Fara í efni

Vikan 21. - 25. janúar

25.01.2013
Vikan 21. - 25. janúarMánudagurinn var með eðlilegu sniðu. Í fyrsta tíma varstærðfræði þar var bekknum skipt í þriggja og fjögurra manna hópa. Hver hópurglímdi við verkefni úr d...
Deildu

Vikan 21. - 25. janúar

Mánudagurinn var með eðlilegu sniðu. Í fyrsta tíma varstærðfræði þar var bekknum skipt í þriggja og fjögurra manna hópa. Hver hópurglímdi við verkefni úr daglegu lífi, sem henta vel sem þjálfun fyrir PISAkönnunina. Tveir hópar unnu með sama verkefnið, þegar nemendur höfðu lokið viðað reikna sameinuðust hóparnir tveir og báru saman bækur sínar.  Í ensku var verið að vinna í Action lesbók ogvinnubók. Núna erum við að vinna með frægt fólk, í þessari viku erum við að vinnameð Marie Curie, Móðir Theresu, Díönu prinsessu og Audrey Hepburn.  Í íslensku fór 8. bekkur með Ásu inn ísetustofu þar sem farið var yfir verkefnið sem þau áttu að skila og horft áleikrit um Hrafnkelssögu.  9. bekkur varmeð Möllu í stofunni þar sem 10 voru í námstæknifræðslu og 6 að vinna í Skerpuverkefnum á vefnum. Í náttúrufræði var fjallað um kafla 5.2 og 5.3 ogsjálfspróf gerð.

  Á þriðjudeginum var fariðí bls. 45 – 47 í samfélagsfræði. Í dönsku var unnið í vinnubók og gerðarhlustunaræfingar. Í íslensku eru nemendur að leggja lokahönd á lotu 5 og gengursú vinna vel. Í stærðfræði er verið að vinna í kafla 4. Íþróttatíminn féllniður vegna fjarveru kennara.

Á miðvikudag var stærðfræði og upplýsingatækni þar semnemendur rúlla á milli í þremur hópum. Í náttúrufræði er verið að vinna í kafla5.

Á fimmtudag var danska í fyrsta tíma þar sem nemendur unnu ívinnubók. Í tjáningu skiluðu nemendur viðtalsverkefninu. Í samfélagsfræði varfarið í bls. 48-54. Á bekkjarfundi horfðum við á kastljósþátt úr liðinni vikuþar sem tekið var viðtöl við tvö fórnarlömd kynferðislegs ofbeldis. Í íslenskueru nemendur að vinna í lotu 5 og margir hafa lokið þeirri vinnu. Í íþróttumvar farið í handbolta og brennibolta.

Á föstudag var byrjað í íslensku og þar eru nemendur að vinnavel að markmiðum í lotu 5, þeir sem höfðu lokið þeirri vinnu tóku próf úrlotunni.  Í ensku var verið að vinna aðmarkmiðum vikunnar og síðan var sagnapróf. Í dönsku var unnið í vinnubók.

Takk fyrir góða viku og hafið það gott um helgina.

Kveðja Ása  

Til baka í yfirlit