Fara í efni

Um skólann

Grunnskólinn á Hólmavík er staðsettur á Skólabraut 20-22. Þar eru nemendur sem stunda nám í 1.-10. bekk og er samkennsla milli árganga. 

Nemendafjöldi

Skólaárið 2024-2025 eru nemendur Grunnskólans á Hólmavík sem hér segir:

Bekkur/Árgangur/Umsjónarkennari/Nemendur

1.bekkur    1    VF        3
2. bekkur   2    VF        4
3.bekkur    3    MDH    3
4.bekkur    4    MDH    6
5.bekkur    5    JGR      2
6.bekkur    6    JGR      6
7.bekkur    7    JGR      2
8.bekkur    8    LJ         6
9.bekkur    9    LJ         5
10.bekkur 10   LJ         3      

Samtals nemendafjöldi: 40

Samkennsla árganga

Skólaárið 2025-2026 verður samkennsla sem hér segir: 

1.-4. bekkur
5.-7. bekkur
8.-10. bekkur

Viðmiðunarstundaskrá

Stundaskrá nemenda: 

Samþætting kennslugreina og lotubundið nám er ríkjandi form í kennslu Grunnskólans á Hólmavík. Viðmiðunarstundaskrá er fylgt með því að fylgjast með og gæta að því að uppfylla tímamagn kennslugreina. 

Samþætting námsgreina

Samþætting námsgreina, þemavinna og lotubundin námskeið á mismunandi tíma einkenna stundaskrár Grunnskólans á Hólmavík. Þannig er til dæmis upplýsinga- og tæknimennt samþætt öðrum námsgreinum og samfélagsfræði kenndar með mismunadi lotubundnum áherslum.