og er það í ferli.
Fleira ekki gert. Fundargerð lesin yfir. Formaður óskaði leyfis til að færa fundargerðina yfir í nýtt fundargerðaform sveitarfélagsins.
Dagskrá
1.
Kynning á ferli við ráðningu leikskólastjóra Lækjarbrekku
Formaður gaf Kristrúnu Lind Birgisdóttur frá Ásgarði orðið. Kristrún Lind fór yfir þá vinnu sem hefur átt sér stað og rakti ferlið. Ferlið er óvanalegt að því leyti að farið er yfir starfslýsinguna samhliða umræðu um ráðningu við viðkomandi. Mikilvægt er að halda áfram þeirri vinnu sem unnin hefur verið í báðum skólum. Unnið er að gerð starfslýsingar og ráðningarsamnings. Spurt var um eðli breytinga og starfskjör þeirra sem fyrir eru, sem og upphaf ráðningartímabils. Spurt um hugsanlegar breytingar í nemendafjölda og áhrif á starfið.
2.
Fjárhagsáætlun - fjárþörf og húsnæðisáætlun
Formaður ræddi húsnæðismál í grunnskólans. Stöðu framkvæmda við bókasafn og eldri hluta grunnskólans. Góð umræða spannst um innviðaskuld og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Ljóst þótti einnig að þær mikli framkvæmdir og fjárfestingar sem ráðist hefur verið í t.d. innan menntasviðs (grunnskóla og leikskóla), voru ekki val.
3.
Staða á innleiðingu ANG
Anna María fór yfir stöðu innleiðingarinnar. Fram koma að grunnskólinn á Hólmavík hefur unnið að þessari innleiðingu frá 2020 og er í raun framan öðrum skólum hvað þetta varðar. Sú vinna er komin inn í kennsluáætlanir. Spurt var um vinnuskjöl kennara. Fram kom að þessi skjöl eiga að vera opinber til að foreldrar sjái hvað unnið sé með. Allir eiga að hafa aðgang að þessum skjölum. Fram kom ábending um að „lifandi skjöl“ eru oft vandamál við skjölun og vistun. Leiðbeiningar yfirvalda eru með þessum hætti. Framvinduskýrslur eru lifandi skjöl, meðan t.d. menntastefna er lokað skjal.
Anna María bætti við að grunnskólinn á Hólmavík er fyrsti skólinn á landinu sem lýkur innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og verður bréf þar um sent á MMS. Nefndarmenn fagna þessu og hrósa öllum hlutaðeigandi fyrir góða vinnu.
Anna María bætti við að grunnskólinn á Hólmavík er fyrsti skólinn á landinu sem lýkur innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og verður bréf þar um sent á MMS. Nefndarmenn fagna þessu og hrósa öllum hlutaðeigandi fyrir góða vinnu.
4.
Sérfræðiþjónusta við kennara og starfsfólk skólanna
Formaður gaf Önnu Maríu Þorkelsdóttur orðið. Anna María er kennsluráðgjafi við báða skóla og hittir starfsmenn og skólastjóra reglulega. Leikskólastjóri kemur inn í gæðaráð þegar ráðning er afstaðin. Anna María tiltók hversu velkomin hún er þegar hún heimsækir Hólmavík. Ný menntastefna kallar á fleiri verkefni og verður sýnileg í öllu skólastarfi. Anna María hrósaði starfsfólki skólanna og þeirri jákvæðni sem einkennir starfið.
5.
Menntastefna Strandabyggðar 2026-2031
Formaður sagði frá vinnu við gerð menntastefnu og því samráðsferli sem stefnan hefur farið í gegnum.
Því næst lagði formaður til að fræðslunefnd samþykkti menntastefnu Strandabyggðar 2026-2031 og bað fundarmenn að staðfesta hug sinn með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.
Því næst lagði formaður til að fræðslunefnd samþykkti menntastefnu Strandabyggðar 2026-2031 og bað fundarmenn að staðfesta hug sinn með handauppréttingu. Samþykkt samhljóða.