Fara í efni

Vikan 3. -7. september

07.09.2012
Vikan 3. – 7. septemberMánudagurinn byrjaði á stærðfræði þar sem nemendur unnu aðmarkmiðum vikunnar. Í þriðja og fjórða tíma var íslenska. Þar unnu nemendur aðmarkmiðum sínum...
Deildu

Vikan 3. – 7. september

Mánudagurinn byrjaði á stærðfræði þar sem nemendur unnu aðmarkmiðum vikunnar. Í þriðja og fjórða tíma var íslenska. Þar unnu nemendur aðmarkmiðum sínum. Allir eru búnir að velja sér kjörbók og smásögu. Þær á að lesaheima. Í ensku voru bls. 54-58 lesnar og glósaðar. Í náttúrufræði var fariðyfir kafla 1.2. Nemendur gerðu sjálfspróf 1.2 og 1.3 var unnið í hópum.

Á þriðjudag var samfélagsfræði í fyrstu tveimur tímunum, 9.bekkur er að vinna í efnahagskerfinu. 8. bekkur hefur verið að vinna meðmenningu á Íslandi. Í íslensku eru allir að vinna í Skerpu á sínum hraða ogvinna að markmiðum sínum. Allir eru búnir að velja sér kjörbók/smásögu sem á aðlesa heima og vinna síðan verkefni um hana í kennslustundum. Í ensku var unniðað markmiðum vikunnar og að þýðingu á textanum Jailhouse rock. Í íþróttum varfarið í Rugby og boltaleiki.

 Á miðvikudag varstærðfræði og upplýsingamennt fyrstu tvo tímana og síðan aftur í síðasta tímafyrir mat og fyrsta tíma eftir mat. Var bekknum skipt upp í tvo hópa þar semannar hópurinn vann í upplýsingamennt hjá Arnari og hinn hópurinn vann ístærðfræði hjá Ásu. Síðan var skipt í seinni tveimur. Í upplýsingamennt var haldiðáfram vinnunni við skipulagsbókina og er þeirri vinnu að verða lokið. Ættunemendur að fá skipulagsbók afhenta í lok næstu viku. Dagurinn endaði ínáttúrufræði þar sem unnið var að sjálfsprófum úr kafla eitt, þeir sem áttueitthvað eftir kláruðu og síðan var farið yfir svörin. Tíminn endaði síðan áþví að nemendur undirbjuggu sig fyrir næsta tíma með því að lesa kafla 2.

Á fimmtudag var stærðfræði í fyrsta tíma og unnu nemendur aðmarkmiðum sínum. Síðan var tjáning sem Malla sér um og eru nemendur að vinna aðverkefni þar sem þeir munu flytja síðar. Í þriðja og fjórða tíma varsamfélagsfræði þar sem haldið var áfram vinnu við sömu viðfangsefni og áþriðjudeginum.  Í síðasta tíma fyrir matvar bekkjarfundur, var talað um vináttu í hennar víðustu mynd.  Eftir hádegið var íslenska þar sem nemendurunnu að markmiðum sínum  og þau enduðudaginn í íþróttum þar sem farið var í boltaleiki.

Á föstudag var íslenska þar sem unnið var að markmiðum íSkerpu og nemendur í 9. bekk völdu sér kjörbók. Í stærðfræði var unnið að markmiðum.Síðustu þrír tímarnir voru danska. Fóru nemendur út í góða veðrið og skrifuðuhjá sér nafnorð úr umhverfinu. Þegar inn var komið var unnið með nafnorðináfram og nemendur æfðu sig í notkun á óákveðnum og ákveðnum greini.

Takk fyrir góða viku og eigið góða helgi.

Kveðja Ása   

Til baka í yfirlit