Fara í efni

Fræðslunefnd

7. fundur
7. maí 2026 kl. 20:00 - 21:44
í Hnyðju
Nefndarmenn
Þorgeir Pálsson Formaður
Júlíana Ágústsdóttir Varamaður
Heiðrún Harðardóttir Aðalmaður
Steinunn Magney Eysteinsdóttir Aðalmaður
Magnea Dröfn Hlynsdóttir Áheyrnarfulltrúi
Kristín Anna Oddsdóttir Áheyrnarfulltrúi
Berglind Maríusdóttir Áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir Embættismaður
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þorgeir Pálsson formaður
Kristrún Lind Birgisdóttir frá Ásgarði var í fjarfundi.
Dagskrá
1.
Niðurstöður kannana s.s. nemenda, foreldra, starfsfólks
Málsnúmer 2605001
Formaður gaf Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur skólastjóra orðið. Hún rakti innihald kannanna sem sýnir almennt góða niðurstöðu hvað varðar andrúmsloft og starfanda. Rætt var um kynningu á jákvæðum aga fyrir nýju starfsfólki. Innlit í kennslu var rætt og fram koma að því verður fjölgað á næsta ári. Vel hefur gengið að innleiða leiðsagnarnám. Starfsmaður Ásgarðs kemur að þessari vinnu. Nemendaþing er fram undan í maí. Fram komu áhyggjur vegna lóðarinnar, fótboltavallar og frágangi lóðar. Nemendur óska fjölbreytni í list- og verkgreinum. Fundir með hagaðilum hafa farið fram sem styðja óskir nemenda. Fór skólastjóri yfir niðurstöður fleiri kannanna.

Formaður sagði frá aðgerðum vegna skólalóðar. Einnig var rætt um frágang við innganga í leikskólann. Fram kom þörf á endurskoðuðum hálkuvörnum.
2.
Skóladagatal leikskóla 2026-2027
Málsnúmer 2603048
Formaður gaf skólastjóra orðið sem fór yfir dagatalið. Gert er ráð fyrir 20 sumarfrísdögum auk skráningardaga. Lagði skólastjóri til að sumarfrí verði samkvæmt óskum foreldra sem hefði áhrif á skráningargjöld. Starfsfólk á síðan sína 30 daga í sumarfrí. Miðar skólastjóri við leikskóladagatöl ólíkra skóla sem hafa verið skoðuð. Skipulagsdagar verða sex sem oft eru til samræmis við grunnskóla. Leikskólagjöld falla ekki niður á skipulagsdögum. Margir viðburðir eru almennt í leikskólanum. Áhersla er nú lögð á hafið og það sem því tengist.
Frá Ásgarði kom ábending um að ákvörðun um skráningardaga og sumarlokun, er stórt mál sem þarf góðan undirbúning. Einnig var bent á að mikilvægt sé að afgreiða skóladagatalið og þá án skráningardaga, sem kæmu síðar.

Fræðslunefnd tekur jákvætt í hugmynd skólastjóra um skráningardagana, en telur rétt að samþykkja leikskóladagatalið án þeirra. Einnig leggur fræðslunefnd til að skólastjóra sé falið að útfæra hugmyndina til afgreiðslu í fræðslunefnd síðar og miða við að leggja hana fullmótaða fyrir fyrsta fund nýrrar fræðslunefndar.

Tillagan borin undir atkvæði. Samþykkt samhljóða.
3.
Staða skimanaáætlana/mat á námi og framförum barna
Málsnúmer 2605002
Formaður gaf Hrafnhildi Þorsteinsdóttur orðið. Hún fór yfir áætlanirnar og tiltók hvað fælist í þeim. Einnig var farið yfir mat á félagslegri stöðu, sem byggir á vinnu Vöndu Sigurgeirsdóttur. Farið var yfir ýmis próf og staðla. Allt yfirfarið og mat á sér stað reglulega innan skólans. Niðurstöður lesferils eru flestar komnar. Fram kom ánægja með ritunarrammann.

Kristrún benti á að skimunaráætlunin sé mjög ítarleg og vel nýtt. Fræðslunefnd fagnar því.
4.
Innleiðing menntastefnu, fyrstu aðgerðir
Málsnúmer 2511003
Formaður gaf skólastjóra orðið. Skólastjóri fór yfir uppbyggingu aðgerðaráætlunarinnar og skiptingu hennar eftir árum. Kom Kristrún inn á hversu gott það væri að þessi vinna væri komin af stað og þetta langt. Fræðslunefnd tók undir það. Formaður benti á góða umræðu um viðmiðin á sínum tíma, við vinnslu stefnunnar. Skólastjóri sagði mikilvægt að setja markið hátt og tók nefndin undir það.

Fram kom tillaga um að áætlunin verði kynnt sérstaklega fyrir nýrri fræðslunefnd. Samþykkt samhljóða. Einnig kom fram mikilvægi þess að meta reglulega innra mat og stöðu innleiðingar.
5.
Nýtt skipurit og hlutverk skólastjórnenda
Málsnúmer 2605003
Formaður gaf Kristrúnu Lind Birgisdóttur orðið. Hún fór yfir verkaskiptingu skólastjóra grunnskóla og leikskólastjóra. Kristrún lagði áherslu á skýra verkaskiptingu sem unnin var af skólastjóra og Ásgarði, auk samráðs við sveitarstjóra. Verkaskiptingin er í samræmi við kjarasamningsbundnar áherslur.

Sýndi Kristrún nýtt skipurit. Fram kom ábending um orðalagsbreytingar varðandi umsjónarmann sérkennslu, sem verður lagfært og er nú deildarstjóri stoðþjónustu.

Lagði fræðslunefnd til að sveitarstjórn samþykki nýtt skipurit.

Formaður fór yfir túlkun lögfræðings sveitarfélagsins varðandi aðkomu sveitarstjórnar að ráðningu leikskólastjóra, samkvæmt samþykktum, þar sem sveitarstjórn gengur í raun lengra en samþykktir segja til um með því að ráða leikskólastjóra.
Fundargerð lesin yfir.