Fræðslunefnd
6. fundur
6. ágúst 2026
kl.
17:00
-
18:32
í Hnyðju
Nefndarmenn
Kjartan Jónsson
Formaður
Elín Ingimundardóttir
Varamaður
Andri Freyr Arnarsson
Varamaður
Röfn Friðriksdóttir
Aðalmaður
Aleksandra Pilugina
Aðalmaður
Starfsmenn
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Embættismaður
Aðalbjörg Signý Sigvaldadóttir
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir
Leikskólastjóri
Formaður, Kjartan Jónsson, bauð fundarmenn velkomna og setti fund kl.17:00, ritari er Aðalbjörg S. Sigurvaldadóttir
Formaður fór yfir trúnaðaryfirlýsingu nefndarmanna og skrifuðu nefndarmenn undir.
Dagskrá
1.
Samstarf við Grunnskólann á Drangsnesi veturinn 2026-2027
Hrafnhildur skólastjóri grunnskólans á Hólmavík fór yfir forsögu málsins og gerði grein fyrir kostum samstarfs á milli grunnskólanna. Hugmyndin er að nýta mannauð skólanna sem best og einnig hefur starfsmannaskortur og aðstöðuleysi verið helsti hvati til þessarar samvinnu. Umræða skapaðist um málefnið og var tekið jákvætt í það og það talið vera til framþróunar samstarfs sveitarfélaganna.
Fræðslunefnd leggur til að farið verði af stað í þetta verkefni þannig að samstarf byrji við upphaf skólaárs og vísar tillögunni þá hér með áfram til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.
Fræðslunefnd leggur til að farið verði af stað í þetta verkefni þannig að samstarf byrji við upphaf skólaárs og vísar tillögunni þá hér með áfram til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.
2.
Skráningardagar Leikskólans Lækjarbrekku
Farið er yfir tillöguna og útskýrt fyrirkomulag þessarar framkvæmdar. 10 dagar eru nefndir og eru þeir tengdir frídögum grunnskólans. Umræður sköpuðumst og var tekið mjög jákvætt í þessa tillögu.
Fræðslunefnd leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt og vísar henni til sveitarstjórnar.
Fræðslunefnd leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt og vísar henni til sveitarstjórnar.
3.
Skólareglur Strandabyggðar
Hrafnhildur skólastjóri fór yfir tillögur að skólareglum grunnskólans, mikilvægi skólareglna og nýja reglugerð er varða snjalltækjanotkun nema í skóla. Umræður sköpuðust um hvernig fyrirkomulag yrði hentugast er varðar vörslu tækja nemanda meðan á skólatíma stendur.
Mögulega þarf að samræma lið 6. tækjanotkun við reglugerð frá Menntamálaráðuneyti.
Kynning á reglugerðinni fer fram í skólabyrjun.
Mögulega þarf að samræma lið 6. tækjanotkun við reglugerð frá Menntamálaráðuneyti.
Kynning á reglugerðinni fer fram í skólabyrjun.
4.
Skóladagatöl, nemendafjöldi, skipulag starfs - munnleg skýrsla skólastjóra
Hrafnhildur fór yfir skóladagatal og upplýsti fundarmenn um skipulagsdaga og viðburðardaga grunnskólans. Sagði frá Aðalnámskrá grunnskólans, tímafjölda sem hvert stig grunnskólans þarf að uppfylla og einnig skyldur skólans. Námsvísir, skólanámskrá, og ný menntastefna Strandabyggðar sem verður kynnt við upphaf skóla.
Frístund var tekin til umræðu og farið yfir mikilvægi frístundarstarfs í framhaldi skóladags. Þá kom fram að umsóknir frístundarleiðbeinanda hafa borist.
Hrafnhildur benti nefndarmönnum á heimasíðu Strandabyggðar undir tengli “skólar" en þar eru allar helstu upplýsingar er varða skólastarf.