Vinnuskólinn mun starfa með sama sniði og í fyrra. Boðið verður upp á vinnu fyrir ungmenni í Strandabyggð fram að 18. aldursári. Framboð á vinnu fer eftir aldri viðkomandi eins og fram kemur í eftirfarandi tölfu:
fæðingarár | fjöldi vinnuvikna | lengd dags | vinna hefst | vinnu lýkur |
2003 | 2 | hálfur | 8.jún | 23.júní |
2002 | 4 | hálfur | 8.jún | 7.júlí |
2001 | 6 | hálfur | 8.jún | 21.júíl |
2000 | 8 | heill | 8.jún | 4.ágúst |
1999 | 10 | heill | 8.jún | 18.ágúst |
Starfsmenn Áhaldahúss munu sjá um Vinnuskólann þetta árið í samvinnu við tómstundafulltrúa..
Öll ungmenni fædd á árabilinu 1999-2003 sem eiga foreldri eða forráðamann með skráð lögheimili í Strandabyggð geta sótt vinnu í Vinnuskólann.
Umsóknir í Vinnuskólann eru aðgengilegar á þessari slóð. En þær liggja jafnframt frammi á skrifstofu Strandabyggðar. Umsóknum skal skila til stkrifstofu eða á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is eigi síðar en mánudaginn 2. maí.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá tómstundafulltrúa.