Vikan 1. - 5. október
Mánudagurinn byrjaði á fríi, sem allir voru mjög ánægðirmeð.
Á þriðjudag var samfélagsfræði í fyrstu tveimur tímunum, varverið að fara yfir próf sem var lagt fyrir fimmtudaginn síðasta. Í íslensku varfarið yfir próf úr lotu 1 með 9. bekk. 8. bekkur var á bókasafni með Ásu aðvinna að markmiðum sínum í lotu 2. Ídönsku var unnið að markmiðum vikunnar. Í ensku var unnið að því að kláravinnubókina, þeir sem voru búnir bjuggutil draugasögu. Í íþróttum var verið á trampolíni og í fimleikum.
Á miðvikudag var stærðfræði og upplýsingamennt fyrstu tvotímana og síðan aftur í síðasta tíma fyrir mat og fyrsta tíma eftir mat. Varbekknum skipt upp í tvo hópa þar sem annar hópurinn vann í upplýsingamennt hjáArnari og hinn hópurinn vann í stærðfræði hjá Ásu. Íupplýsingamennt var haldið áfram með verkefni í publisher. Dagurinn endaði ínáttúrufræði þar sem rætt var um kafla 2.5 og sjálfspróf 2.5 var gert.
Á fimmtudag var danska í fyrsta tíma þar sem unnið var íbls. 8-15. Í tjáningu áttu nemendur að kynna fjölmiðlaverkefnið fyrirsamnemendum sínum. Í þriðja og fjórða tíma var samfélagsfræði þar sem nemendurvoru að vinna með kort af Íslandi. Í síðasta tíma fyrir mat var bekkjarfundur,þar sem rætt var um einelti og eineltisreglur skólans kynntar fyrir nemendum,skapaðist mjög skemmtileg umræða. Eftirhádegið var íslenska þar sem nemendur unnu að markmiðum sínum og þau enduðu daginn í íþróttum þar sem voruæfingar fyrir Íþróttahátíð í Bolungarvík.
Á föstudag var byrjað í íslensku þar sem nemendur eru aðvinna að markmiðum sínum í lotu 2. Í stærðfræði eru nemendur að vinna aðmarkmiðum sínum og nokkrir tóku próf. Í dönsku vorum við að leika okkur og aðdunda okkur því það var frjáls tími. Í stærðfræði var unnið að markmiðum. Sumirvoru búnir á hádegi en aðrir héldu í valfögin sín.
Takk fyrir góða viku og eigið góða helgi.
Kveðja Ása