Fræðslunefnd
7. fundur
7. apríl 2026
kl.
16:30
-
17:45
Grunnskólinn á Hólmavík
Nefndarmenn
Þorgeir Pálsson
Formaður
Heiðrún Harðardóttir
Aðalmaður
Júlíana Ágústsdóttir
Varamaður
Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Aðalmaður
Steinunn Magney Eysteinsdóttir
Aðalmaður
Kristín Anna Oddsdóttir
Áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þorgeir Pálsson
Formaður
Fundur fræðslunefndar Strandabyggðar haldinn í Grunnskólanum á Hólmavík, 07.04.26. Fundur hófst 16:33.
Mætt eru: Heiðrún Harðardóttir, Guðfinna Lára Hávarðardóttir, Steinunn Eysteinsdóttir, Júlíana Ágústsdóttir í stað Vignis R. Vignissonar og Þorgeir Pálsson sem ritaði fundargerð. Aðrir sem sitja fundinn eru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri Leik- og Grunnskólans á Hólmavík, Kristín Anna Oddsdóttir frá foreldrafélagi og Kristrún Lind Birgisdóttir og Anna María Þorkelsdóttir frá Ásgarði voru í fjarfundi.
Fram kom að fyrir mistök voru áheyrnarfulltrúar ekki boðaðir um leið og aðalmenn heldur fyrr í dag. Náðu þeir því ekki allir að mæta á fundinn. Formaður baðst velvirðingar á þessum mistökum.
Fundargerð lesin yfir. Formaður óskaði leyfis til að færa fundargerðina yfir í nýtt fundargerðaform sveitarfélagsins og senda til rafrænnar samþykktar.
Dagskrá
1.
Skóladagatal 2026-2027
Formaður gaf skólastjóra, Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur orðið. Skólastjóri fór yfir skóladagatalið sem er hefðbundið. Vetrarfrí er tvisvar, í október og febrúar. Í upphafi og lok skólaárs eru útikennsludagar. Annars er skóladagatalið mjög hefðbundið. Kennsludagar eru 180, skipulagsdagar 13. Styttri dagar eru 6 og lengri dagar engir. Spurt var um tímasetningu skipulagsdaga. Skólastjóri svaraði og sagði að reynt væri að dreifa þeim samkvæmt kjarasamningi. Spurt var hvenær stytting kennara væri tekin. Skólastjóri svaraði að stytting væri tekin í tengslum við skipulagsdaga og eftir samkomulagi.
Spurt var um af hverju leikskóladagatal væri ekki kynnt ásamt grunnskóladagatali. Fram kom að leikskóladagatal er í vinnslu. Þarf að samræma mismunandi fjölda t.d. skipulagsdaga. Eins kom fram að þau dagatöl eru oft gerð seinna. Var bent á að þetta hafi verið rætt áður og að til hafi staðið að kynna það fyrr. Fram kom spurning um samræmingu sumarleyfa beggja skólaeininga. Það er í vinnslu og reynt verður að færa til á þessu sumri, en annars er verið að skoða skólaárið 2026/2027.
Spurt var um af hverju leikskóladagatal væri ekki kynnt ásamt grunnskóladagatali. Fram kom að leikskóladagatal er í vinnslu. Þarf að samræma mismunandi fjölda t.d. skipulagsdaga. Eins kom fram að þau dagatöl eru oft gerð seinna. Var bent á að þetta hafi verið rætt áður og að til hafi staðið að kynna það fyrr. Fram kom spurning um samræmingu sumarleyfa beggja skólaeininga. Það er í vinnslu og reynt verður að færa til á þessu sumri, en annars er verið að skoða skólaárið 2026/2027.
2.
Kennslumagn - áætlun skóla og fyrirséð þörf fyrir stöðugildi við kennslu og stoðþjónustu
Formaður gaf fulltrúa Ásgarðs, Kristrúnu Lind Birgisdóttur, orðið. Kristrún Lind fór yfir almennt kennslumagn m. v. nemendafjölda. Um er að ræða 5 stöðugildi í grunn úthlutun, sem er ívið hærra en á síðasta skólaári. Varðandi stoðþjónustu kom fram að þar er gert ráð fyrir 3,5 stöðugildum í grunnskólann. Áfram verður reynt að takmarka afleysingavinnu stoðþjónustunnar. Spurt var um hvort stoðþjónustan hafi aukist eða dregist saman. Hún er svipuð og sl. skólaár, en er alltaf í samræmi við þarfir barna. Getur breyst hratt yfir skólaárið.
3.
Mönnun leikskóla og barngildi
Formaður gaf fulltrúa Ásgarðs, Kristrúnu Lind Birgisdóttur, orðið. Kristrún fór yfir barngildi og úthlutun stöðugilda næsta skólaár. Inni í þeim tölum eru börn frá Kaldrananeshreppi, og miðast það mat við núverandi stöðu. Samtals 19.7 barngildi, eða 2,5 stöðugildi sem grunnmönnum. Margt er þó eftir þar. Í heild er um að ræða 3,5 stöðugildi sem sinna börnunum. Að auki kemur mönnun við mötuneyti og ræstingar. Tilkoma leikskólastjóra breytir aðeins þessum forsendum, enda gengur leikskólastjóri í ýmis störf. Spurt var hvort þessar tölur gæfu tilefni til að fækka starfsfólki? Þar þarf að skoða stöðugildi og starfshlutfall. Starfsmenn Lækjarbrekku eru almennt ófaglærðir og þar með á tímabundnum samningum, eða út hvert skólaár. Þannig er reglan almennt á Íslandi.
Kristrún Lind Birgisdóttir og Anna María Þorkelsdóttir frá Ásgarði yfirgáfu fundinn.
4.
Starfsmannaviðtöl. Fyrirkomulag og helstu niðurstöður
Formaður gaf skólastjóra, Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur orðið. Viðtöl sýna að þörf virðist vera á að auglýsa eftir starfsfólki, amk 50% starf í kennslu og í stoðþjónustu vantar 1,3 stöðugildi. Þörf er á að ráða þroskaþjálfa. Reynt verður að ráða starfsmenn með samnýtingu milli skóla í huga. Einnig kom fram að það ríkir almenn ánægja innanhúss og er talað um öflugt lærdómssamfélag. Er Ásgarði þakkað þeirra aðkomu þar og Önnu Maríu sérstaklega. Nefndin fagnar almennt góðri niðurstöðu viðtala og upplifun starfsfólks á starfi skólans.
5.
Starfsmannastefna leik- og grunnskóla
Formaður gaf skólastjóra, Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur orðið. Skólastjóri fór yfir starfsmannastefnuna. Kom skólastjóri inn á hæfniramma og móttökuáætlun starfsfólks. Um er að ræða gátlista sem nýttir eru eftir þörfum. Spurt var um breytingar á þessari stefnu við tilkomu leikskólastjóra? Stefnan er það almenn að það á ekki að breyta neinu. Stefnan er frá 2025 en skal endurskoðuð árlega.
6.
Staða á umbótum í innra mati
Formaður gaf skólastjóra, Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur orðið. Skólastjóri sagði frá stöðu mála og nefndi að ytra mat hefur verð tekið frá 2020. Öllum þáttum þar lokið og skilað til ráðuneytisins. Innra matið er í sífelldri skoðun. Gerð er langtíma áætlun um innra mat skólans auk þess sem á að skoða á hverjum tíma. Staðan er sú að mest er á áætlun, kannanir, námsmat og stefnuskjöl uppfærð. Heilt yfir er staðan góð. Umbótaáætlun er sýnileg. Einstaklingsviðtöl hafa gengið mjög vel og var sérstök áhersla lögð á einstaklingsviðtölin ásamt markmiðasetningu nemenda í byrjun skólaárs. Þau gögn sem hafa verið uppfærð eru margvísleg og þeim gögnum fjölgar sífellt. Margvíslegar áætlanir eru í sífelldri endurskoðun.