Fara í efni

Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd

27. fundur
27. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:36
á skrifstofu Strandabyggðar
Nefndarmenn
Grettir Örn Ásmundsson Formaður
Marta Sigvaldadóttir Aðalmaður
Henrike Stuehff Aðalmaður
Björk Ingvarsdóttir Aðalmaður
Þórður Halldórsson Aðalmaður
Starfsmenn
Þorgeir Pálsson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Grettir Örn Ásmundarson formaður
Dagskrá
1.
Uppsögn á samning um refa- og minkaveiði í Djúpi
Málsnúmer 2307006
Atvinnu- dreifbýlis og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að segja upp núgildandi samning við Firringu ehf. kt 470109-0920 um refa og grenjaveiði á svæði 6, frá Mórillu að Ísafjarðará, frá og með 27 febrúar 2026.

Samþykkt samhljóða.
2.
Uppsögn á samning um refa- og minkaveiði í Bitru
Málsnúmer 2602003
Atvinnu- dreifbýlis og hafnarnefnd samþykkir uppsögnina og um leið þakka þeim Sigurði Marínó Þorvaldssyni og Þorvaldi Garðari Helgasyni fyrir samstarfið.
3.
Auglýsa eftir refa- og minkaveiði í Bitru
Málsnúmer 2602044
Atvinnu- dreifbýlis og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýst verði eftir nýjum aðilum til að sinna svæði 1.

Umræður spunnust um laun og launakjör veiðimanna og vill Atvinnu- dreifbýlis og hafnarnefnd hvetja sveitarstjórn enn og aftur til að endurskoða launakjör áður en auglýst verður eftir nýjum aðilum, og vísar í fundargerð Atvinnu- dreifbýlis og hafnarnefndar frá 7. Júní 2023

http://strandabyggd.snerpill.is/stjornsysla/atvinnumala-_og_hafnarnefnd/Atvinnu-_dreifbylis-_og_hafnarnefnd_fundur_7_juni_2023/
4.
Atvinnuuppbygging í Strandabyggð
Málsnúmer 2602045
Umræður um jákvæða atvinnuuppbyggingu spunnust á fundinum.