Fara í efni

Vikan 7. - 11. janúar

11.01.2013
Vikan 7. – 11. janúarMánudagurinn var með eðlilegu sniði fyrir utan mikla þreytueftir jólafrí. Í stærðfræði voru nemendur að spila og spjalla um jólafríið. Íensku var verið að...
Deildu

Vikan 7. – 11. janúar

Mánudagurinn var með eðlilegu sniði fyrir utan mikla þreytueftir jólafrí. Í stærðfræði voru nemendur að spila og spjalla um jólafríið. Íensku var verið að lesa í Action bls. 94-97. Einnig var farið í eintölu ogfleirtölu orða. Í íslensku fengu nemendur afhenta kennsluáætlun fyrir lotu 5 íSkerpu og hófu vinnu sína við lotuna. Í seinni stærðfræðitíma dagsins vorunemendur að vinna í hópum þar sem þau áttu að skilgreina hvaðundirstöðustærðfræðiaðferðirnar eru og hvaða orð og merki eru notuð fyrir þau.Í náttúrufræði var kafli 4 kláraður. Við áttum eftir síðustu tvo undirkaflana íkafla 4.

Á þriðjudeginum var verið að vinna í bls. 14- 36 íLandafræði handa unglingum. Í dönsku var unnið í vinnubók að markmiðum vikunnarsem voru að klára niður bls. 34. Í íslensku unnu nemendur áfram í lotu 5 í Skerpu.Í stærðfræði kláruðu nemendur að gera veggspjald með niðurstöðum hópavinnunnarfrá deginum áður. Í íþróttum var verið í fótbolta og skotbolta.

Á miðvikudag var stærðfræði og upplýsingatækni þar semnemendur voru að vinna að markmiðum sínum í stærðfræði og að upplýsingastreymií upplýsingatækni. Þetta sama á síðan við fyrir seinni tvo tímana í  þessum fögum. Eftir hádegi var náttúrufræðiþar sem við vorum að skoða í smásjá blóðið úr okkur sjálfum.

Á fimmtudag var danska í fyrsta tíma þar sem nemendur unnuað markmiðum vikunnar. Í kennslustund tvo var tjáning. Í þriðja og fjórða tímavar samfélagsfræði þar sem nemendur fóru í spurningakeppni úr efni kaflans semverður prófað úr. Á bekkjarfundi vorum við að spjalla um daginn og veginn. Ííslensku héldu nemendur áfram að vinna í lotu 5. Í íþróttum var verið aðundirbúa íþróttahátíð.

Á föstudag var byrjað í íslensku og þar eru nemendur aðvinna vel að markmiðum í lotu 5. Í ensku var unnið að því að klára markmiðvikunnar og endað á hlustun. Í dönsku var unnið að því að klára markmiðvikunnar og það tókst hjá öllum. Í ensku var ritunaræfing eftir upplestri og ílok tímans var sagnapróf.

Takk fyrir góða viku og hafið það gott um helgina.

Kveðja Ása  

Til baka í yfirlit